Morgunblaðið - 14.12.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.12.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2020 England Everton – Chelsea ................................... 1:0  Gylfi Þór Sigurðsson lék fyrstu 83 mín- úturnar með Everton og skoraði markið. Arsenal – Burnley ................................... 0:1  Rúnar Alex Rúnarsson var varamark- vörður Arsenal.  Jóhann Berg Guðmundsson var ekki með Burnley vegna meiðsla. Wolves – Aston Villa ................................ 0:1 Newcastle – WBA .................................... 2:1 Manch.Utd – Manch.City ........................ 0:0 Southampton – Sheffield United ............ 3:0 Crystal Palace – Tottenham.................... 1:1 Fulham – Liverpool.................................. 1:1 Leicester – Brighton................................ 3:0 Staðan: Tottenham 12 7 4 1 24:10 25 Liverpool 12 7 4 1 27:18 25 Leicester 12 8 0 4 24:15 24 Southampton 12 7 2 3 24:17 23 Chelsea 12 6 4 2 25:12 22 West Ham 12 6 2 4 20:15 20 Everton 12 6 2 4 21:18 20 Manch.Utd 11 6 2 3 19:17 20 Manch.City 11 5 4 2 17:11 19 Aston Villa 10 6 0 4 21:13 18 Crystal Palace 12 5 2 5 18:17 17 Newcastle 11 5 2 4 14:16 17 Wolves 12 5 2 5 11:16 17 Leeds 12 4 2 6 17:22 14 Arsenal 12 4 1 7 10:15 13 Brighton 12 2 4 6 15:21 10 Burnley 11 2 3 6 6:18 9 Fulham 12 2 2 8 12:22 8 WBA 12 1 3 8 9:25 6 Sheffield Utd 12 0 1 11 5:21 1 B-deild: Middlesbrough – Millwall....................... 3:0  Jón Daði Böðvarsson kom inn á hjá Mill- wall eftir 24 mínútur. C-deild: Blackpool – Oxford ................................. 0:0  Daníel Leó Grétarsson lék allan leikinn með Blackpool. Þýskaland Augsburg – Schalke ................................ 2:2  Alfreð Finnbogason kom inn á hjá Augs- burg eftir 71 mínútu. Leverkusen – Sand.................................. 2:1  Sandra María Jessen kom inn á hjá Lev- erkusen eftir 81 mínútu. B-deild: Darmstadt – Hamburger SV.................. 1:2  Guðlaugur Victor Pálsson var ekki í leik- mannahóp Darmstadt. Ítalía Bologna – Roma....................................... 1:5  Andri Fannar Baldursson kom inn á hjá Bologna eftir 69 mínútur. Napoli – Verona....................................... 1:2  Guðný Árnadóttir lék allan leikinn með Napoli. B-deild: Brescia – Salernitana.............................. 3:1  Birkir Bjarnason kom inn á hjá Brescia eftir 72 mínútur og skoraði. Hólmbert Aron Friðjónsson var ekki með vegna meiðsla. Rússland CSKA Moskva – Ural .............................. 2:2  Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn með CSKA en Arnór Sigurðsson var allan tímann á varamannabekknum. Belgía Cercle Brugge – Oostende ..................... 0:1  Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með Oostende. B-deild: Lommel – Royal Union St. Gilloise........ 0:1  Kolbeinn Þórðarson lék fyrstu 79 mín- úturnar með Lommel.  Aron Sigurðarson var allan tímann á varamannabekk Union St. Gilloise. Tyrkland B-deild: Altinordu – Akhisarspor ........................ 3:2  Theódór Elmar Bjarnason lék fyrstu 70 mínúturnar með Akhisarspor. Pólland Raków – Jagiellonia ................................ 3:2  Böðvar Böðvarsson lék fyrstu 59 mín- úturnar með Jagiellonia. Grikkland Aris – PAOK............................................. 1:0  Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK. Lamia – Olympiacos................................ 