Morgunblaðið - 28.11.2020, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 28.11.2020, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 þessi fyrsta heimsókn til hennar yrði líka sú síðasta. Við nutum þessa samfunda í botn, rifjuðum upp gamla daga og hlógum mik- ið. Hún var glöð og létt en sorg- in vegna nýlegs missis Guggu, elstu dóttur hennar, var rétt undir yfirborði. Á leiðinni heim vorum við að leggja drög að næstu heimsókn til hennar og töluðum um það að við munum gera það af og til úr þessu. Ég kynntist Gróu og fjöl- skyldu hennar á Flateyri árið 1976, 24 ára gömul, þangað sem ég var komin sem erlent vinnu- afl til að vinna í fiski. Á Flateyri saug ég í mig allt sem íslenskt var með ljufri hjálp Gróu og Hadda og barnanna þeirra sex. Með tímanum gerðist ég tíður gestur á heimili þeirra þar sem ég fann fyrir hlýju, stuðningi og öryggi. Á Flateyri bjó ég í 7 ár og allan þann tíma umgengst ég þau ansi mikið. Haraldur og Gróa voru einyrkjar og störfin þeirra tengdust sjó og fiski og ég var oft handlangari í mörgu því sem þau tóku sér fyrir hend- ur. Gróa tók mig sem einu af börnunum þeirra og mér leið alltaf vel í návist hennar enda hún með eindæmum létt í lund, björt og brosgjörn. Eftir að ég fluttist frá Flat- eyri til Reykjavíkur árið 1983 tengslin losnuðu þó nokkuð en ég vissi alltaf af henni og heyrði rödd hennar minnst einu sinni á ári þegar Gróa hringdi suður á afmælinu mínu. Ég heimsótti hana á ferðum mínu um Vestfirði, síðast á Hlíf á Ísafirði sem hún var þá komin með huggulega litla íbúð. Nú höguðu örlögin því þannig að hún fluttist aftur í þetta sinn hingað suður og þegar ég hélt að leiðin væri orðin breið þá lok- aðist hún óvænt. Gróa hringir ekki oftar á afmælisdegi mínum og það er ekkert eftir fyrir mig en að þakka henni fyrir að hafa kennt mér að búa í landinu og njóta þess. Nú fylgi ég Gróu ekki í henn- ar síðustu ferð vestur en leið mín mun örugglega liggja þang- að, til hennar, í þennan fallega heimafjörð hennar og mín, ein- hvern tíma í framtíðinni. Katrín Kinga Jósefsdóttir (Kasia). Elsku Gróa amma mín. Ég er ekki alveg að ná þessu enn þá. En ég veit fyrir víst að þú ert komin á góðan stað og veit að það taka margir á móti þér þarna uppi. Ég man vel eftir því þegar við bjuggum á Flateyri og maður kíkti í heimsókn, það var alltaf veisla þegar maður kom í heim- sókn til Gróu ömmu. Pabbi fór til þín á hverjum degi og fékk sér kaffi og var að ræða málin með þér. Stundum fór ég með pabba en ég fór oft daglega til þín. Það var alltaf gaman að taka vinkonu með í heimsókn til þín. Þú varst svo góð við alla og varst alltaf tilbúin að bjóða öll- um í kaffi. Þú sagðir oft að þú ættir ekkert til en komst fram með fleiri fleiri diska af kræs- ingum. Það var ekkert betra en ömmupönnsur og ömmukleinur. Mér fannst kleinur og pönnu- kökur ekki góðar nema hjá þér. Ég man þegar pabbi reyndi að gera pönnukökur og þær voru ekki nærri því eins góðar og hjá þér. Það var alltaf gaman að koma á Grundarstíginn og fá að leika sér í kjallaranum og bíl- skúrnum og skoða allt dótið sem var til Ég man svo vel eftir því þeg- ar það var svo mikil snjóflóða- hætta að við fluttum niður í kjallarann í nokkra daga. Maður var lítill og hræddur en þú róað- ir mann og sagðir að þetta yrði í lagi. Svo man ég að eina nóttina vaknaði ég og fór upp og þú varst frammi í stofunni með slökkt ljósin. Svo héldum við að það væru konfektmolar á gólfinu en það var hundaskítur. Þá vor- um við með ungan hund sem var hræddur. Við hlógum mikið og lengi að þessu. Þú kenndir mér margt amma. Sem ég verð ævinlega þakklát fyrir. Þú kenndir mér meðal annars að maður klárar alltaf mjólkina úr glasinu, maður á að borða eins mikið