Morgunblaðið - 28.11.2020, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.11.2020, Blaðsíða 47
KÖRFUBOLTI Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í körfu- knattleik mætir liði Kósóvó í for- keppni HM í dag. Leikurinn, sem hefst klukkan 15, er mikilvægur fyr- ir bæði lið enda eru þrjú lið af fjór- um í B-riðlinum jöfn með 5 stig og komast tvö þeirra áfram í næstu umferð undankeppninnar. Tryggvi Snær Hlinason, miðherji landsliðsins, er spenntur fyrir leikn- um. „Leikurinn leggst vel í mig. Við áttum ágætisleik síðast gegn Lúx- emborg,“ sagði Tryggvi í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði liðið vilja hefna fyrir naumt 78:80 tap gegn Kósóvó í fyrri leik liðanna í febrúar síðastliðnum. „Við spiluðum við Kósóvó fyrr árinu og töpuðum þar með tveimur stig- um þannig að við þekkjum þá og vitum hvað við þurfum að gera.“ „Við viljum hefna fyrir þetta tap, sérstaklega upp á sálina að gera. En við tökum bara á þessum leik eins og þeim síðasta gegn Lúx- emborg. Við ætlum einfaldlega að vinna þessa leiki okkar. Þetta eru bara fjögur lið og sex leikir þannig að hver leikur er mjög mikilvægur,“ bætti Tryggvi við. Á fimmtudaginn sigraði íslenska liðið Lúxemborg með 90 stigum gegn 76. Tryggvi skoraði 17 stig í leiknum, þar af 16 í síðari hálfleik. „Fyrri hálfleikur var ekkert mjög flottur hjá okkur en við sýndum í síðari hálfleik hvað við getum gert og þar var ég í fararbroddi í raun- inni. Við hefðum þurft að byrja bet- ur en það er bara eðlilegt eftir lang- an tíma í sundur, að koma okkur aftur saman. Í lokin leit þetta mjög vel út hjá okkur. Eftir þennan leik á fimmtudaginn held ég að við séum svolítið að setja okkur aftur saman og koma okkur í þann farveg sem við viljum vera í, þar sem við spilum okkar bolta. Þannig að mér líst mjög vel á þetta,“ sagði Tryggvi einnig. Kom mér á óvart Sjö af 12 leikmönnum landsliðsins spila með liðum hér á landi og hafa því ekkert æft né spilað með liðum sínum síðan í byrjun október. Leik- mennirnir sjö fengu þó að æfa í nokkra daga í Smáranum í Kópa- vogi áður en þeir flugu út til Slóvak- íu fyrir viku síðan, þar sem lands- liðið dvelst í „búbblu.“ Tryggvi segir það hafa ekki háð þessum leik- mönnum. „Mér líður eins og leik- menn hafi komið nokkuð flottir út úr þessu. Manni leið náttúrulega pínulítið illa að vita að þeir væru ekki búnir að æfa mikið en það kom mér á óvart hvað allir voru mjög vel settir. Það var ekkert sem maður gat tekið eftir að væri í ólagi, sem maður reiknaði kannski ekki alveg með. Þannig að það er bara allt gott þar.“ Skandall að fá ekki heimaleiki Tryggvi segist ekki átta sig á því af hverju íslenska landsliðið hafi ekki fengið að spila leikina tvo heima, en leikirnir gegn Lúxemborg og Kósóvó áttu báðir að vera heima- leikir. Í stað þess var liðinu gert að fljúga til Slóvakíu, þar sem leik- menn og starfslið dvelja í „búbblu“. „Það er náttúrulega algjör skand- all að missa af því að vera heima en svona er staðan í dag. Sérstaklega fyrir okkur strákana sem eru úti. Það hefði verið magnað að geta komið heim, spila leikina þar og hitta fjölskyldur okkar,“ sagði hann. Allt eins hefði verið hægt að hafa „búbbluna“ á Íslandi. „Mér finnst alveg eins gáfulegt að hafa þessa „búbblu“ heima eins og hér í Sló- vakíu. Að hafa hana á sama hátt og