0:6  Ögmundur Kristinsson var varamark- vörður Olympiacos. Katar Al-Duhail – Al-Arabi ............................... 2:0  Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið. Danmörk Horsens – AGF......................................... 1:2  Kjartan Henry Finnbogason lék fyrstu 65 mínúturnar með Horsens og Ágúst Eð- vald Hlynsson var á varamannabekknum.  Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 81 mínútuna með AGF. B-deild:Silkeborg – Fredericia.............. 2:0  Stefán Teitur Þórðarson kom inn á hjá Silkeborg á 81. mínútu og lagði upp mark.  Elías Rafn Ólafsson lék allan leikinn í marki Fredericia.  EM Kristján Jónsson kris@mbl.is Noregur mun leika um verðlaun á Evrópumóti kvenna í handknattleik í Danmörku undir stjórn Þóris Her- geirssonar. Liðið hefur unnið alla leiki sína í keppninni til þessa og stórsigur gegn Króatíu á laugardag- inn, 36:25, þýddi að norska liðið er öruggt um sæti í undanúrslitum. Þórir hefur því unnið enn eitt af- rekið sem landsliðsþjálfari Noregs og verður þetta í tólfta sinn sem lið- ið leikur til verðlauna undir stjórn Þóris en hann tók við liðinu árið 2009. Í tíu tilfellum hefur liðið unnið til verðlauna. Á þessum tíma hefur Þórir orðið ólympíumeistari, tvíveg- is heimsmeistari og þrívegis Evr- ópumeistari. Hér er ekki einu sinni öll sagan sögð því Selfyssingurinn var kominn inn í þjálfarateymi landsliðsins árið 2001 þótt hann hafi fengið alla ábyrgðina árið 2009. Hef- ur hann því átt þátt í enn fleiri af- rekum hjá norska landsliðinu, en lið- ið varð til dæmis ólympíumeistari árið 2008. Noregur lék ekki um verðlaun á EM fyrir tveimur árum og telst slíkt nánast til stórtíðinda miðað við hvernig málin hafa þróast hjá norska landsliðinu undir stjórn Þóris. Á HM í fyrra fór liðið í undan- úrslit en mátti sætta sig við fjórða sætið. Hjá Þóri og hans konum er því sennilegt að hungrið í verðlaun sé til staðar á EM í Danmörku. Ekki er annað að sjá á leik liðsins en liðið hafi rutt fyrstu fimm hindrununum úr vegi með stórsigrum. Minnsta tap Noregs í fyrstu fimm leikjunum er sjö marka sigur. Í herbúðum Norðmanna hafði væntanlega verið mikil eftirvænting eftir mótinu þar sem til stóð að Norðmenn yrðu gest- gjafar ásamt Dönum en þurftu að gefa það frá sér vegna stífra sótt- varnareglna. Noregur á enn eftir einn leik í milliriðli I en í undanúrslitum mun liðið mæta hörkuliði hvort sem það verða núverandi Evrópumeistarar, Frakkar, Danir á heimavelli eða Rússar. Kristín skoraði fimm Í gær var leikið í milliriðli II og með öruggum sigri á Spánverjum geta Danir komist í undanúrslit keppninnar með sigri á Rússlandi í síðustu umferðinni í milliriðli. Svartfjallaland vann Svíþjóð 31:25 en Kristín Þorleifsdóttir lét ekki sitt eftir liggja í sænska liðinu. Skoraði hún fimm mörk í leiknum og átti þrjár stoðsendingar. Keppir um verðlaun í tólfta sinn  Noregur í undanúrslit á EM AFP Leiðtoginn Þórir Hergeirsson á hliðarlínunni á EM í Danmörku. Knattspyrnumaðurinn Hallgrímur Jónasson hefur skrifað undir nýjan samning við KA sem kveður á um að hann verði áfram spilandi að- stoðarþjálfari liðsins í Pepsi Max- deildinni á komandi tímabili. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá knattspyrnudeild KA. Hallgrímur tók við sem aðstoð- arþjálfari þegar Arnar Grétarsson tók við þjálfun liðsins í sumar. „[H]efur samstarf þeirra Arnars og Hallgríms gengið afar vel og [er] mjög jákvætt að njóta áfram krafta þeirra á komandi tímabili.