Morgunblaðið - 28.11.2020, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 28.11.2020, Blaðsíða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is 71% SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. HÖRKUSPENNANDI MYND BYGGÐI Á SANNRI SÖGU. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SPLÚNKUNÝ GR ÍNMYND Nýju þjóðlögin Morgunblaðið/Eggert Blöndunartækni Ásgeir Ásgeirsson rennir íslenskum þjóðlögum í gegnum austræna síu. sem komu að mál- um þar. Árið eftir lá leiðin til Búlg- aríu og afrakst- urinn platan Tra- velling through Cultures. Auk Búlgara (Thrakia Ensemble m.a.) tóku þátt í gerð plötunnar tónlist- armenn frá Indlandi, Grikklandi og Austurríki. Það er Hamid Khansari sem sér um að stýra hljóðfæraleik- urum þessarar plötu en hún var tekin upp í Teheran, Istanbúl og á Íslandi. Það er enginn aukvisi sem sér um söng hér en Sigríður Thorlacius viðrar hæfileika sína líkt og á fyrri plötum. Einnig syngja þau Samin Ghorbani og Egill Ólafsson gesta- dúett í einu laganna og tíminn stóð eiginlega í stað þegar eyru þess sem þetta ritar nam undursamlega rödd Egils. Persneski vegslóðinn er fjöl- skrúðugur, flytjendur yfir fjörutíu talsins frá átta löndum; kór, aust- rænn strengjaoktett og fleira. Ferill Ásgeirs er um margt athyglisverður. Hann lék t.a.m. með Samúel J. Samúelssyni í Sælgætis- gerðinni en gerðist svo gítarleikari í Sóldögg sem reið röftum á sveitaböll- um landsins um nokkra hríð. Ásgeir fluttist svo til Hollands um tíma. Heimkominn hóf hann að leika með Páli Óskari og í hljómsveitinni Skuggamyndum frá Býsans sem hann stofnaði með Hauki Gröndal vini sínum. Þar er leikin grísk, make- dónsk, búlgörsk og tyrknesk tónlist og fræjum fyrir þetta verkefni því sáð. Frá fyrstu plötunni hefur eitt leitt af öðru eins og gerist. Borislav Zgurovski, sem nefndur er fyrr í greininni, er Búlgari og hann kynnti Ásgeir fyrir Hamid Khansari sem vélar um á þessari plötu. Eftir fimm daga dvöl hjá Hamid í Teheran var það handsalað að þriðja platan yrði gerð í Íran en Hamid rak í rogastans er hann fékk að hlýða á fyrsta diskinn í þjóðlagaþríleiknum. Og Ásgeir gefur áfram, því að í ár kom einnig út nótna- og kennslu- bók sem tekur yfir verkefnið allt. Fyrri hluti hennar inniheldur nótur og útsetningar en síðari hlutinn er kennslutækni sem Ásgeir hefur til- einkað sér í gegnum þetta magnaða ferðalag, auk upplýsinga um nótna- hugmyndir, skala og takta sem tíðk- ast þar eystra. Það er meira en að segja það að láta vaða í svona tilraunastarfsemi. Blöndun og samruni eru auðvitað jafn gömul manninum, stefnur og straum- ar verða auðvitað ekki til í tómarúmi. Það er engu að síður giska áhrifamik- ið að fylgjast með tónlistarmanni slá meðvitað saman þessum tiltölulega ólíku menningarheimum og leitast við að búa til eitthvað nýtt, einstakt og fallegt. » Blöndun og sam-runi eru auðvitað jafn gömul manninum, stefnur og straumar verða auðvitað ekki til í tómarúmi Ásgeir Ásgeirsson gaf út fyrir stuttu þriðju þjóðlagaplötu sína, Persian Path – Ice- landic Folksongs, Vol. 3, hvar íslenska þjóð- lagið er sett í nýjan og framandi búning. Hef- ur Ásgeir ferðast æ austar á bóginn vegna þessa metnaðarfulla verkefnis og er nýja platan tekin upp með írönskum tónlistar- mönnum. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Nýsköpunin og áræðið er al-gert hvað þetta verkefni Ás-geirs ræðir, að fara út í það að tengja íslenskar stemmur við aust- rænar og dírka upp form og hljóma sem ganga upp. Að hlusta á „Stóð ég úti í tunglsljósi“ með þessum hætti, þekkja melódíuna en heyra forláta slaggígjur frá Persíu flytja hana, er upplifun. Þetta er fimmta sólóplata Ásgeirs þegar allt er talið en þriðja platan í nokkurs konar þjóðlaga- þríleik. Undanfarinn áratug hefur Ásgeir numið og kynnt sér tónlist Austur-Evrópu og Mið-Austurlanda, farið á námskeið og sótt einkatíma í m.a. Búlgaríu, Grikklandi, Tyrklandi, Marokkó, Indlandi og Íran. Útsetj- arar ásamt Ásgeiri hafa verið þeir Yurdal Tokcan, Borislav Zgurovski og Hamid Khansari en fyrsta platan, Two sides of Europe, kom út fyrir þremur árum og voru það nokkrir af fremstu hljóðfæraleikurum Tyrkja Píanótríóið Tríó Vest heldur hálf- tímalanga tónleika í streymi á morgun, sunnudag, kl. 12.15. Tríóið skipa Áslaug Gunnarsdóttir á píanó, Sigríður Bjarney Baldvins- dóttir á fiðlu og Victoría Tarevsk- aia á selló. „Þær eru allar kennarar við Tónmenntaskóla Reykjavíkur og hafa leikið saman í ýmsum kammermúsíkhópum og hljóm- sveitum um árabil,“ segir í tilkynn- ingu. Á efnisskránni er Píanótríó Opus 17 eftir Clöru Schumann. Streymið fer fram á facebooksíðu Hannesarholts. Tríó Vest í streymi hjá Hannesarholti Kennarar Píanótríóið Tríó Vest. Hannesarholt býður upp á Syngjum saman í beinu streymi á morgun, sunnudag, kl. 14. Um söngstundina sjá að þessu sinni hjónin Valgerður Jónsdóttir tónmenntakennari og söngkona og Þórður Sævarsson gít- arleikari. „Þau hafa unnið saman í tónlistinni frá unglingsaldri, gefið út eigið efni og komið fram á ótal tónleikum og viðburðum á Íslandi, í Danmörku og fleiri löndum. Síðast- liðin tvö ár hafa þau starfað undir nafninu Travel Tunes Iceland við að kynna íslensk þjóðlög fyrir ferðafólki. Valgerður hefur stjórn- að fjölda söngstunda fyrir börn og fullorðna og stýrir þremur kórum á Akranesi, þar sem þau Þórður eru búsett.“ Streymið verður á face- booksíðu Hannesarholts. Syngjum saman í beinu streymi Hjón Þórður og Valgerður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.