Morgunblaðið - 28.11.2020, Síða 36

Morgunblaðið - 28.11.2020, Síða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 ✝ Gróa Guð-munda Björns- dóttir, fiskverkandi og húsmóðir, fædd- ist í Neðrihúsum í Hestþorpi, Önund- arfirði, 27. desem- ber 1926. Hún lést 10. nóvember 2020 á hjúkrunarheim- ilinu Sólvöllum á Eyrarbakka úr Co- vid-19. Foreldrar Gróu: Guðmundína Jónsdóttir, f. 10. október 1893, d. 1. júní 1982, og Guðbjartur Björn Hjálmarsson, f. 31. júlí 1900, d. 21. ágúst 1974. Systkin sammæðra Gróu: Stúlka, f. 29. júlí 1913, d. 23. september 1913, Jón Vilhjálmur á Hólmavík, f. 6. júlí 1915, d. 4. maí 1983, og Guðmunda Krist- jana Petrína á Ísafirði, f. 1. jan- úar 1917, d. 22. nóvember 1985, öll Sigurðarbörn. Samfeðra Gróu: Guðbjörg Jó- hanna á Ísafirði, f. 19. október 1956, og Hjálmar Steinþór á Ísafirði, f. 14. október 1959, d. 22. júní 2003. Afi og amma í móðurætt: Gróa Jóhannesdóttir, f. 20. ágúst 1859, d. 19. desember 1947, og Jón Guðmundsson, f. 4. desember 1836, d. 26. júní 1917. Afi og amma í föðurætt: Guð- björg Björnsdóttir, f. 13. maí 1869, d. 3. nóvember 1950, og Hjálmar Guðmundsson, f. 18. maí 1866, d. 26. maí 1931. Eiginmaður Gróu var Har- aldur Jónsson frá Görðum í Ön- undarfirði, skipstjóri og fisk- verkandi, f. 30. september 1924, d. 20. október 1988. Börn Gróu og Haraldar: 1) Guðmundur Björn, f. 25. desem- ber 1953, d. 28. maí 1995. Sam- býliskona Gróa Kristín Helga- Dögg Gísladóttir, f. 26. mars 1986. Börn: Hrafntinna, f. 31. desember 2013, Eva Móey, f. 16. september 2019. 2. Sif Magnúsdóttir, f. 30. ágúst 1986, d. 25 ágúst 2004. 3. Helgi Magnússon, f. 30. ágúst 1986. 4. Margrét Alda Magnúsdóttir, f. 5. mars 1990. Sambýlismaður Andri Þór Árnason, f. 8. maí 1980. Dóttir hans Bríet Eva, f. 14. mars 2011. 5. Bergljót Ásta Pétursdóttir, f. 27. september 2001. Sambýliskona Hugrún Pálsdóttir, f. 20. maí 1997. 6) Hinrik Rúnar, f. 19. ágúst 1966, d. 9. apríl 2016. Eiginkona El- ínbjörg Katrín Þorvarðardóttir, f. 19. september 1970. Börn: 1. Gróa, f. 17. ágúst 2002. 2. Elín, f. 17. mars 2008. 3. Þorvarður, f. 6. febrúar 2009. Gróa ólst upp á Mosvöllum í Önundarfirði hjá ömmu sinni og afa, Guðbjörgu og Hjálmari. Hún var í barnaskóla í sveit Ön- undarfjarðar. Gróa fór veturinn 1944-45 í Héraðsskólann á Laugarvatni og í Húsmæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði veturinn 1948-49. Gróa og Haraldur bjuggu all- an sinn búskap á Grundarstíg 1 á Flateyri ásamt því að búa á Görðum í Önundarfirði. Þar voru þau með útgerðaraðstöðu og fiskvinnslu. Gróa var gjaldkeri slysa- varnadeildarinnar Sæljóss á Flateyri um árabil. Hún bjó á Flateyri til 1. sept- ember 2013 að hún flutti í íbúð eldriborgara á Hlíf I á Ísafirði. Gróa flutti á hjúkrunarheimilið Sólvelli á Eyrarbakka 29. júlí 2020. Þar lést hún 10. nóv- ember. Útför Gróu fór fram í kyrr- þey að hennar ósk í Víðistaða- kirkju í Hafnarfirði 17. nóv- ember 2020 og var jarðsett í Flateyrarkirkjugarði 19. nóv- ember 2020. dóttir, f. 2. janúar 1952. 2) Guðbjörg Kristín, f. 3. júlí 1955, d. 2. ágúst 2020. Eiginmaður Hjálmar Sigurðs- son, f. 3. maí 1945. Börn: 1. Sigurður Jóhann, f. 7. júlí 1979, unnusta Tiffany Geda- langa, f. 2. apríl 1978. Dóttir: Ísa- bella Líf, f. 1. október 2019. 