Morgunblaðið - 14.12.2020, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2020
ERT ÞÚ Í BYGGINGARHUGLEIÐINGUM?
VIÐ FRAMLEIÐUM EINNIG
Smáhýsi
Gestahús
Parhús
Raðhús
Sérbýlishús
Módula
Þaksperrur
Sökkla
www.huseining.is
sala@huseining.is
s: 686-8680
Verð frá 113.400 kr. pr/m²
Einbýlishús
Húseining býður upp á einstök og falleg einingarhús
sem hönnuð og framleidd eru á Íslandi fyrir íslenskar
aðstæður.
Sumarhús
Verð frá 135.800 kr. pr/m²
Alls greindust sjö kórónuveirusmit
innanlands á laugardag og fimm á
föstudag. Voru allir nema tveir í
sóttkví við greiningu. Virkum smit-
um hefur fækkað síðastliðna daga og
eru þau nú 163, en nýgengi smita er
37,4 innanlands. Er nýgengið hvergi
lægra í Evrópu, en næsta land á eftir
er Írland með 78. Hæst er nýgengið
í Króatíu og Lúxemborg, rétt innan
við 1.200.
Sýnatökum á landamærum hefur
fjölgað ört undanfarna daga, enda
margir Íslendingar búsettir erlendis
sem sækja heim um jólin. Tekin voru
912 sýni í landamæraskimun (fyrri
og seinni) á laugardag og hafa ekki
verið fleiri á einum degi frá því í
september. Fimm þeirra greindust
með veiruna en beðið er niðurstaðna
úr mótefnamælingu. Farþegar sem
koma til landsins fara í skimun við
komuna, því næst í 5-6 daga sóttkví
og loks aðra skimun. Eru nú 1.622 í
slíkri sóttkví, en 347 í venjulegri
sóttkví.
Heilu landshlutarnir án smits
Faraldurinn er sem fyrr í mestri
útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu,
Suðurlandi og Suðurnesjum. Á
höfuðborgarsvæðinu eru 118 virk
smit og 252 í sóttkví, á Suðurnesjum
23 virk smit og 58 í sóttkví og á Suð-
urlandi eru 11 virk smit og 20 í
sóttkví. Utan þessara landshluta eru
aðeins átta smit, þar af sjö á Vestur-
landi og eitt á Norðurlandi vestra.
Á Vestfjörðum, Austurlandi og
Norðurlandi eystra eru engin virk
smit og enginn í sóttkví.
Þrátt fyrir það er „alvarlegt
ástand“ skilgreint í öllum lands-
hlutum, samkvæmt viðvörunarkerfi
almannavarna sem tekið var í notk-
un í síðustu viku.
Flestir í sóttkví við greiningu
Morgunblaðið/Eggert
Veira Fáir greinast utan sóttkvíar.
Sjö smit á laugardag Nýgengi á Íslandi enn lægst í
Evrópu Ekki fleiri sýni á landamærum síðan í september
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Bílaleigum verður veittur afsláttur af
vörugjöldum árin 2021 og 2022 sam-
kvæmt breytingartillögu meirihluta
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis við svokallaðan bandorm, sem
lögð var fram um helgina.
Lækkunin er á þá leið að skráð los-
un koltvísýrings
verður lækkuð
um 30% áður en
til álagningar
vörugjalds kemur
– þ.e. greidd
verða vörugjöld
líkt og koltvísýr-
ingsútblástur sé
30% minni en
hann er í raun.
Afslátturinn er
háður þeim skil-
yrðum að tiltekið
hlutfall nýskráðra
bíla, 15% árið
2021 og 25% árið
2022, séu vist-
vænir, þ.e. raf-
magns-, vetnis-
eða tengiltvinn-
bílar.
Óli Björn Kára-
son, formaður
efnahags- og við-
skiptanefndar, segir að með þessu sé
tvennt gert: „Annars vegar er verið
að ýta undir að bílaleigur séu í stakk
búnar til að endurnýja bílaflotann og
hins vegar að setja þau skilyrði að
þetta hlutfall af bílum séu vistvænir.“
Uppfylli bílaleigurnar ekki skilyrðin
um hlutfall vistvænna bíla ber þeim
að endurgreiða afsláttinn með álagi.