er hér, þar sem má ekki fara af hót- elinu. En það er bara eins og það er,“ sagði Tryggvi að lokum. Ljósmynd/KKÍ/Jónas Drjúgur Tryggvi Snær Hlinason í leik gegn Slóvakíu fyrr á árinu. Hver leikur er mikilvægur  Ísland mætir Kósóvó í dag  Þrjú lið jöfn í riðlinum  Eiga harma að hefna ÍÞRÓTTIR 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 Samstarfsmaður minn sem ekki vill láta nafn síns getið, og við skulum bara kalla Björn, benti mér á í vikunni að George Best og Diego Armando Mara- dona ættu sama dánardag. Mér fannst þetta svo undarleg tilhugsun að ég hef ekki getað losað mig alveg við hana. Þannig er því stundum farið þegar Björn gaukar að manni fróðleiks- molum. Fimmtán ár eru frá því Best lést eftir veikindi en hann var 59 ára gamall. Ári yngri en Maradona var þegar hann lést. Það er svo margt hliðstætt varðandi þessa breysku menn sem höfðu óhemjumikla hæfi- leika þegar kom að alla vega einu atriði í lífinu. Að leika knatt- spyrnu og gerðu það á skemmti- legri hátt en 99% þeirra sem leggja stund á íþróttina. Hvorugan sá ég spila „live“ en hef séð mikið efni með þeim báðum með hjálp undratækja eins og myndbandstækja eða hins háæruverðuga internets. Það er nú bara mér sjálfum að kenna hversu mikið ég hef horft á þessa menn leika knattspyrnu. Er fylgifiskur þessa nördisma sem maður hefur burðast með. Báðir höfðu þeir afburðatækni og þrátt fyrir þá þróun sem orðið hefur varðandi aðstöðu íþrótta- fólks og búnað þá geta fáir stát- að af sömu tilfinningu fyrir tuðr- unni og þessir höfðu. Ef lesendur gera sér ferð inn á Youtube til að horfa á einleiksmark Maradona gegn Englandi, ættu þeir í leið- inni að fletta upp einleiksmark- inu sem Best skoraði í Bandaríkj- unum á „gamals aldri“. Báðir voru þeir litríkir utan vall- ar og tóku skemmtanalífið mjög alvarlega. Best var reyndar iðu- lega líst sem mjög feimnum manni að eðlisfari. Ég hef efa- semdir um að slík lýsing hafi átt við um Maradona. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Íslandsmeistari úr Keili, er úr leik eftir 36 hol- ur á lokamóti Evrópumótarað- arinnar í golfi. Mótið fer fram á Real Club de Gua- dalmina- vellinum sem er nærri Gíbraltar og Malaga. Guðrún lék fyrstu tvo hringina á 76 og 77 höggum. Lék hún sam- tals á níu höggum yfir pari. Að- stæður virðast vera erfiðar því skorið er hátt og var Guðrún að- eins tveimur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. 96 kylfingar fengu keppnisrétt á mótinu og hafnaði Guðrún í 70. sæti. Fyrir mótið var Guðrún Brá er í 125. sæti á styrkleikalista LET Evrópumótaraðarinnar og hafði hún upp um rúmlega 20 sæti í síðustu viku. Guðrún náði sínum besta ár- angri á mótaröðinni á árinu á móti í Sádí Arabíu um daginn. Þar endaði hún í 39. sæti. Valdís Þóra Jónsdóttir er einn- ig með keppnisrétt á mótaröðinni en er frá keppni vegna meiðsla. Komst ekki áfram á lokamótinu Guðrún Brá Björgvinsdóttir Íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu er í 46. sæti á nýjum heims- lista FIFA, Alþjóðaknattspyrnu- sambandsins, en listinn var birtur í gærmorgun. Karlalandsliðið fellur um sjö sæti frá því í október en liðið er í 27. sæti á meðal Evrópuþjóða. Styrkleikalisti FIFA hefur oft verið gagnrýndur þar sem ekki þyk- ir öllum hann gefa nógu nákvæma mynd af styrk landsliðanna á hverj- um