2. Haraldur, f. 28. nóvember 1980. 3. Ragnheiður Karítas, f. 8. maí 1987, unnusti Hilmar Guðlaugsson, f. 28. júlí 1980. 3) Jóna Guðrún, f. 22. nóvember 1956. Eiginmaður Björn Ingi Bjarnason, f. 7. júlí 1953. Börn: 1. Júlía Bjarney, f. 29. mars 1979. Eiginmaður Þórir Ingv- arsson, f. 6. febrúar 1982. 2. Inga Rún, f. 19. september 1980. Eiginmaður Bragi Ólafs- son, f. 12. febrúar 1981. Börn: Ólafur, f. 12. janúar 2009, Björn Ingi, f. 25. september 2011, Lilja, f. 18. desember 2013. 3. Víðir, f. 6. júní 1988. Sambýliskona Embla Rún Gunnarsdóttir, f. 31. maí 1993. 4) Gunnhildur Halla, f. 29. mars 1958, d. 19. ágúst 2011. Dóttir: Kristrún Una Thorodd- sen, f. 22. janúar 1987. Faðir Guðmundur Kristinn Thorodd- sen, f. 26. nóvember 1962. Eig- inmaður Kristján Hafliðason, f. 16. nóvember 1984. Börn: Tristan Berg Arason, f. 6. des- ember 2008, Alexander, f. 3. júní 2012, Gunnhildur Björk, f. 5. október 2015. 5) Gróa Guð- munda, f. 25. ágúst 1961. Eig- inmaður Pétur Björnsson, f. 13. nóvember 1964. Börn: 1. Georg Rúnar Ragnarsson, f. 2. febr- úar 1982. Eiginkona Kamma Gróa ólst upp á Mosvöllum í Önundarfirði hjá ömmu sinni og afa, Guðbjörgu og Hjálmari. Hún var í barnaskóla í sveit Ön- undarfjarðar eins og háttur var þess tíma. Búið á öllum bæjum og mörg börn í sveitinni. Sam- gangur mikill og mynduðust sterk vináttubönd sem héldu ævilangt. Gróa fór veturinn 1944-45 í Héraðsskólann á Laugarvatni. Fleiri úr Önundarfirði fóru að Laugarvatni þann vetur og rifj- aði hún oft upp þessa tíma og ræktaði vel vináttutengslin við skólafélagana. Þá fór Gróa í Húsmæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði veturinn 1948-49 og var sá vetur einnig mjög kær henni í minningunni. Þar lærði hún vel til verka en auk þess bjó hún að því sem amma hennar hafði kennt henni auk þeirrar næmni sem henni var gefin í vöggugjöf. Gróa og Haraldur bjuggu all- an sinn búskap á Grundarstíg 1 á Flateyri ásamt því að búa á Görðum öll sumur í tvo áratugi. Þar voru þau með útgerðarað- stöðu og fiskvinnslu. Veiddu og verkuðu grásleppu og rauðmaga, harðfisk og hákarl. Allt unnið af miklum myndarskap. Gróa var húsmóðir á stóru heimili þar sem mjög gestkvæmt var, bæði á Grundarstígnum og Görðum, enda fátt skemmtilegra í þeirra tilveru en að taka á móti gestum af þjóðlegri reisn. Gróa var virk í félagsstörfum. Hún var gjaldkeri slysavarna- deildarinnar Sæljóss á Flateyri um árabil og öll árin í stjórn með sínum góðu vinkonum Júl- íönu Jónsdóttur og Kristínu Guðmundsdóttur. Gróa var gullfalleg kona, bros- og hláturmild. Hún átti gott með að sjá broslegu hlið- arnar á lífinu og var ánægjulegt og kærleiksríkt að verða henni samferða í gegnum lífið. Gróa bjó yfir þeirri gjöf að geta hlust- að af skilningi og dýpt, dóm- harka var víðs fjarri hennar huga. Gróa kunni ógrynni ljóða og þau Guðmundur Ingi Kristjáns- son skáld á Kirkjubóli náðu vel saman í andanum. Orti hann mörg ljóð til vinkonu sinnar og vaknaði eitt þeirra vordag í kaffispjalli á Mosvöllum er Guð- björg fóstursystir hennar leit upp í hlíðina og sagði: Þegar hlíðin fer að gróa, Gróa. Gróa var jarðsett í Flateyr- arkirkjugarði 19. nóvember 2020. Þann dag voru nákvæm- lega 70 ár frá því að Guðmundur