Morgunblaðið - 13.11.2020, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2020
Eftirvænting Mikil eftirvænting ríkti meðal meðlima Tólfunnar, en nokkrir úr þeirra hópi ákváðu að horfa á landsleik Íslands og Ungverjalands á Spot, allavega þar til staðnum yrði lokað.
Eggert
Samanburður á ferli
Donalds Trumps, frá-
farandi Bandaríkja-
forseta, og Joes Bi-
dens, verðandi forseta,
sýnir hvers vegna þeir
taka ákvarðanir og
vinna að lausn mála á
gjörólíkan hátt. Trump
er einráður kaupsýslu-
maður, eigandi glæsi-
bygginga sem bera
gullslegið nafn hans. Lögfræðing-
urinn Joe Biden var kjörinn í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings 29 ára
fyrir réttum 48 árum. Biden verður
78 ára nú 20. nóvember. Hann
stjórnar í krafti málamiðlana.
Donald Trump birtist eins og
stormsveipur í bandarískum stjórn-
málum árið 2016 og síðan sem for-
seti í janúar 2017 með þann boðskap
á vörunum að hann ætlaði að ræsa út
mýrina í Washington, ýta þeim til
hliðar sem ráðið hefðu för og fjar-
lægst þjóðina á valdastólunum.
Þetta dugði til að virkja grasrótina
gegn Hillary Clinton, fulltrúa kerf-
isins og ráðandi afla.
Fjórum árum síðar tapar Trump
fyrir sér eldri manni sem hefur í
hálfa öld lifað og hrærst í „mýrinni“
og sótti fylgið sem að lokum þurfti til
að vinna Trump til þeirra í flokki
repúblikana sem þoldu ekki stór-
bokkahátt flokksbróður síns í Hvíta
húsinu. Þungamiðjan í kosn-
ingaboðskap Bidens var að benda á
karakter Trumps sem enn situr við
sinn keip.
Trump getur vel unað við tölurnar
sem birtar hafa verið um fylgi hans.
Raunar er magnað að hann hafi
fengið um 71 milljón atkvæða. Hann
fékk meira fylgi meðal
blökkumanna og fólks
af spænskum ættum en
áður. Honum tókst
margt vel í forsetatíð
sinni en hafði ekki
réttu skapgerðina til að
ná endurkjöri.
Við upphaf forseta-
ferils Trumps voru
uppi kenningar um
laumuspil manna hans
eða jafnvel hans sjálfs
með Rússum. Gefið var
til kynna að ekki væri
unnt að treysta Trump til að gæta
þjóðaröryggis. Með ásökunum um
að ekki sé rétt staðið að kosningum í
Bandaríkjunum vegur Trump að
rótum lýðræðisins. Hann býr sig
undir baráttu gegn Biden sem for-
seta án lögmæts umboðs.
Stjórnarhættir Trumps urðu að
nokkru skjól fyrir þá sem vega að
frjálslyndu, lýðræðislegu stjórn-
kerfi. Telji hann Bandaríkjamenn
ófæra um að efna til lýðræðislegra
kosninga grefur Trump undan bar-
áttu þeirra sem berjast gegn vald-
höfum á borð við Alexander Lukasj-
enko í Hvíta-Rússlandi.
Vegna reynslu sinnar í öld-
ungadeildinni veit Joe Biden betur
en aðrir að án meirihluta þar eru
Bandaríkjaforseta settar verulegar
skorður. Um meirihlutann er óvíst
þar til kjör tveggja öldungadeild-
arþingmanna verður endurtekið í
Georgíu-ríki 5. janúar 2021.
Haldi repúblikanar meirihluta í
öldungadeildinni fá þeir stöðv-
unarvald á mörgum mikilvægum
sviðum vegna skattheimtu og op-
inberra útgjalda og við val á mönn-
um í ráðherra- og dómaraembætti,
auk þess að halda formennsku í lyk-
ilnefndum deildarinnar.
JoeBiden er miðjumaður og boð-
skapur hans sem verðandi forseti er
að hann ætli að bera græðandi
smyrsl á pólitísk sár í Bandaríkj-
unum. Það tekst ekki láti hann und-
an öfga-vinstrisinnum innan eigin
flokks. Þeir efldust fengju demó-
kratar meirihluta í öldungadeildinni
þar sem Bernie Sanders og Eliza-
beth Warren sitja. Biden sigraði þau
í prófkjörinu til að halda aftur af öfg-
um. Miðjustefnu sinni á Biden auð-
veldara með að fylgja fái repúblik-
anar meirihluta í öldungadeildinni.
Öryggismál
Orðin Foggy Bottom eru notuð
um bandaríska utanríkisráðuneytið.
Nafnið er dregið af þeim hluta
Washington-borgar þar sem ráðu-
neytið, Watergate-byggingin og
Kennedy-listamiðstöðin standa svo
að nokkuð sé nefnt. Með orðunum er
vísað til þokulæðunnar sem lá yfir
mýrinni.