og maður get- ur, troða í sig. Þegar ég byrjaði svo í hesta- mennskunni varstu svo stolt af mér og fannst gaman að þessu. Það var líka alltaf svo gaman að segja þér frá hvað maður var með inni og hvernig mér gekk að þjálfa eða keppa. Þér fannst gaman að hlusta á mig og fannst hestamennskan mín skemmtileg. Sem mér þótti mjög vænt um. Þér fannst æðislegt þegar ég eignaðist Kötlu og sagðir að ég myndi ekki sjá eftir því. Svo þegar hún átti folaldið varstu glöð með nafnið og litinn. Þú sagðir að þeir væru góðir vinir sem ekki svíkja mann og eru til staðar. Sem er alveg rétt þar sem það er mjög gott að fara til þeirra þegar manni líður illa. Þér fannst einnig frábært þegar ég fékk mér smalahund og vissir að hann yrði bæði góð- ur hundur og vinur. Mér fannst mjög gaman að tala við þig í síma og segja þér fréttir, símtalið var aldrei styttra en tuttugu mínútur. Það sem þú hefur þurft að þola elsku amma er hræðilegt, og það ætti enginn að þurfa að ganga í gegnum svona mikið. Það að missa manninn þinn snemma, fjögur börn og eitt barnabarn, öll langt fyrir aldur fram er alveg hræðilegt. Kvöldið sem pabbi dó hugsaði ég mikið til þín og hversu erfitt þetta myndi vera fyrir þig. Ég vildi bara knúsa þig og aldrei sleppa. Amma mín, ég er glöð að hafa fengið að vera nafna þín og ég elska Gróunafnið okkar. Ég mun sakna þín alveg rosa- lega og þú mátt knúsa alla þarna uppi fyrir mig. Guð geymi þig, elsku amma, ég elska þig. Gróa Hinriksdóttir. Elsku amma, ég elska þig mest af öllu, ég sakna þín rosa mikið, vildi að ég gæti hitt þig aftur. Ég hugsa alltaf um ef ég hitti þig aldrei aftur. Þú varst skemmtilegasta og besta amma sem til er, þú varst svo góð og jákvæð. Leist alltaf á björtu hliðarnar. Þér þótti vænt um alla. Man eftir því þegar við bökuðum jólaköku saman og á Flateyri, eftir leikskóla, fórum við Elín alltaf í heimsókn til þín að fá pönnsur og köku. Svo í kvöldmat var oft saltkjöt og eft- irréttur var aðalbláber og rjómi. Það var uppáhaldsparturinn af deginum mínum, að vera heima hjá þér. Ég sakna þín og elska þig og trúi ekki að þú sért farin. Ég hélt að þessi tími myndi aldrei renna upp. Ég hugsa um þig á hverjum degi og reyni að sætta mig við það að ég muni ekki hitta þig aftur. En ég bara get það ekki, það er svo erfitt. Mun aldrei gleyma okkar bestu stundum, ég skemmti mér svo vel með þér. Óska þess að þeir tímar myndu aldrei hætta. Sakna þín mest af öllum. Órétt- látt þetta líf. Missti Væja afa minn fjögurra ára, pabba minn sjö ára og þig núna ellefu ára. Og ég sakna ykkar allra. En þú ert komin á betri stað. Pabbi, Gugga, Gummi, Gunnhildur og afi taka á móti þér. Vildi að ég gæti hitt þig einu sinni enn. Elska þig amma, Þorvarður Hinriksson (Þorri). Elsku amma, ég sakna þín rosa mikið, alltaf þegar ég kom til þín fékk ég saltkjöt og pönnukökur. Þú ert besta amma í heimi og ég vildi að þú værir hjá mér. Vona að pabbi, afi og hin börnin þín taki vel á móti þér. Ég mun aldrei gleyma þér, ég man líka þegar við bjuggum á Flateyri. Þá fórum við og Þorri alltaf eftir leikskóla heim til þín. Fengum pönnukökur og fleira góðgæti. Við fengum alltaf ís með bláberjum og rjóma í eft- irrétt og það var uppáhaldið mitt. Ég vona að þér líði vel og ég mun sakna þín, gefðu pabba knús frá mér. Þín ömmustelpa Elín. Hjartgóð, traust, jákvæð og alltaf svo brosmild. Yndislega tengdamamma mín, það var alltaf svo gott að tala við hana, ég gat sagt henni allt. Okkar fyrstu kynni eru þegar ég er að stefnumótast með Hinna. Við Hinrik komin vestur, mætt á Vagninn en ég ætlaði rétt að skjótast til þín eftir vatnsglasi. Þá er búið að dekka upp borð, fullt af kökum, heitt súkkulaði og rjómi. Þetta var mögulega ekki alveg það