tíma. Í þetta sinn skiptir listinn miklu máli. Þessi niðurstaða þýðir að Ísland verður í þriðja styrk- leikaflokki þegar dregið verður í undankeppni HM 2022 í Zürich í Sviss 7. desember en 55 þjóðum Evr- ópu er raðað í sex styrkleikaflokka fyrir dráttinn út frá FIFA-listanum. Frá því í október hefur Ísland mætt Ungverjalandi, Danmörku og Englandi en liðið tapaði öllum þrem- ur leikjunum. Tapið gegn Ungverjum var í úr- slitum umspils um laust sæti á EM á meðan töpin gegn Danmörku og Englandi voru í Þjóðadeild UEFA. Íslenska liðið gæti því fengið ansi strembinn riðil í undankeppni HM en Belgía, Frakkland, England, Portúgal, Spánn, Ítalía, Króatía, Danmörk, Þýskaland og Holland eru í styrkleikaflokki 1. Sviss, Wales, Pólland, Svíþjóð, Austurríki, Úkraína, Serbía, Tyrk- land, Slóvakía og Rúmenía eru í styrkleikaflokki 2. Ísland er svo í styrkleikaflokki 3 ásamt Rússlandi, Ungverjalandi, Ír- landi, Tékklandi, Noregi, Norður- Írlandi, Skotlandi, Grikklandi og Finnlandi. Í fjórða flokki eru Bosnía, Slóven- ía, Svartfjallaland, Norður- Makedónía, Albanía, Búlgaría, Ísr- ael, Hvíta-Rússland, Georgía og Lúxemborg. Í fimmta flokki eru Armenía, Kýp- ur, Færeyjar, Aserbaídsjan, Eist- land, Kósóvó, Kasakstan, Litháen, Lettland og Andorra. Í sjötta flokki eru Malta, Moldóva, Liechtenstein, Gíbraltar og San Marínó. Undanriðlar HM verða tíu talsins og í hverjum riðli verður eitt lið úr hverjum styrkleikaflokki frá eitt til fimm. Í fimm riðlum verða síðan sex lið og þar bætist við eitt lið úr sjötta flokki. Sigurvegarar riðlanna tíu komast beint á HM 2022 í Katar. Liðin tíu sem enda í öðru sæti fara síðan í um- spil ásamt tveimur liðum sem unnu sína riðla í Þjóðadeild UEFA en komast ekki beint á HM eða í um- spilið í gegnum undankeppnina. Þrír sigurvegarar í umspilsriðlunum fá þrjú síðustu sæti Evrópu á HM 2022. sport@mbl.is Ísland í 3. styrkleikaflokki  Dregið til undankeppni HM í knattspyrnu eftir rúma viku Morgunblaðið/Eggert Fyrirliðinn Aron Einar og hans menn eru í 3. styrkleikaflokki. Þríþrautarkonan Guðlaug Edda Hannesdóttir tilkynnti á Instagram í gær að hún sé á leiðinni til Banda- ríkjanna og muni verða þar við æf- ingar næstu mánuðina. Miðað við stöðuna á ólympíulistanum í þrí- þraut á Guðlaug Edda ágæta mögu- leika á að komast á leikana í Tókýó á næsta ári. Hún leggur allt kapp á að komast á leikana og segist hafa unnið að því síðustu mánuði að fá tilskilin leyfi í Bandaríkjunum til að geta æft hjá þjálfara sínum sem er bandarískur. Eftir nokkur nei hafi hún loks fengið já. kris@mbl.is Heldur vestur um haf til æfinga Morgunblaðið/Árni Sæberg Bandaríkin Guðlaug Edda fer utan og verður næstu mánuðina. Franska stórliðið París SG hafði áhuga á því að fá íslenska landsliðs- manninn Janus Daða Smárason til liðs við sig á dögunum en Hand- bolti.is sem greindi frá þessu og hafði eftir Stuttgarter-Zeitung. Janus Daði er samningsbundinn Göppingen í Þýskalandi og þýska félagið var ekki tilbúið að sleppa leikmanninnum sem gekk til liðs við Göppingen frá Aalborg síðasta sumar. Janus er samningsbundinn Göppingen til sumarsins 2022 en PSG ákvað að fá Hollendinginn Luc Steins til liðs við sig. Stórliðið reyndi að fá Janus Leikstjórnandi Janus Daði var í sigtinu hjá París St. Germain.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.