Morgunblaðið - 28.11.2020, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbæ
Þ
að ríkir spenna í Keflavík-
urkirkju nú þegar upp-
setningu nýs orgels er að
mestu lokið. Þegar
fréttaritari leit inn í vik-
unni var verið að fínstilla hljómana
og klára síðustu handtökin. Arnór
Vilbergsson organisti bíður spenntur
eftir að fá að prufukeyra „drottn-
inguna“ eins og hljóðfærið er kallað.
Það er ekki bara tignarlegt og
gullslegið nýja orgelið í Keflavík-
urkirkju, sem Björgvin Tómasson og
Margrét Erlingsdóttir hjá Org-
elsmiðju Björgvins Tómassonar hafa
sett upp í Keflavíkurkirkju, heldur
eru á því ýmsar nýjungar sem heyra
má að Arnór Vilbergsson organisti
tekur fagnandi.
„Fyrst er að nefna að þetta orgel
hefur fengið principal 8, en það
gamla var byggt á principal 4. Það
þýðir að hljómur hljóðfærisins hefur
aukist til muna en þessi rödd er
grunnrödd hljóðfærisins. Þá er ég
rosalega spenntur yfir því að vera
kominn með raddirnar gamba 8‘ og
vox coelestis 8‘, sem gefur hljóðfær-
inu himneskan blæ. Með þeim á ég
eftir að geta búið til óræða stemn-
ingu og þær henta líka sérstaklega
vel á kyrrðarstundum,“ segir Arnór.
Í bassaherberginu er að auki komin
16‘ fagottrödd sem ekki síður á eftir
að koma með skemmtilega nýbreytni
í spilamennskuna.
Ein af stóru viðbótunum er ekki
síður sú að aukaspilaborð hefur verið
sett upp framan við söfnuðinn svo
organistinn þarf ekki að vera fastur á
kirkjuloftinu við tónlistarflutning.
„Það skiptir miklu máli að geta setið
fyrir framan söfnuðinn þegar við á.
Ég sé fyrir mér tónleika þar sem ég
get haft tónlistarmennina hér við hlið
mér og notað þetta magnaða hljóð-
færi. Áður þurfti ég að nota píanó hér
niðri.“
Þá liggur Arnór ekki á þeirri
skoðun sinni að bluetooth-takkinn á
orgelinu sé algjör snilld og veltir fyr-
ir sér hvort þetta sé mögulega eina
orgelið með þennan möguleika.
„Nú get ég tengt orgelið beint
við spjaldtölvu og er því ekki lengur
háður nótum á blaði. Með nýja org-
elinu fer minnið jafnframt úr tveimur
í tæplega 800. Ég held að þær tölur
segi allt sem segja þarf um bylting-
una í þeim efnum,“ segir Arnór.
Drottningin býður prufukeyrslu
Nú kveður við nýjan tón í Keflavíkurkirkju eftir að
nýju og glæsilegu orgeli hefur verið komið þar fyrir.
Vinna við lokahandtökin stendur yfir og stutt í að
formleg vígsla fari fram.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Kirkjuorgel Drottningin er hin tignarlegasta. Gylling Sigmars Vilhelmssonar setur sterkan svip á umgjörðina á kirkjuloftinu.
Auka spilaborð Arnór Vilbergsson organisti við auka spilaborðið sem sett
var upp framan við söfnuðinn og gefur alveg nýja möguleika.
Betri viður Björgvin Tómasson orgelsmiður notaði gegn-
heila furu í nýju pípurnar en þær gömlu eru úr krossviði.
Nú þegar kófið stjórnar lífi okkar svo
mikið sem raun ber vitni er ekki úr
vegi að nýta tímann heima við til
skemmtilegrar samveru. Þá er nú
gaman að búa eitthvað til saman,
föndra fyrir jólin með börnunum, búa
til jólakort og merkimiða, jólaskraut,
jólagjafir og svo mætti lengi telja.
Fátt er meira gefandi og gleðjandi en
að skapa eitthvað saman, svo er það
líka svo róandi. Til að fá hugmyndir
getur verið gott að gramsa í net-
heimum því þar eru margar vefsíður
yfirfullar af alls konar og góðum leið-
beiningum. Ein þeirra er: 101craft-
ideas.com en þar eru heldur betur
skemmtilegar einfaldar hugmyndir,
meðal annars hvernig búa má til
jólatré úr þvottaklemmum. Önnur
síða: thebestideasforkids.com, ein-
beitir sér að endurvinnslu, þar er
sýnt hvernig búa má til alls konar úr
klósettrúllum, eggjabökkum, íspinna-
prikum og fleiru. Á vefsíðunni beep-
andbob.com eru nákvæmar leiðbein-
ingar um hvernig gera má jólastjörnu
úr pappír. Á vefsíðunni craftymorn-
ing.com er sýnt hvernig búa má til
hreindýr og fleira. Um að gera að
skoða saman og láta vaða.
Margar góðar vefsíður eru með góðum leiðbeiningum
Nú er lag að föndra saman fyrir
jólin með börnunum í rökkurró
Morgunblaðið/Ásdís
Flott Þessar tvær voru að perla jólaskraut fyrir 14 árum í Snælandsskóla.