sem ég hafði hugsað mér þetta kvöld en ekki sagði maður nei við svona boði. Boðin voru líka mörg, það var alltaf nægur matur. Elín mín hafði sérstakt dálæti á mat- argerðinni þinni, hún fékk oftar en ekki saltkjöt og þið hlóguð saman að því hvernig Elín saug beinin, þú sagðir alltaf að svona ætti að gera þetta. Þau 7 ár sem við Hinrik bjuggum á Flateyri með börn- unum okkar var alltaf svo gott að koma við hjá Gróu ömmu og það gerðum við nánast daglega og áttum góðar stundir. Ein yndisleg minning eru síðustu jólin þín á Grundarstígnum. Það var búið að vera mjög vont veð- ur, mikið rafmagnsleysi svo við ákváðum að flytja inn til þín og vera saman yfir hátíðirnar. Yndislegur tími með þér og börnunum, amma sagði já við öllu og krökkunum þótti svo spennandi að sofa í kjallaranum. Við fórum margar ferðirnar yfir á Ísafjörð í búðaráp og stundum fengum við okkur kaffi í bakaríinu hans Sævars bróður og ekki fórum við tómhentar þaðan. Þú vildir hins vegar oft- ast frekar fara með Hinna því þú sagðir börnunum mínum að ég væri svo mikill glanni, við hlógum mikið að því. Mikið varstu glöð þegar þú fékkst nöfnu, Gróu mína. Þið tvær áttuð yndislegt samband alla tíð. Hinni minn heitinn var líka mikill mömmustrákur. Hann hringdi daglega í þig til að segja þér frá hvað börnin okkar væru að gera. Þér þótti alltaf vænt um að heyra það. Börnin mín minnast ömmu með hlýju, pönnukökum, jóla- köku, aðalbláberjum með sykri og nóg af honum svo ekki sé tal- að um kleinurnar. Elsku Gróa, það verða fagn- aðarfundir hjá ykkur Hinna mínum ásamt mörgum góðum sem taka á móti þér. Þú hefur misst mikið um ævina en alltaf hélstu í jákvæðnina. Knúsaðu elsku Hinrik minn frá mér og börnunum, við söknum hans sárt og þín verður sárt saknað. Þín tengdadóttir. Elínbjörg Katrín Þorvarðardóttir. Nú hefur hún Gróa, hjartkær dýrmæt uppáhaldsfrænka mín og vinkona, kvatt. Hún gekk með sérlega fallegri reisn í gleði og sorgum, einstök mannkosta- kona með fallega smitandi lífs- gleði og léttu lundina sína. Gróa hlúði svo fallega að öllum ást- vinum, frændfólki og vinum og var mikill dýravinur. Hrafninn var vinur hennar og gaf hún honum og smáfuglunum hvorum sínu megin við heimilið sitt. Hennar fyrsta minning var er mamma hennar, sem gat ekki haft hana hjá sér, bar hana á bakinu út að Mosvöllum og þar ólst hún upp hjá pabba og við mikið ástríki ömmu. Þar bjó fatlaður frændi sem hún frá unga aldri bar um allt, um- hyggjan henni svo eðlislæg og hún sá allt það góða i öllum og hlúði að. Mosvellir er þvert í þjóðbraut og þar var mikill gestagangur, sveitungar komu gjarnan við á leið yfir heiðarnar. Það voru dýrmætar stundir eins og hún hefur oft sagt mér frá, margt ungt fólk i sveitinni og dalnum og þau hittust og minnt- ist hún þess er þau dönsuðu iðu- lega á Grundunum á hjarninu i tunglsljósi og þar voru ævivinir hennar úr bæjunum í Hjarðar- dal, m.a. mamma, Dúi og Eirný og systkinin úr Innri-Hjarðar- dal. Gróa giftist Hadda, þau fluttu og byggðu sér fallegt heimili á Grundarstíg á Flateyri og eignuðust Gumma, Guggu, Jónu, Gunnhildi, Gógó og Hin- rik. Það er þyngra en tárum taki að hún hefur misst bónda sinn, fjögur börn og barnabarn. Í ágúst sl. féll Gugga dóttir hennar snögglega frá og þá brast stengur i hjartanu hennar en Gugga hafði búið á Hlíf sl. þrjú ár og hlúð fallega að mömmu og áttu þær góðar stundir saman. Eftir lifa Jóna og Gógó. Hvernig hún með ein- stöku æðruleysi og kærleik af- komenda vina og samferðafólks tókst á við þetta, trúin hjálpaði henni mikið. Þau hjón áttu Garða og verkuðu harðfisk, grá- sleppu og fleira sem var einstök verkun og færri fengu en vildu. Þau áttu litla skektu sem þau reru á og snyrtimennskan var þeim báðum í