“ Hallgrímur leikur áfram með KA Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Meiddur Hallgrímur sleit krossband en ætlar að snúa aftur á völlinn. Skautasamband Íslands hefur valið Aldísi Köru Bergsdóttur sem skautakonu ársins 2020. Aldís Kara keppir fyrir Skautafélag Akureyr- ar. Hún varð fyrst Íslendinga til að vinna sér inn keppnisrétt á heims- meistaramóti í listdansi á skautum og keppti á heimsmeistaramóti unglinga í Tallinn í Eistlandi. Þar hafnaði hún í 35. sæti. Aldís keppti einnig á Norður- landamóti á árinu og náði þar í flest stig sem Íslendingur hefur fengið á Norðurlandamóti í greininni frá upphafi. sport@mbl.is Sögulegt ár hjá Aldísi á ísnum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sögulegt Aldís Kara er á mikilli uppleið í listdansi á skautum. Ingibjörg Sigurðardóttir, var valin leikmaður ársins í norsku úrvals- deildinni í knattspyrnu. Var til- kynnt um valið í gær en í fram- haldinu sigraði Vålerenga í bikarkeppninni og lagði Lilleström að velli í úrslitaleiknum. Våle- renga er því tvöfaldur meistari í Noregi og hefur Ingibjörg verið tíður gestur á síðum blaðsins síð- ustu vikurnar. Tímabilið er í meira lagi viðburðaríkt hjá henni en bikarúrslitaleikinn vann Våle- renga 2:0 eftir framlengdan leik. „Ég veit að það er ekkert oft sem varnarmaður fær svona útnefn- ingu þannig að ég tek þessu og ég veit að ég hef unnið hart að þessu,“ sagði Ingibjörg við mbl.is í gær en þar er að finna ítarlegri viðbrögð frá henni. Ingibjörg sagði við Morgunblaðið á dög- unum að fyrsta vikan í desember hefði verið sú besta á ferlinum. „Þetta hefur allavega ekki versn- að!“ sagði Ingibjörg í gær en hún er önnur íslenska konan sem valin er best í Noregi. Áður var það Þóra B. Helgadóttir þegar hún lék með Kolbotn árið 2009. Ljósmynd/Vålerenga Viðburðaríkt ár Ingibjörg hefur haft ríka ástæðu til að fagna. Með fangið fullt af verðlaunum í Noregi Jónas Ingi Þórisson náði eftirtekt- arverðum árangri í unglingaflokki á EM í áhaldafimleikum sem fram fór í Tyrklandi og lauk í gær. Jónas hafnaði í gær í 7. sæti í stökki en með árangri sínum í fjöl- þrautinni tryggði hann sér keppn- isrétt í átta manna úrslitum á því áhaldi. Framkvæmdi hann fyrra stökkið mjög vel en reyndi erfiðari útfærslu í síðara stökkinu sem gekk ekki eins vel. Fékk hann samtals 13.316 stig. Jónas braut blað í mótinu þegar hann var fyrsti Íslendingurinn sem keppir í úrslitum í fjölþraut á EM unglinga í fimleikum. Jónas Ingi stóð sig mjög vel, sýndi mikið öryggi í sínum æfingum og náði í svipuð stig og í undankeppninni. Hann hafnaði í 17. sæti og fékk 72.630 stig. Með árangri sínum í undan- keppninni í fjölþraut var Jónas ekki langt frá því að komast í úrslit á fleiri áhöldum en stökki. Var hann með tíunda besta árangurinn í gólf- æfingum. Valgarð alveg við úrslitin Valgarð Reinhardsson var á með- al keppenda í fullorðinsflokknum og var grátlega nálægt því að komast í úrslit í stökki. Valgarð keppti á sín- um sterkustu áhöldum: stökki, gólfi og svifrá. Heildareinkunn Valgarðs í stökki var 14.033 stig og hafnaði hann í 9. sæti. Var hann með sömu einkunn og keppandi í 8. sæti sem var síðastur inn í úrslit. Þegar sú staða kemur upp að keppendur fá sömu lokaeinkunn kveða reglur mótsins á um að sá keppandi sem reynir erfiðari útfærslu í stökkinu hafnar ofar. kris@mbl.is Jónas Ingi sjöundi í stökki á EM Ljósmynd/FSÍ EM unglinga Jónas Ingi Þórisson gerði það gott í Tyrklandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.