Morgunblaðið - 14.12.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.12.2020, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2020 ✝ Reynir Kjart-ansson fæddist í Reykjavík 5. febr- úar 1948. Hann lést 26. október 2020 á Droplaugarstöðum. Foreldrar Reynis voru Kjartan Stef- ánsson versl- unarmaður og mál- ari, f. 15.9. 1899, d. 25.5. 1988, og Ragnheiður Elín Jónsdóttir húsfreyja, f. 13.10. 1902, d. 25.10. 1968. Systkini Reynis eru þau Jóna Kristín, f. 22.11. 1931, Stefán, f. 9.3. 1937, og uppeldisbróðir Reynis er Kjartan Kjartansson f. 16.1. 1949. Reynir giftist eftirlifandi eig- inkonu sinni Maríu Ólafson, f. 16.9. 1948, hinn 14.12. 1968. Börn þeirra eru: 1) Þuríður, f. 14.3. 1970, eiginmaður hennar er Ágúst Guðmundsson, f. 7.11. 1964. Dóttir þeirra er María, f. 9.4. 2003. Þau eru búsett í Lond- on. 2) Elín, f. 6.4. 1971, d. 8.8. isdegi sínum vegna Levy Body- heilabilunar sem var farin að há honum við vinnu og olli að end- ingu andláti hans. Reynir byrjaði ungur að æfa fótbolta hjá Þrótti og var sannur Þróttari alla tíð. Hann fór í tvær siglingar með Þrótti í keppn- isferðir til Danmerkur á ung- lingsárum. Um tíma þjálfaði hann yngri drengina í Þrótti í sjálfboðavinnu ásamt Óla Viðari Thorstensen æskuvini sínum. Síðar fylgdist hann með og starfaði fyrir íþróttafélagið Gróttu þegar börnin hans Þur- íður og Viðar æfðu handbolta með félaginu. Hann kom að stofnun Asparinnar sem er íþróttafélag fyrir fatlaða og tók hann að sér mörg verkefni fyrir félagið sem Elín dóttir hans æfði með. Tæp tvö síðustu ár ævinnar dvaldi Reynir á hjúkrunarheim- ilinu Droplaugarstöðum þar sem hann lést í faðmi eiginkonu sinnar og barna. Útför Reynis fer fram í Nes- kirkju í dag, 14. desember 2020. Vegna fjöldatakmarkana er út- förin lokuð en streymt verður frá henni á slóðinni: https:// www.sonik.is/reynir Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat 2012. 3) Viðar, f. 16.7. 1981, eig- inkona hans er Anna Lilja Másdótt- ir, f. 8.3. 1983. Dæt- ur þeirra eru Guð- rún, f. 24.3. 2011, Þuríður, f. 17.2. 2014, og Katla, f. 20.12. 2017. Þau eru búsett í Garða- bæ. Reynir ólst upp á Bragagötu í Reykjavík til 10 ára aldurs þegar fjölskylda hans flutti á Dunhaga í Reykjavík þar sem hann bjó fram að giftingu. Hann hóf skólagöngu sína í Mið- bæjarskólanum og fór þaðan í Hagaskóla. Reynir og María voru bekkjarfélagar í Haga- skóla og luku þaðan gagnfræða- prófi árið 1965. Reynir lauk burtfararprófi í húsasmíði frá Iðnskólanum 6. júní 1970. Reyn- ir starfaði allan sinn starfsaldur við smíðar, ýmist sjálfstætt eða sem launþegi. Hann hætti á vinnumarkaði á 67 ára afmæl- Við systkinin erum sammála um að við duttum sannarlega í lífsins lukkupott hvað varðar foreldra. Pabbi var einstaklega hlýr og elskulegur maður með mikið jafn- aðargeð. Hann var heiðarlegur, greiðvikinn, vandvirkur, ákaflega traustur og umhyggjusamur. Hann var léttur í lund og mikill pabbi og síðar afi. Við systkinin og síðar barnabörnin vorum ásamt mömmu það allra mikilvægasta í lífi pabba. Alla tíð var pabbi fyrsti maður til að bjóða fram aðstoð sína í hverju því sem við systkinin tókum okkur fyrir hendur. Hann var fremsti stuðningsmaður okkar og hafði óbilandi trú á okkur. Hann mætti á alla okkar íþróttaleiki og var alltaf fyrsti maður í stúkuna. Pabbi var afar vinsæll þar sem El- ín systir kom við sögu og drógust vinir Elínar og samferðafólk henn- ar að honum enda einstaklega hlýr og skemmtilegur við þau. Pabbi starfaði töluvert fyrir Foreldra- og kennarafélag Öskjuhlíðarskóla og einnig kom hann að stofnun íþróttafélagsins Aspar sem Elín æfði og keppti fyrir. Pabbi gat verið mjög stríðinn og eru ófáar sögurnar af honum þeg- ar hann gerði at í fólki. Hann hafði bæði mjög gaman af að atast í barnabörnunum og dekra við þau, sem kölluðu hann afa nammigrís af ástæðu. Pabbi