blóð borin. Ég skrapp oft í bíltúr í kaffi til Gróu og það var alltaf hlaðborð og bakkelsi, ef við systkinin vorum að mála á Flateyri lét hún ná í okkur. Það var svo gott og mannbætandi að ræða við hana, þessa fróðu konu, og er ég þakklát fyrir hvað hún sagði mér mikið um mitt fólk. Ég var virkilega ánægð er hún bað mig um að sækja um íbúð fyrir sig á Hlíf á Ísafirði. Gróa bjó þar í 7 ár og og naut sín virkilega vel þar innan um gott fólk og í góðri umönnun. Áttum við frænkur yndislegar stundir oftast dag- lega, símtöl á kvöldin er hún söng gömul lög og fór með ljóðin hans Davíðs. Í sumar flutti Gróa mín á Sólvelli, nær fjölskyld- unni. Það fór vel um hana en svo breyttist allt. Gugga fellur frá og svo kemur þessi skæða veira sem lagði frænku mína en hún var svo tilbúin í sína för, enda hvíldin þreyttum kær. Ég er svo óendanlega þakklát fyrir yndislega frænku mína sem hefur verið vinkona mín frá því ég var lítil. Guð gefi henni fallega heimkomu til ástvina sem fóru fyrr. Elsku Gógó, Jóna og ástvinir. Hjartans einlægustu samúðar- kveðjur frá okkur fjölskyldunni og íbúarnir á Hlíf báðu fyrir innilega samúð vegna fráfalls mömmu og Guggu. Bjarndís. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Sálm. 10.14 biblian.is Þú gefur gaum að mæðu og böli og tekur það í hönd þér. Hinn bágstaddi felur þér málefni sitt, þér sem hjálpar munaðarlausum. Ástkær eiginmaður minn, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, RAGNAR HARALDSSON, Skálagerði 5, Akureyri, lést sunnudaginn 15. nóvember. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 30. nóvember klukkan 13:30. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir en athöfninni verður streymt á facebooksíðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar. Áslaug Magnúsdóttir Gunnar Pálsson Giti Chandra Arshia Eyrún Gunnarsdóttir Ashali Ásrún Gunnarsdóttir Sigurlaug Björnsdóttir Jóhannes Jónsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG KONRÁÐS JÓNASDÓTTIR, Laula, Aðalgötu 1, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 17. nóvember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 3. desember klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á https://www.facebook.com/groups/gudlaugk Ágúst Lúðvíksson Honey Lore Sales Jónas Lúðvíksson Bryndís Heimisdóttir Unnur K. Lúðvíksdóttir Elmar Ingibergsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar elskaði faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÚLFAR H. NATHANAELSSON kaupsýslumaður, frá Þingeyri við Dýrafjörð, lést á heimili sínu 4. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Líknarteymi HERU eru færðar hjartans þakkir fyrir einstaka umhyggju og alúð. Sigríður Ída Úlfarsdóttir Úlfhildur S. Úlfarsdóttir Marteinn St. Jónsson Ólöf Pálína Úlfarsdóttir Petrína Sæunn Úlfarsdóttir Eiríkur Jónsson Þorsteinn E. Úlfarsson Sandra K. Úlfarsson Ólafur Helgi Úlfarsson Anna J. Svavarsdóttir Erlingur Pétur Úlfarsson Lilja Kristín Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, TEITUR GYLFASON, Sæbólsbraut 17, Kópavogi, lést laugardaginn 21. nóvember á líknardeild Landspítalans. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Fjölskyldan vill þakka starfsfólki nýrnadeildar, krabbameinsdeildar, Heru og líknardeildar fyrir hlýju og góða umönnun. Soffía Friðbjörnsdóttir Gylfi Pálsson Embla Ýr Teitsdóttir Nanna Teitsdóttir Elmar Geir Unnsteinsson barnabörn Eiginkona mín, HELENA BJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Baddý, frá Landlyst í Vestmannaeyjum, til heimilis að Háaleitisbraut 25, er látin. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Arnar Sigurðsson frá Hellissandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.