Morgunblaðið - 28.11.2020, Side 6

Morgunblaðið - 28.11.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stofnun Árna Magnússonar í ís- lenskum fræðum undirbýr tilnefn- ingu íslensku laufabrauðshefð- arinnar á skrá Menningarmála- stofunar Sameinuðu þjóðanna (Unesco) yfir lifandi hefðir og menn- ingarerfðir mannkyns. Laufa- brauðshefðin hefur þegar verið skráð á vefinn Lifandi hefðir ásamt fleiri dæmum um óáþreifanlegan menningararf. „Við teljum að laufabrauðshefðin eigi fullt erindi á lista Unesco yfir óá- þreifanlegan menningararf og því er það nú til nánari skoðunar. Óáþreif- anlegur menningararfur, eins og hefðir, er ekki síður mikilvægur og merkilegur en það sem augljósara er og sýnilegt, svo sem náttúruminjar. Aukin þekking á hefðum, fræðsla um þær og varðveisla er liður í innleið- ingu okkar á samningi Unesco frá árinu 2003 um varðveislu slíkra menningarerfða,“ segir Lilja Al- freðsdóttir, mennta- og menningar- málaráðherra, en ráðuneyti hennar fól Árnastofnun að annast undirbún- ing að tilnefningunni. Sætabrauð Íslendinga Í samantekt um laufabrauðsgerð- ina á vefnum Lifandi hefðir sem Dagný Davíðsdóttir skráði kemur fram að í Evrópu þekkist enn skrautlegt jólabrauð og hátíðar- kökur en það er þó ekki líkt laufa- brauðinu því það íslenska er mun þynnra. „Laufabrauð er séríslenskt fyrirbrigði. Elsta ritaða heimild um laufabrauð er frá fyrri hluta 18. ald- ar þar sem það er skilgreint sem sætabrauð í huga Íslendinga, laufótt þunnt brauð sem hnoðað er úr hreinu hveiti, myndskreytt, smurt með smjöri og soðið,“ stendur þar. Á 19. öld var laufabrauðið bundið við Norðurland og við aðventuna en útbreiðsla þess hófst undir lok nítjándu aldar eftir að uppskrift var birt í Kvennafræðaranum árið 1889. Nú þekkist hefðin á öllu landinu sem skemmtilegur jólaundirbúningur fjölskyldna og ætta. Hætt er við að margar fjölskyldur missi eitt ár úr í laufabrauðsskurði því yfirvöld sóttvarnamála hafa beð- ið fólk að fresta öllum slíkum sam- komum vegna kórónuveirunnar. Íslenska skráningin byrjunin Á umræddri skrá Unesco eru ýmsar lifandi hefðir. Nefna má dans, tónlist, kveðskap, mat, þjóðtrú og þjóðlegar hefðir sem dæmi. Ekki hefur verið ákveðið að óska eftir skráningu laufabrauðshefð- arinnar. Guðrún Nordal, forstöðu- maður Stofnunar Árna Magnús- sonar, segir að innlenda skráningin sé fyrsta skrefið. Vinna þurfi um- talsverða undirbúningsvinnu áður en hægt verður að tilnefna hefðir formlega á heimsskrá Unesco enda þurfi slíkum tilnefningum að fylgja ítarleg gögn og rökstuðningur. Morgunblaðið/Styrmir Kári Laufabrauðsgerð Margir gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn við skurðinn. Fullorðnir taka svo við og steikja. Undirbúa skráningu laufa- brauðshefðar á heimsskrá  Laufabrauðshefðin er talin séríslenskur menningararfur Morgunblaðið/Skapti List Laufabrauð skorið út og steikt af miklu listfengi á Akureyri. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Frumvarpið mun ekki bæta rétt barna heldur auðvelda fullorðnum að smeygja sér í raðir barna til að njóta réttarverndar sem börnum eiga að vera tryggð. Með órökstudd- um dylgjum og röngum tilvísun- um er reynt að grafa undan þeirri aðferðafræði sem best tryggir börn- um rétt sinn og langflest lönd Evrópu fylgja,“ segir í umsögn fjögurra réttar- tannlækna um frumvarp til laga um breytingar á lögum um útlendinga. Um er að ræða frumvarp Rósu Bjark- ar Brynjólfsdóttur sem felur í sér að horfið verði frá aldursgreiningum með líkamsrannsókn en í staðinn tek- ið upp heildstætt mat. Réttartannlæknarnir segja að rétt- arlæknisfræðilegar aldursgreiningar séu nákvæmar og þær séu notaðar af öllum Evrópuþjóðum utan tveggja til að tryggja réttindi barna. „Flutnings- maður gerist sekur um alvarlegar rangfærslur í sínum málflutningi sem standast ekki nánari skoðun,“ segir í umsögninni. Undir hana rita réttar- tannlækarnir Svend Richter, Sigríður Rósa Víðisdóttir, Guðlaugur J. Jó- hannsson og Sonja Rut Jónsdóttir en þau kenna öll við