Donald Trump vildi sem minnst
vita af diplómötum og fyrrverandi
starfsmenn í Foggy Bottom skrifuðu
greinar um að hann ætlaði í raun að
eyðileggja utanríkisráðuneytið.
Hann styddist frekar við herforingja
en diplómata og duttlungar hans
réðu meiru en framkvæmd ígrund-
aðrar utanríkisstefnu.
Herforingjar þekkja hörmungar
vegna hernaðarátaka manna best.
Stjórnartíð Trumps hefur einkennst
af viljaleysi hans til að beita banda-
rísku hervaldi. Hann hefur hins veg-
ar eflt hernaðarmátt Bandaríkjanna.
Í tíð Trumps hefur bandaríski
flotinn til dæmis látið meira að sér
kveða á Norður-Atlantshafi en áður í
30 ár. Samstarf við Norðurlönd í
varnar- og öryggismálum eykst
jafnt og þétt ekki síst við Svía og
Finna. Ólíklegt er að þessi stefna
breytist með Biden í Hvíta húsinu.
Unnið er að gerð áætlana sem koma
til framkvæmda stig af stigi.
Einn liður í þeirri vinnu var heim-
sókn bandaríska flotaforingjans Ro-
berts Burkes, yfirmanns bandaríska
flotans í Evrópu og Afríku, hingað til
lands í lokaviku október. Flotafor-
inginn kynnti áhuga bandaríska flot-
ans og NATO á hafnaraðstöðu í
Færeyjum, á Íslandi og Grænlandi.
Í september 2015, í forsetatíð
Baracks Obama, fór Robert O.
Work, vara-varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna til Íslands, Noregs
og Bretlands. Hann ræddi við ráða-
menn og kynnti sér mannvirki og
búnað sem kynni að nýtast banda-
rískum herafla yrði hann sendur til
Íslands og Noregs. Síðan samþykkti
Bandaríkjaþing fjárveitingar til end-
urbóta og mannvirkjagerðar á
Keflavíkurflugvelli.
Fjölþjóðasamstarf
Bandaríkjastjórn hafði forystu um
fjölþjóðlegt samstarf reist á alþjóða-
lögum að lokinni síðari heimsstyrj-
öldinni. Viðurkenning Bandaríkja-
manna á sjálfstæði Íslands skipti
sköpum við stofnun lýðveldisins 17.
júní 1944. Nokkrum vikum síðar sat
íslensk sendinefnd fundinn ásamt
fulltrúum 43 annarra ríkja í Bretton
Woods í New Hampshire-ríki og
lagði grunn að Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum og Alþjóðabankanum og í
raun því fjölþjóðlega stofnana- og
samstarfsneti sem síðan hefur
þróast.
Í tíð Donalds Trumps hefur hann
haft horn í síðu margra þessara
stofnana og dregið úr starfi og áhrif-
um Bandaríkjamanna innan þeirra.
Frægust er úrsögn hans úr Alþjóða-
heilbrigðismálastofnuninni (WHO).
Joe Biden hefur boðað það sem eitt
fyrsta verk sitt að Bandaríkin gangi
aftur í WHO og verði þar með í for-
ystu í baráttunni gegn Covid-19-
faraldrinum.
Þetta er fagnaðarefni og stuðlar
að sigri á veirunni en hitt skiptir
ekki minna máli að með þátttöku
Bandaríkjastjórnar sé stuðlað að
varðstöðu um þá heimsskipan í
krafti alþjóðalaga sem hefur reynst
vel í þrjá aldarfjórðunga. Tómarúm-
ið sem leitt hefur af brotthvarfi eða
áhugaleysi Bandaríkjastjórnar und-
ir forsæti Donalds Trumps hafa þeir
reynt að fylla sem virða frjálslynd
lýðræðisviðhorf að vettugi.
Athygli beinist að stefnubreyting-
unni sem verður á loftslagsstefnu
Bandaríkjanna með valdatöku Bi-
dens sem vill virða Parísarsamning-
inn um markmið gegn gróðurhúsa-
lofttegundum. Þrátt fyrir andstöðu
Trumps við samninginn hefur stjórn
hans lagt áherslu á rannsóknir á
áhrifum loftslagsbreytinga á norð-
urslóðum. Trump viðurkenndi þær í
verki með ákvörðun um smíði
bandarískra ísbrjóta.
Stærsta sjáanlega breytingin við
bandarísku stjórnarskiptin birtist í
fyrirsjáanleika um hver er í raun
stefna Bandaríkjastjórnar. Þetta
styrkir tengsl hennar við banda-
menn sína og veldur þáttaskilum í
starfi fjölþjóðastofnana en breytir
ekki grundvallarþáttum stefnunnar.
Eftir Björn
Bjarnason » Joe Biden er miðju-
maður og ætlar
að bera græðandi
smyrsl á pólitísk sár
í Bandaríkjunum.
Björn Bjarnason
Höfundur er fyrrv. ráðherra.
Sátt en ekki sundrung í Washington