var mjög stundvís sem okkur mömmu þótti oft nóg um. Hann var mikill morgunhani og það var vaninn að hann færi út á morgnana löngu áður en hann átti að vera mættur til vinnu því hon- um þótti mikilvægt að mæta fyrst- ur á staðinn og vera búinn að hella upp á áður en vinnufélagarnir mættu. Um helgar fór hann líka snemma á fætur og var búinn að drekka nokkra kaffibolla með öðr- um hressum morgunhönum á Kaffivagninum eða Kaffi París áð- ur en annað heimilisfólk fór á fæt- ur. Pabbi vandaði alltaf til verka og aldrei mátti stytta sér leið sem gat stundum reynt á þolinmæðina þegar við systkinin vildum drífa í hlutunum. Pabbi fylgdist vel með íþróttum almennt, en þó helst handbolta og fótbolta. Við systkinin fórum með honum í eina af hans síðustu utan- landsferðum þegar Ísland spilaði í lokakeppni EM í fótbolta í Frakk- landi 2016. Það var yndislegt að hafa getað farið með pabba á svo stóran atburð í íþróttasögu þjóð- arinnar og að eiga svo hlýjar minn- ingar saman þrátt fyrir að þá hafi verið farið að bera á veikindum hans. Það er ákaflega sárt að hugsa til þess að pabbi hafi byrjað að veikj- ast svo ungur og svo fljótt eftir að Elín systir lést. Í staðinn fyrir að pabbi og mamma hefðu getað notið efri áranna þegar vinnan og umönnun Elínar tók ekki alla þá orku sem hún hafði gert, þá veikt- ist pabbi. Það var aðdáunarvert að sjá hvað pabbi tók veikindum sín- um af miklu æðruleysi. Það er fyrst og fremst mömmu að þakka hve vel var hugsað um pabba í hans veikindum. Hún sá til þess að pabbi fengi bestu umönnun sem hugsast getur bæði meðan hann bjó heima og eftir að hann lagðist inn á Droplaugarstaði. Við viljum nota tækifærið og þakka starfs- fólki Droplaugarstaða og Hlíðar- bæjar fyrir þeirra stuðning og óeigingjarna starf í umönnun pabba. Það er söknuður að hafa ekki pabba lengur hjá okkur, en við huggum okkur við að Elín systir hefur örugglega umvafið hann ást og kærleik við komuna í Sumar- landið. Hvíl í friði elsku pabbi. Þín Þuríður og Viðar. Okkur bræðrum langar að minnast mágs okkar, Reynis Kjartanssonar. Við bræður eigum margar góð- ar minningar um Reyni og Mæju. Til að byrja með var Reynir kærasti stóru systur, það var meira en lítið mál fyrir okkur litlu bræður. Hann var líka smiður og fót- boltamaður. Ekki bara fótbolta- maður heldur spilaði hann með Þrótti, við ungarnir vissum varla að til væri annað félag en KR, en pabbi hélt með því. Þróttarabún- ingurinn var miklu flottari en KR, hann var í lit, rauður og hvítur. Þegar Reynir kom inn í fjöl- skylduna sá maður nýja umræðu- hefð. Það dugði ekki að apa eitt- hvað upp, maður þurfti að rökstyðja skoðanir sínar, hann opnaði augu mín og líklega fleiri fyrir því að taka hlutum ekki sjálf- gefnum heldur spyrja gagnrýnna spurninga. Ekki setja fram skoð- anir eða hugmyndir af því bara, heldur þurfti maður að geta rök- stutt sitt mál. Oft kom það fyrir að hann þótt- ist vera á móti þangað til maður var búinn að rökstyðja sitt mál, jafnvel fara upp um nokkrar tón- hæðir, þá kom oft það svar að hann væri sammála en vildi bara rökin, þá var stórt glott og bros á andliti. Eins og gengur áttum við bræð- ur mismikil samskipti við Reyni, ég sem þetta skrifa var til dæmis handlangari hjá honum eitt sumar við byggingu Hólabrekkuskóla. Þar kynntist ég nýrri hlið á Reyni, hann naut mikillar virðingar ann- arra trésmiða og þetta sumar lærði ég mikið sem hefur reynst mér vel í mínum verkum. En hjá honum og hinum smiðunum var stutt í grínið, oft voru handlang- ararnir sendir eftir einhverjum óþarfa sem bar skrítin nöfn. Þegar fólk hittist var oft tekið í spil, oftast spilað bridge og það lengi, Reynir og Mæja spiluðu vín- arsagnakerfið, okkur hinum fannst það löngu úrelt. Oft var lengi spil- að, hlegið og mörg skot látin fljúga yfir spilaborðið. Enginn vildi tapa, erfitt að játa sig