Óli Björn segir frumkvæðið að
breytingunni hafa komið frá fjár-
málaráðuneytinu, en kallað hafði ver-
ið eftir svipaðri útfærslu í umsögn
Samtaka ferðaþjónustunnar við
frumvarpið. Aðspurður segir Óli
Björn að hann hafi áhyggjur af stöðu
bílaleiga. „Ég hef áhyggjur af því að
bílaleigufyrirtækin, sem eru lykilfyr-
irtæki í að dreifa [ferðamönnum] um
landið, verði ekki í stakk búin til að
endurnýja bílaflotann með skyn-
samlegum hætti,“ segir hann.
20% verði vistvæn árið 2025
Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, fagnar breytingartillög-
unni. „Þetta mun hjálpa bílaleigum
að komast í gegnum þetta tímabil
enda skiptir miklu máli að endurnýj-
un flotans tefjist ekki um of,“ segir
hann.
En skýtur ekki skökku við að veita
afslátt af kolefnislosun á sama tíma
og umræða um græn orkuskipti bíla-
flotans er í hámæli?
Því hafnar Jóhannes. „Þetta er
fyrst og fremst tæknileg útfærsla,“
segir hann og bendir á að á móti séu
bílaleigur skyldaðar til að kaupa til-
tekið hlutfall bíla sem knúnir eru
endurnýjanlegum orkugjöfum. Það
styður við markmið stjórnvalda um
að 20% af flota bílaleiga verði vist-
væn árið 2025. „Það er enginn að
hlaupast undan skyldum sínum,“
segir Jóhannes.
Vörugjöld af
bílaleigubílum
verða lækkuð
Gjöld miðist við 70% af losun Krafa
um tiltekið hlutfall vistvænna bíla
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bílaleigubílar Markmið stjórnvalda
eru að 20% flotans verði vistvæn.
Afsláttur af vörugjöldum
» Við útreikning vörugjalda
verður miðað við að bílaleigu-
bílar losi 30% minna en raunin
er.
» Afsláttur að hámarki
400.000 krónur.
» Skilyrði um að 15% keyptra
bíla séu vistvæn árið 2021 og
25% árið 2022.
» Ætlað að ýta undir endur-
nýjun bílaflotans.
Jóhannes
Þór Skúlason
Óli Björn
Kárason
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta er einhvers konar iðnaðar-her-
nám í íbúabyggð. Það er eitthvað sem
maður hefði kannski mátt búast við á
sjöunda áratugnum en það er óskilj-
anlegt að sjá þetta gerast árið 2020,“
segir listamaðurinn Tolli Morthens
um starfsemi Vöku í Laugarnesi.
Tolli hefur um
árabil verið með
vinnustofu við
Héðinsgötu en
hefur nú gefist
upp á samneytinu
við Vöku.
Morgunblaðið
hefur greint frá
óánægju íbúa með
starfsemi Vöku að
undanförnu.
Fyrirtækið var flutt að Héðinsgötu í
byrjun árs og hafa íbúar kvartað und-
an hávaða og mengun um margra
mánaða skeið. Hafa athugasemdir
verið gerðar við að fyrirtækið hafi
starfað án starfsleyfis á staðnum. Þá
hefur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
krafist þess að Vaka bæti ásýnd og
umgengni á lóð fyrirtækisins og haldi
starfseminni innan lóðar.
Fram kom í frétt blaðsins í síðustu
viku að umhverfis- og auðlindaráðu-
neytið hefði bent á það í bréfi nýlega
að í lögum um hollustuhætti og meng-
unarvarnir sé skýrt að ekki megi
hefja slíkan atvinnurekstur hafi
starfsleyfi ekki verið gefið út eða
starfsemin verið skráð hjá
Umhverfisstofnun. Vaka hefur ný-
lega sótt um tímabundið starfsleyfi út
næsta ár.
Tolli segir í samtali við Morgun-
blaðið að hann hafi ekkert á móti
starfsemi Vöku sem slíkri og hann
hafi átt ágæt samskipti við starfs-
menn fyrirtækisins. Hins vegar eigi
förgun á bílum og fleira í þeim dúr
ekki heima á þessum stað.
