Morgunblaðið - 28.11.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.11.2020, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í fyrsta sinn í gær að hann myndi rýma forsetaskrifstofuna og Hvíta húsið staðfesti kjörmanna- fundur Joe Biden sem sigurvegara bandarísku forsetakosninganna. Áfram kvartaði Trump þó sáran undan því sem hann kallaði „hag- rædd“ úrslit. Trump hefur freistað þess að fá úrslitum kosninganna breytt en þess eru engin dæmi í sögu kosninganna. Hann neitar enn að játa sig sigraðan og dreifir enn villandi kenningum um stolin atkvæði. Efndi hann til rúmlega 30 dómsmála en þeim var öllum hafnað eða vísað frá sem til- hæfulausum. Erfitt að kyngja ósigri Trump sagt fyrir svörum á blaða- mannafundi í fyrsta sinn frá kosn- ingunum 3. nóvember og virtist þá hafa færst nær því að sætta sig við tilhugsunina um að hann myndi ekki sitja annað kjörtímabil í Hvíta hús- inu. Biden verður svarinn inn sem 46. forseti Bandaríkjanna 20. janúar næstkomandi. „Vissulega geri ég það, og það veist þú,“ svaraði Trump spurningu blaðamanns um það hvort hann muni yfirgefa Hvíta húsið ef kjör- mennirnir staðfesta sigur Bidens. „En geri þeir það þá eru það mistök. Það verður afar erfitt að kyngja því að þurfa játa sig sigraðan. Ég held að margt eigi eftir að gerast frá í dag og fram til 20. janúar,“ sagði Trump. Kjörmannasamkoman sem úr- skurðar um nýjan forseta kemur saman 14. desember til að staðfesta sigur Bidens sem fékk 306 kjörmenn í kosningunum 3. nóvember en Trump 232. Kjörmennirnir fara nær ætíð að vilja kjósenda og greiða sitt atkvæði þeim frambjóðanda sem varð ofan á. Þeim er þó unnt hunsa vilja kjósenda en í þeim tilvikum sem það hefur verið gert breytti það engu um niðurstöðu kosninganna. „Kosningarnar voru svindl,“ sagði Trump aftur og án þess að rökstyðja það neitt á blaðamannafundinum sem fór fram rétt eftir að forsetinn hafði átt fjarfundi með fulltrúum bandaríska heraflans vegna þakkar- gjörðarhátíðarinnar. Hann lýsti uppbyggingu og skipulagi kosninga- kerfisins eins og „þetta væri þriðja heims ríki.“ Fyrr um daginn tísti Trump á samfélagsmiðlum að „þetta væru 100% hagræddar kosningar“. Biden hefur sagt að Bandaríkja- menn myndu ekki standa með til- raunum til að keyra kosningarnar af sporinu. Hvatti hann landsmenn sína til að sameinast í viðureigninni við kórónuveirufaraldurinn, sem gerðist umfangsmeiri og erfiðari við- ureignar með degi hverjum. Rúm- lega 260.000 manns hafa dáið af völdum kórónuveirunnar í Banda- ríkjunum og undanfarið hafa 2.000 manns á dag bæst í þann hóp. Engar sannanir Stuðningsmenn Trumps, sem er 74 ára, telja að með framkomu sinni sé hann að gefa til kynna að hann sé byrjaður að búa sig undir framboð í forsetakjörinu 2024. Meðal annarra samsæriskenninga forsetans er að kosningavélarnar hafi verið af ásettu ráði verið látnar eyða millj- ónum atkvæða sem greidd hefðu verið honum. Sérstök öryggisstofn- un kosninganna tók ekki undir það, heldur sagði að kosningarnar fyrir rúmum þremur vikum hafi verið þær „öruggustu í sögu Bandaríkj- anna“. Trump ráðgerði að fara til Georgíuríkis í dag og efna þar til fundar til styrktar tveimur fram- bjóðendum Repúblikanaflokksins vegna kosninga um tvö öldunga- deildarsæti 5. janúar nk. Niðurstaða þeirra ræður því hvor flokkurinn ráði öldungadeild Bandaríkjaþings. Trump segist rýma skrifstofuna  Segja Donald Trump Bandaríkjaforseta byrjaðan að búa sig undir framboð í forsetakjörinu árið 2024 AFP Bandaríkjaforseti Donald Trump lét sig ekki vanta á golfvöllinn í Sterling í Virginíuríki í gær. Hér hefur hann heimferð. Völlinn á Trump sjálfur. Harðneskju lögreglu var mótmælt í París í gær og um leið lögum sem banna eiga að taka og dreifa myndum af lögreglu að störfum þar sem þekkja má andlit laganna varða. „Ykkar vopn gegn myndavélum okkar,“ segir á skilti l.t.h. og á öðru er krafist afsagnar innanrík- isráðherrans Darmanin. Emmanuel Macron forseti sagði myndir af framgöngu lögregl- unnar gegn mótmælum um síðustu helgi hafa hneykslað sig og taka yrði hart á lög- reglumönnum sem létu kylfur dynja á þeldökk- um söngvara, Michel Zecler. AFP Mótmæla lögreglunni í París Íranskur kjarneðlisfræðingur, Mohsen Fakhriza- deh, lést af völdum sára sinna á spítala í borginni Absard við Teheran eftir að honum var sýnt morð- tilræði í útjaðri bæjarins í gær. Íranska varnar- málaráðuneytið sagði „vopnaða hryðjuverka- menn“ hafa veitt bifreið Fakhrizadeh fyrirsát og þar hefðu Ísraelar verið