tannlæknadeild Há- skóla Íslands. Í umsögninni segir að fullyrðing þess efnis að Evrópuráðið, Evrópu- ráðsþingið og ráðherranefnd Evrópu- ráðsins hafi lagst gegn aldursgrein- ingum á tönnum sé „skálduð“. „Þeir sem hafa séð um aldursgreiningar umsækjenda um vernd frá upphafi hafa beitt sér fyrir því að aldursgrein- ing byggist, auk tannþroska, einnig á beinþroska, til samræmis við önnur Norðurlönd og nánast öll lönd Evr- ópu. Útlendingastofnun hefur fallist á þau sjónarmið og framvegis verða aldursgreiningar hér á landi byggðar á tann- og beinþroska,“ segir í um- sögninni. Þar segir jafnframt að við líkamsrannsóknir séu notaðar gagn- reyndar vísindalegar aðferðir byggð- ar á rannsóknum sem viðurkenndar séu af vísindasamfélaginu þar sem fyrir liggi staðalfrávik og öryggis- mörk. „Aldursgreining sem byggist á sálfræðiviðtölum og mati félags- ráðgjafa uppfyllir ekki slík skilyrði,“ segja tannlæknarnir en breytingar- tillaga Rósu felur í sér að tekið verði upp „faglegt mat eða aðkoma sér- fræðinga í málefnum barna, svo sem sálfræðinga eða félagsráðgjafa, til að greina aldur umsækjenda“. Tannlæknarnir segja að umrætt frumvarp muni ekki bæta rétt barna heldur auðvelda fullorðnum að smeygja sér í raðir barna til að njóta réttarverndar sem börnum eigi að vera tryggð. „Með órökstuddum dylgjum og röngum tilvísunum er reynt að grafa undan þeirri aðferða- fræði sem best tryggir börnum rétt sinn og langflest lönd Evrópu fylgja,“ segja þeir. Saka Rósu um alvarlegar rangfærslur  Fjórir réttartannlæknar átelja frumvarp Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur um breytingar á lögum um útlendinga  Segja frumvarpið ekki bæta rétt barna  Telja málflutning Rósu ekki standast skoðun Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Tannlækningar Réttartannlæknar eru ósáttir við frumvarp Rósu Bjarkar.Rósa Björk Brynjólfsdóttir „Ég mun ráðleggja öllum mínum skjólstæðingum og kollegum að láta bólusetja sig ef lokauppgjörið úr þriðja fasa prófana verður í lagi. Ef svo er þá er ekkert annað að gera en að byrja að bólusetja,“ segir Björn Rúnar Lúðvíks- son, yfirlæknir ónæmisfræði- deildar Landspít- alans og prófess- or í ónæmisfræði við læknadeild HÍ, um bóluefni gegn kórónuveir- unni. „Það er skiljan- legt að fólk hafi áhyggjur þegar verið er að þróa mikilvæg lyf eins og bóluefni á svo undraskömmum tíma,“ segir Björn Rúnar. Hann seg- ir niðurstöður úr forrannsóknum og seinni rannsóknum liggja fyrir. „Það er búið að bólusetja nálægt 100 þús- und manns með einu af þessum þremur bóluefnum sem mest er talað um. Enn sem komið er hafa engar al- varlegar aukaverkanir komið í ljós. Það er mjög hughreystandi.“ Björn Rúnar segir að menn séu að velta fyrir sér hugsanlegum lang- tímaáhrifum bólusetningar. Á móti komi að hluti þeirra sem sýkst hafa af kórónuveirunni sitji hugsanlega eftir með langvarandi og jafnvel al- varleg einkenni, miklu alvarlegri en þau sem bóluefni gæti mögulega valdið. Þær aukaverkanir sem orðið hefur vart vegna bóluefnanna gegn Co- vid-19 hafa verið vægar. Þar má nefna einkenni eins og vægan hita og eymsli á stungustað fyrst eftir bólu- setningu. Það sýnir að ónæmiskerfið er að gera það sem það á að gera, að sögn Björns Rúnars. Nokkur umræða hefur verið í Sví- þjóð um aukaverkun sem sumir fengu eftir að þeir voru bólusettir gegn svínainflúensu fyrir 10-11 ár- um. Björn Rúnar segir að aukaverk- unin hafi verið mjög sjaldgæf. Ekki megi gleyma því að margir sem fengu svínainflúensuna hafi farið mjög illa út úr því. Hann segir að læknar þurfi alltaf að vega og meta hugsanlegar auka- verkanir við lyfjagjöf og lyfjameð- ferð. „Enn sem komið er bendir allt til þess að þetta sé öruggt. Hvorki læknar né heilbrigðisyfirvöld munu ráðleggja fólki að láta bólusetja sig nema það sé talið öruggt,“ segir Björn Rúnar um nýju bóluefnin. gudni@mbl.is Talið að bólu- setning sé örugg  Búið að prófa nærri 100.000 manns Björn Rúnar Lúðvíksson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.