sigraðan sem var þó gert að lokum með semingi. Reynir var fjölskyldurækinn, hafði oft samband og fylgdist vel með hvað var að gerast. Minnti mig reglulega í símtölum á að það væri ekki alltaf logn á Ísafirði en þau símtöl komu samtímis storm- viðvörunum í veðurfréttum. María og Reynir eignuðust þrjú börn, Þurý, Elínu, sem nú er látin, og Viðar. Þau eiga tvö tengdabörn og fjórar barnadætur. Við Páll og Guðrún, Einar og Sara, Jóhann og Kolbrún, börn, tengdabörn og barnabörn þökkum Reyni margar yndisstundir og þol- inmæðina í gegnum tíðina um leið og við sendum þeim öllum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir okkar hönd, Jóhann Ólafson. Í dag kveðjum við kæran vin og félaga. Ég kynntist Reyni fyrst þegar ég, 11-12 ára, byrjaði að æfa fót- bolta með Þrótti. Ég var mikið í marki á þessum árum. Það var oft erilsamt starf að verja mark Þróttar og því gott að hafa góða menn í vörninni. Þar var Reynir mjög áberandi. Hann var bæði stór og sterkur eftir aldri, sparkviss og fáir sem stóðust hon- um snúning í skallaboltum. Reynir var oftast miðvörður, klettur í vörninni og líka oftast fyrirliði liðs- ins á þessum árum. Það er allavega víst að allmargar sóknartilraunir mótherja okkar strönduðu á sterkri vörn Reynis og gat hann þannig forðað mér frá að hirða boltann úr netinu oftar en ella. Við Reynir urðum fljótt góðir vinir, bæði innan vallar og utan, og entist sú vinátta alla tíð og einnig eftir að við vorum báðir komnir með fjölskyldur. Reynir og Maja voru okkar bestu vinir alla tíð. Við hittumst nokkuð reglulega, borð- uðum gjarnan saman, spiluðum bridds og ræddum landsins gagn og nauðsynjar. Þó við værum ekki alltaf sammála breytti það engu um okkar góðu vináttu. Reynir var mikill matgæðingur og góður kokkur. Það klikkaði t.d. aldrei að þegar við fórum saman í sumarbústaðaferðir, sem gerðist nokkuð oft í gegnum árin, þá var Reynir alltaf með einhverja sér- staka rétti sem hann vildi prófa og var þá jafnan með það hráefni sem við átti. Og sama var heima við. Ef Reynir var kominn með svuntuna á sig, þá mátti alltaf búast ein- hverju óvæntu og góðu, að ógleymdri sviðasultunni! Reynir gat verið einstaklega stríðinn og átti það til að plata mig og aðra upp úr skónum. Einhvern tímann um 1980 var ég t.d. að reyna að selja gamlan bíl og setti smáauglýsingu í Vísi sem lýsti kostum og göllum. Svo loks síðla dags hringir maður sem vill bara endilega koma og sjá þennan eðalgrip. Það voru auðvitað Reynir og Maja sem komu nokkru síðar, skellihlæjandi með púkasvip, „við erum komin að kíkja á gripinn“. Reynir var mikill fjölskyldu- maður sem hugsaði vel um börnin sín og var stoltur faðir og afi. Lífið var þó ekki alltaf auðvelt, en Elín miðbarnið þeirra veiktist sem ungbarn og var fötluð eftir það. Það var aðdáunarvert að sjá hversu vel fjölskyldan öll hugsaði um Elínu. Reynir og Maja voru mjög virk í starfi Öskjuhlíðarskóla og síðan meðal frumkvöðla að stofnun Asparinnar, íþróttafélags fatlaðra, þar sem Elín stundaði sund og fleiri íþróttir í mörg ár. Það voru margar ánægjustund- ir með þeim hjónum. Ein af mörg- um eftirminnilegum var ferðin til London, þar sem þau voru öllum hnútum kunnug. Borgin var skoð- uð og svo var ákveðið að fara á fót- boltaleik að sjá íslendingaliðið Reading. Það var mikið ævintýri, mikið hlegið og mikill misskilning- ur varðandi miðana, sem við vor- um ekki viss um hvernig við áttum að nálgast. En auðvitað biðu mið- arnir eftir okkur í aðalmiðasölunni, í umslagi kirfilega merktu með nöfnum okkur, auk þess sem við fengum regluleg boð um félagsað- ild í nokkur ár á eftir. Kæri vinur, takk fyrir sam- fylgdina. Elsku Maja, Þurý, Viðar og fjöl- skyldur, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðju. Óli og Anna. Kær vinur hefur kvatt okkur og er vert að minnast hans. Fyrir rúmlega 50 árum kynntist