„Hér hefur runnið mengunin úr bíl-
hræjum frá fyrsta degi. Þetta liggur í
jarðveginum, stundum er hún ósýni-
leg en hún er samt skaðleg. Þetta eru
bílhræ sem blæðir úr og hér liggur
blóð um allar stéttir,“ segir listamað-
urinn.
Hann furðar sig á afstöðu yfirvalda
í málinu. „Þetta fyrirtæki er ekki einu
sinni með starfsleyfi. Það hefur
hreiðrað um sig hér á fölskum for-
sendum. Ég þekki leigusalann að
góðu einu og efast um að hann hafi
vitað alla málavöxtu. Mér finnst það
vera áfellisdómur yfir öllum yfirvöld-
um í þessari borg að þetta skuli látið
viðgangast.“
Tolli kveðst hafa áhyggjur af því
hvað myndi gerast ef eldur kæmi upp
á athafnasvæði Vöku. Fyrirtækið hafi
„eignað sér“ Héðinsgötuna og gang-
stéttir í kring og erfitt væri fyrir
slökkvilið að ætla að athafna sig á
svæðinu. „Fólk hér man auðvitað
brunann við Kleppsveg. Nú er þessi
starfsemi komin alveg undir þak-
skegg hjá íbúum í hverfinu. Þetta er
mikið barnahverfi. Það veldur auðvit-
að áhyggjum og streitu hjá mörgum
sem þurftu að fara í gegnum þetta á
sínum tíma. Allt á þessari lóð er
sprengiefni.“
Sjálfur kveðst Tolli hafa fengið nóg
af staðnum. Hann mun á næstunni
flytja vinnustofu sína á nýjan stað.
„Ég er á förum, er búinn að segja upp
leigunni. Það er ekki eingöngu vegna
Vöku en þetta mál ýtti undir þá hugs-
un. Þetta er ekki skemmtilegt.“
Málefni Vöku verða rædd á fundi
Íbúaráðs Laugardals í dag. Í ráðinu
sitja borgarfulltrúarnir Kristín Soffía
Jónsdóttir og Katrín Atladóttir. Þá
mun þriðji borgarfulltrúinn, Líf
Magneudóttir, sem jafnframt er for-
maður heilbrigðisnefndar borgarinn-
ar, sitja fundinn og upplýsa hvar mál-
ið er statt innan borgarkerfisins.
Vaka Styr hefur staðið um starfsemi fyrirtækisins við Héðinsgötu.
Líkir starfsemi Vöku
við hernám á svæðinu
Listamaðurinn Tolli ósáttur við afskiptaleysi stjórnvalda
Á fundi Heilbrigðiseft-
irlits Hafnarfjarðar og
Kópavogssvæðis hinn
30. nóvember var þess
krafist að Vaka myndi
hreinsa lóð fyrir-
tækisins að Tinhellu 8
í Hafnarfirði. Í fund-
argerð kemur fram að
við eftirlit síðasta vet-
ur og í vor hafi komið í
ljós að allnokkuð hafi
safnast af úrgangsefnum á lóðinni, meðal annars bílhræ á lóðarmörkum
og ónýtir skúrar. Þess var krafist í júní að lóðin yrði hreinsuð en ekki var
brugðist við því.
„Við endurtekið eftirlit nú á haustdögum er ljóst að ásýnd lóðarinnar
er enn verri en áður. Svo virðist sem lóðin sé nýtt til að safna brotajárni
og öðrum úrgangi. Slík starfsemi er háð leyfi byggingaryfirvalda og
starfsleyfi og starfsskilyrðum sem heilbrigðisnefnd setur. Hvorugt er til
staðar,“ segir í fundargerðinni þar sem því er hótað að dagsektir verði
lagðar á Vöku verði ekki brugðist við. Þetta virðist hafa komið skriði á
málið því þegar ljósmyndari Morgunblaðsins renndi við fyrir helgi var
unnið að hreinsun lóðarinnar.
Var hótað dagsektum
ÚRGANGUR Á LÓÐ VÖKU Í HAFNARFIRÐI
Tinhella Lóð Vöku var hreinsuð í síðustu viku.
Tolli Morthens