Ingi færði Gróu ljóðið, sem hljóðar svo: Þegar hlíðin fer að gróa, Gróa, gróa lífsins blóm. Æskan finnur út um holt og móa enn sinn helgidóm. Gleym-mér-ei er blá í lautarbarði, brönugrös um hól. Varablóm í hlýjum húsagarði hlær við morgunsól. Sjáðu, hvernig hlíðarlindin létta leikur tær og hrein meðan grænir burknar byrja að spretta bak við urðarstein. Undan vetri lambagrasið lifir ljóst við holtið autt. Blóðberg sérðu breiðast grjótið yfir brúnt og hjartarautt. Sjáðu, hvernig holtasóley breiðir hvítu blöðin út meðan döggvot dúnurt hugann seiðir dul og niðurlút. Sjáðu, hvernig fjólan ung og feimin fer í bláan kjól meðan ein á bungu, björt og dreymin brosir melasól. Sjáðu, hvernig dropi á mosadýi dýra speglar mynd. Það er eins og ævintýri stígi upp úr hverri lind. Vorið opnar út um holt og móa enn sinn leyndardóm. Þegar hlíðin fer að gróa, Gróa, gróa lífsins blóm. Hvíl í friði elsku móðir og tengdamóðir. Jóna Guðrún Haraldsdóttir, Björn Ingi Bjarnason. Elsku Gróa amma. Á meðan ég sit hér á Ísafirði að skrifa nokkrar aumar minningarlínur um þig segir Andri Snær Magnason í viðtali á Rás 1: Get- ur markmið okkar í lífinu ekki bara verið pönnukökur með ömmu? Hann er að fjalla um bókina sína, Um tímann og vatnið. Við lásum einmitt Um tímann og vatnið saman síðastliðinn vet- ur. Við fórum þá í tímaleikinn sem Andri Snær kynnir í bók- inni: Þú fæddist árið 1926. Þú ólst upp hjá Guðbjörgu ömmu þinni sem fæddist árið 1868 og var þér svo kær. Þú varst nýbú- in að hitta barnabarnabarn þitt sem fæddist haustið 2019 og verður þá 93 ára árið 2112. Ímyndið ykkur tímann sem þú teng(d)ir saman! Við lásum mikið saman. Og drukkum gott kaffi yfir inni- haldsríku daglegu spjalli síðast- liðna þrjá vetur á Ísafirði. Ég rifja upp samtal okkar frá því í lok mars þegar veiran var að leggjast yfir landið. Við grun- lausar um framtíðina eins og gengur. Ég spyr: Hvað finnst þér um þessa kórónuveiru? Þú svarar: Ég hugsa nú lítið um hana. Ég er ekki hrædd. Ég er komin á aldur þótt ég fái hana. Tími til að sofna. Auðvitað er þetta ekkert skemmtilegt, það er ekki glæsi- legt að vita af þessu helv… Svo fórstu með vísu: Ljósið er dáið og landið er svart. Í loftinu er ekkert að hanga á. Mér finnst í sannleika helvíti hart, að hafa ekki jörð til að ganga á. Síðan þagðir þú í stutta stund og raulaðir svo vísuna aftur. Hlóst dátt, sagðir þetta vera heimatilbúið lag og vísaðir í Þór- berg Þórðarson. Baðst mig síð- an að segja eitthvað skemmti- legt. Þannig varst þú, alltaf létt og brosmild, kunnir ógrynni ljóða og áttir vísu við hvert tækifæri. Djúpvitur og húmoristi af óþekktri sort. Fyrsta bókin sem ég les eftir að þú ert dáin er Dýralíf eftir Auði Övu. Hún er um samband rúmlega fertugrar konu og frænku hennar, ömmusystur, sem lést 93 ára. Sagan er um ljósið og myrkrið, um undirliggj- andi vá, og grimmasta dýrið: Manninn. Höfundur segir í við- tali um bókina tilgang okkar, mannsins, kannski vera að vera glöð og elska. Við hefðum haft ánægju af að lesa Dýralíf saman og hlegið af því að þú varst 93 ára og ég rúmlega fertug. Þú fannst ung tilganginn í líf- inu – að vera glöð og kærleiks- rík, vera lítillát og æðrulaus, vera góð móðir, vera sannur vin- ur og jafningi. Að drekka gott kaffi með kleinum og glöðu fólki. Að lesa. Ég ætla að fá að herma eftir þér. Fá mér dagatal eins og þú reifst af á hverjum morgni og lesa um leið, eins og þú, af handskrifaða miðanum sem hékk fyrir neðan dagatalið og á stóð: „Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt.“ Þú byrjaðir nefnilega alla daga á því að brosa, líka í gegnum tárin. Elsku Gróa amma, ljósið er dáið og landið er svart. Megi lífsbirta þín lifa og þú hvíla í friði. Takk fyrir kaffið. Þín Júlía Björnsdóttir. Það var fyrstu daga haustsins sem við keyrðum Þrengsli á leið okkar að Sólvöllum, dvalarheim- ili á Eyrabakka í heimsókn til Gróu. Hún var þá komin hingað suður frá Hlíf á Ísafirði og leiðin til hennar miklu styttri núna. Okkur óraði þá ekki fyrir að Gróa Björnsdóttir Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GRÓA GUÐMUNDA BJÖRNSDÓTTIR frá Flateyri, lést úr Covid-19 á hjúkrunarheimilinu Sólvöllum á Eyrarbakka þriðjudaginn 10. nóvember. Útför fór fram í kyrrþey frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þriðjudaginn 17. nóvember. Jarðsett var í Flateyrarkirkjugarði 19. nóvember. Jóna Guðrún Haraldsdóttir Björn Ingi Bjarnason Gróa Guðmunda Haraldsd. Pétur Björnsson Hjálmar Sigurðsson Elínbjörg Katrín Þorvarðard. barnabörn og barnabarnabörn Ástkær systir okkar, mágkona og frænka, JÓHANNA Ó. JÓNSDÓTTIR frá Hjörsey, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 23. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 2. desember klukkan 11 að viðstöddum nánustu aðstandendum. Ólafur Jónsson Jóhanna Bruvik Ingigerður Jónsdóttir Guðrún Sigríður Jónsdóttir Særún Stefánsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG ÓSKARSDÓTTIR frá Brú í Biskupstungum, síðast til heimilis í Álftamýri 30, Reykjavík, lést þriðjudaginn 24. nóvember á hjúkrunarheimilinu Eir. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 4. desember klukkan 15 að viðstöddum nánustu ættingjum. Athöfninni verður streymt á www.sonik.is/ingibjorg Sérstakar þakkir fær starfsfólk á 3. hæð suður á hjúkrunarheimilinu Eir. Sigrún Bjarnadóttir Karl K. Bjarnason Elín Jónsdóttir Bjarni E. Bjarnason Guðlaug M. Valdemarsdóttir Gunnar Þ. Möller Eiður Valdemarsson Bjarnveig S. Jakobsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGURLAUG PÁLSDÓTTIR, Dúa, Laugatúni 11, Sauðárkróki, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Sauðárkróki, sunnudaginn 22. nóvember. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðrún Sighvatsdóttir Ásgrímur Sigurbjörnsson Páll Sighvatsson Margrét Grétarsdóttir Gunnlaugur Sighvatsson Elín Gróa Karlsdóttir og barnabörn Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, ÞÓRUNN LOVÍSA ÍSLEIFSDÓTTIR, lést á Landspítala við Hringbraut fimmtudaginn 19. nóvember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 3. desember klukkan 13. Vegna aðstæðna verða aðeins nánasta fjölskylda og vinir viðstödd útförina. Hægt verður að nálgast streymi á: mbl.is/andlat Ottó R. Jónsson Arnar Páll Ottósson Hafdís Jónsdóttir Ásta Pálmey Ottósdóttir Arnar Aðalgeirsson Alex Ingi Arnarsson Lovísa Mist Arnarsdóttir Ísleifur Marz Bergsteinsson Andrea Þórðardóttir Gunnar Örn Ísleifsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.