hópur ungmenna sem komu sitt úr hverri áttinni og voru með mismunandi bakgrunn. Ekkert okkar vissi í raun hvað var fram undan en öll horfðum við björtum augum til framtíðarinnar og þeirra áskorana sem lífið bauð upp á. Allir voru bjartsýnir á vegferðina framund- an. Það er oft tilviljun hvernig vinahópar myndast í upphafi, en engin tilviljun hvernig vináttan þróast og þroskast eða hvort hún haldi. Þrátt fyrir ólíka sýn á lífið, mismunandi skoðanir og viðhorf styrktist hópurinn. Þá kemur í ljós að það eru einstaklingarnir sem eru örlagavaldarnir í langri sam- heldni og vináttu. Í þessari vegferð „hópsins“, en svo kölluðum við okkur þessar fimm fjölskyldur, tók Reynir stóran þátt ásamt konu sinni, henni Maríu vinkonu okkar. Það er margs að minnast þegar horft er til baka. Glettni Reynis, hlýlegt viðmót, gestrisni, stríðni og allskonar uppákomur voru hans aðalsmerki og skemmtileg hugmyndaauðgi þar að baki. Í gegnum tíðina oft verið rifjað upp og minningarnar vakið kátínu og innilega gleði. Einstaklega gott hefur verið að koma til þeirra hjóna í áranna rás hvort sem var í persónulega heim- sókn eða með „hópnum“. Frum- leiki í matargerð, hlýleiki, góð nærvera og gestrisni ávallt í há- vegum höfð. Vináttan hefur dýpkað hin síð- ari ár. Við eigum minningar um tjaldútilegur á yngri árum með barnahópnum. Ferðalög innan- lands og utan með þeim hjónum, þar sem þau kynntu okkur töfra suðrænna slóða. Minning um frá- bæra siglingu á Rínarfljóti og Mo- sel fyrir nokkrum árum með Reyni og Maju er okkur hjónum kær. Á langri samleið höfum við séð hvað þau hjónin Reynir og Maja voru einstaklega samhent í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Þar var greinilega ást og virðing í háveg- um höfð. Það hefur verið sárt að fylgjast með veikindum vinar okkar und- anfarið, sjá hvernig veikindin tóku smátt og smátt öll völd og lögðu þennan sterka og öfluga vin okkar að lokum. Hugur okkar er með Maju, Þurý, Viðari og fjölskyldum þeirra. Að leiðarlokum erum við hjónin full þakklætis fyrir langa samleið og vináttu og kveðjum með sárum söknuði. Örn og Guðbjörg (Gugga). Reynir Kjartansson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA ELSA BREIÐFJÖRÐ, Jöldugróf 4, 108 Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldu sinnar á Landspítalanum 9. desember. Ámundi Friðriksson Friðrik Ámundason Hrafnhildur Harpa Skúladóttir Agnar Þór Ámundason Agnes Ámundadóttir barnabörn og langömmubörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN FANNDAL frá Garðshorni í Kálfshamarsvík, Víðimel 78, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítala, laugardaginn 28. nóvember 2020. Útför hennar fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi fimmtudaginn 17. desember kl. 13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins fjölskylda og nánustu aðstandendur viðstaddir. Jón Óskar Ágústsson Margrét Ósk Óskarsdóttir Jón Hermann Ingimundarson Ágúst Sigurður Óskarsson Júdit Alma Hjálmarsdóttir Stefán Páll Óskarsson Haukur Óskarsson Ásta D. Baldursdóttir Magnús Óskarsson Erla Guðrún Guðbjartsdóttir Sverrir Óskarsson Ingunn Vattnes Jónasdóttir Sigrún Óskarsdóttir Ásmundur Einar Ásmundsson Sigursteinn Óskarsson María Gunnarsdóttir Þráinn Óskarsson Elma Atladóttir og fjölskyldur Elskuleg systir okkar og mágkona mín, PAULA SEJR SØRENSEN, Smáraflöt 37, Garðabæ, lést 7. desember á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum. Hún verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í Garðabæ miðvikudaginn 16. desember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða nánustu aðstandendur viðstaddir en hægt verður að fylgjast með athöfninni í streymi og verður slóðin aðgengileg á: mbl.is/andlat/minningar/utfarastreymi/ Else Madsen Hanne Nielsen Árni Kristinsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.