að verki. Fakhrizadeh er sagður hafa særst alvarlega er árásarmennirnir létu til skarar skríða en til vopn- aðs bardaga kom milli þeirra og öryggisvarða kjarneðlisfræðingsins. Íranska sjónvarpið sagði að Ísraelar hefðu löngum haft horn í síðu Fak- hrizadeh og Zarif utanríkisráðherra sagði „alvar- legar vísbendingar“ um aðild þeirra að tilræðinu. Íranska fréttastofan Tasnim og blaðið Fars, sem bæði tengjast írönskum öryggisstofnunum náið, sögðu að „sprengja hryðjuverkamanna“ hefði grandað bílnum og síðan hefði skothríð þeirra dunið á bifreiðinni. Fakhrizadeh var yfirmaður rannsóknar- og þró- unarstofnunar íranska varnarmálaráðuneytisins og sem slíkur einn helsti kjarnorkuvísindamaður Írana. Þar sem læknum hefði mistekist að lífga hann við hefði Fakhrizadeh dáið píslardauða, sagði í tilkynningu varnarmálaráðuneytisins. Mohsen Fakhrizadeh er sagður hafa farið fyrir rannsóknum þess efnis að smíða kjarnorkuvopn í Íran en því hafa yfirvöld í Teheran þráfaldlega neitað. Hann er almennt talinn vera „faðir“ kjarn- orkusprengjuáætlunar Írana. Hann var eðlisfræ- ðiprófessor við Imam Hussein-háskólann í Teher- an. Mohsen Fakhrizadeh er ekki fyrsti íranski kjarnorkuvísindamaðurinn sem veginn er í heima- landinu. Milli áranna 2010 og 2012 voru fjórir stall- bræður hans launmyrtir í Íran. Kenndu Íranar Ísraelum um að hafa verið þar að baki. Hvorki einstaklingur né samtök hafa lýst sprengjutilræðinu á hendur sér. Fakhrizadeh var á lista Sameinuðu þjóðanna yf- ir menn sem sættu alþjóðlegum refsingum og ferðabanni vegna athafna sinna. Mohammad Ja- vad Zarif, utanríkisráðherra Írans, fordæmdi árásina og sagði að um ekkert nema „ríkisrekið hryðjuverk“ hefði verið að ræða. Vestrænar leyniþjónustur eru á því að Fak- hrizadeh hafi stjórnað leynilegri kjarnorkuvopna- smíði Írana. „Velji Íran einhvern tímann að vopna- væðast [auðga úran] yrði litið á Fakhrizadeh sem föður írönsku kjarnorkusprengjunnar,“ sagði vestrænn stjórnarerindreki við Reuters-fréttstof- una árið 2014. Vesturveldunum stendur stuggur af kjarnorku- áætlun Írana sem eru sagðir hafa aukið auðgun úrans undanfarin misseri. Það er ómissandi hluti bæði í raforkuframleiðslu í friðsamlegum tilgangi og til smíði kjarnorkusprengju. Íranar eru sakaðir um að hafa safnað 12 sinnum meiri birgðum af auðguðu úrani en kjarnorkusamningur þeirra og Vesturlanda kveður á um. Þeir standa fastar en fótum á því að kjarnorkuáætlun þeirra einskorðist alfarið við friðsamlegan tilgang. agas@mbl.is Kjarneðlisfræðingur drepinn  Ísraelar hafi lengi haft horn í síðu hans  Sagður faðir kjarnorkuáætlunar Írans Norðmenn sam- þykktu í gær að framselja mann sem grunaður er um að tengjast tilræði sem kost- aði sex manns líf- ið í París 9. ágúst 1982. Ákvörðunin var tekin á sér- stökum ráðherrafundi norsku stjórnarinnar og er ekki unnt að áfrýja henni til dómstóla. Verður henni fullnægt innan tíu daga að sögn talskonu norsku leyniþjónust- unnar, PST. Walid Abdulrahman Abu Zayed er 61 árs gamall Palestínumaður og hlaut norskan ríkisborgararétt árið 1977. Frakkar hafa lengi grunað hann um að vera einn þeirra sem réðust á Jo Goldenberg-veitinga- húsið í gyðingahverfi Parísar. Auk sex sem biðu bana í árásinni særð- ust 22. Var skuldinni skellt á liðs- menn Abu Nidal-samtakanna, klofningshóps úr hinum herskáu Fatah-samtökum Palestínumanna. Abu Zayed hefur búið í Noregi frá 1991. Gengur hann þar undir nafn- inu Osman. Hefur hann haldið fram sakleysi sínu og kveðst hafa verið í Mónakó á árásardaginn. MEINTUR HRYÐJUVERKAMAÐUR Abu Zayed Norðmenn framselja Norskir embættismenn hafa kallað eftir aðstoð almennings við að upp- lýsa hvernig á mikilli kertavax- mengun í mynni Óslóarfjarðar stendur. Sömuleiðis er almenningur hvattur til að hreinsa paraffínvaxið hvíta. Rune Bergstrøm hjá norsku strandgæslunni segir að talið sé að vaxið komi úr báti, en engar til- kynningar hefðu þó borist um skipsskaða á sjó. Rannsóknir á vaxinu hafa leitt í ljós að hér sé um „hreint“ paraffín að ræða með lítt rokgjörnu efna- innihaldi, að sögn Bergstrøm. Pa- raffínvax er aðallega brúkað til kertaframleiðslu. „Jafnvel þótt ekki sé það beinlín- is eitrað þá er brýnt að hreinsa þetta upp úr sjónum. Paraffín er hægðalosandi og gæti því haft óheppilegar afleiðingar fyrir til dæmis börn, fugla og þar fram eftir götunum,“ sagði Bergstrøm í til- kynningu strandgæslunnar. agas@mbl.is NOREGUR Kertavax veldur heilabrotum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.