Morgunblaðið - 14.12.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Sterkar athugasemdir eru gerðar
við hugmyndir um landfyllingu í Ölf-
usá við Selfoss sem upp á er brydd-
að í tillögum til breytinga á aðal-
skipulagi fyrir Sveitarfélagið
Árborg 2020-
2036. Málið
hverfist um að
aka mold, grjóti
og ýmsum tilfall-
andi uppgreftri í
vík norðan við
Selfossflugvöll.
Mikið fellur til af
ýmsum jarðvegi á
Selfossi, svo sem
þegar grunnar
eru teknir að húsum, og efninu þarf
að koma frá með hagkvæmum hætti.
Sjónir beinast því að árbakkanum
og að með uppfyllingu þar sé tekið
tillit til hugsanlegrar náttúruvár
sem leiðir af hækkun sjávar og
vatna. Í grennd við hugsanlegt upp-
fyllingarsvæði er vaxandi byggð og
íbúar þar nýta sér árbakkann mikið
til útivistar. Hafa margir séð ýmsa
meinbugi á þessum hugmyndum og
Kjartan Björnsson, rakari og bæj-
arfulltrúi í Árborg, skrifaði á dög-
unum grein í héraðsblað um málið.
Fallegur staður
og fjölskrúðugt fuglalíf
„Þessi náttúrulega sandvík sem er
rétt sunnan og vestan við götuna
Starmóa er fallegur staður og þarna
er fjölskrúðugt fuglalíf á sumrin.
Margir sem búa á þessum slóðum
hafa talað við mig sem bæjarfulltrúa
að undanförnu og lýst andstöðu
sinni við þessa hugmynd. Ég á því
ekki von á öðru en að þeim sjón-
armiðum verði mætt, að minnsta
kosti þarf sterk rök fyrir uppfyll-
ingu á þessum slóðum verði sú leið
valin. Breytt aðalskipulag verður þó
sennilega ekki afgreitt í bæjarstjórn
fyrr en á vordögum. Því er góður
tími til þess að melta þetta og gera
breytingar í rétta átt,“ sagði Kjart-
an Björnsson í samtali við Morg-
unblaðið í gærdag.
Heimsmarkmið og
umhverfisvernd
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóð-
anna um sjálfbæra þróun eru meðal
þess sem haft er til hliðsjónar við
endurskoðun aðalskipulagsins í Ár-
borg, að því fram kemur í kynningu.
Framfaravogin – vísitala félagslegra
framfara sem sveitarfélagið vinnur
eftir – er einnig höfð sem leiðarljós.
Samkvæmt því er þess gætt að við
allar framkvæmdir á vegum Árborg-
ar sé röskun á náttúru og lífríki
haldið í lágmarki. Vernd umhverfis
og náttúru er í hávegum höfð með
heilnæmu og aðlaðandi umhverfi. Að
því sögðu á skipulag byggðar og um-
hverfis að stuðla að sjálfbærri þróun
samfélagsins og skapa skilyrði til að
menn og náttúra búi saman
árekstralaust. Sömuleiðis á að við-
halda náttúrlegri fjölbreytni lífríkis
og rannsóknir á lífríki eiga að renna
stoðum undir verndun þess.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flugsýn Horft yfir Selfossbæ og Ölfusá til suðvesturs. Hugmyndir eru um það við endurskoðun aðalskipulags Árborg-
ar að fylla að einhverju leyti upp í árbakkann í víkinni sem gengur inn í landið til suðurs, til vinstri að sjá á myndinni.
Er mótfallinn upp-
fyllingu í Ölfusánni
Endurskoða aðalskipulag í Árborg Bæjarfulltrúi efins
Kjartan
Björnsson
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Kerfin okkar í barnaverndar-
málum geta sannarlega verið skil-
virkari,“ segir Arndís Soffía Sigurð-
ardóttir sýslumaður í
Vestmannaeyjum. „Við höfum verið
að leita leiða inn-
an núgildandi
lagaramma til að
ná sem allra
fyrst til barna
sem hafa búið við
ofbeldi. Fyrir-
stöðurnar eru
helstar óvissa um
reglur í persónu-
vernd. Einnig
þær skorður sem
eru settar um
miðlun upplýsinga á milli stofnana
og skortur á fræðslu til starfsfólks
um ólík hlutaverk stofnana.“
Efla og þróa samvinnu
milli stofnana
Vinna við tilraunaverkefni sem
Sýslumanninum í Vestmannaeyjum
var falið að stýra er í fullum gangi.
Starfið felst í því að efla og þróa
samvinnu stofnana þegar kemur að
vinnu er varðar velferð og hag
barna. Á þetta við um snemmtæka
íhlutun í líf barna sem hafa búið við
ofbeldi á heimili. Sýslumaður leiðir
þetta starf en að því koma einnig
lögregla, félagsþjónusta og barna-
vernd í Vestmannaeyjum og hlaut
verkefnið styrk frá félags- og
barnamálaráðuneyti svo og dóms-
málaráðuneyti.
„Hér í Eyjum eru allar stofn-
anir sem að þessum málum vinna í
nábýli og samvinnan almennt er
góð. Slíkt gefur okkur tækifæri til
að þróa vinnubrögð sem gætu nýst
á landsvísu,“ segir Arndís Soffía.
,,Framundan eru fundir með öllum
skólastigum, heilsugæslu og at-
vinnulífi hér í Eyjum um hvernig
við getum innleitt fumlaus viðbrögð
við því þegar upp kemur grunur
um ofbeldi á heimili.“
Vinna við að breyta
verklagsreglum
Vinnan í þessu verkefni hefur
að mestu falist í litlum hópi fulltrúa
þessara stofnana, sem kallaði ýmsa
fagaðila á sviði barnaverndarmála
saman á málstofu í september síð-
astliðnum. Upp úr stóð þar, að sögn
sýslumanns, eins og fyrr greinir,
hve vernd persónuupplýsinga er af-
gerandi um að starfsfólk ólíkra
stjórnvalda telur sig ekki geta sinnt
hlutverki sínu svo best sé.
,,Við höfum meðal annars leit-
að til Persónuverndar, Barnavernd-
arstofu og Kvennaathvarfsins í
vinnu okkar að þessu tilraunaverk-
efni. Núna er vinnsla við nýjar
verklagsreglur í fullum gangi, með-
al annars í samráði við Barna-
verndarstofu auk innleiðingar ann-
arra þátta sem stuðlað geta að
snemmtækri íhlutun. Við vonumst
til að okkar vinna geti nýst öðrum
stofnunum til að bæta sína þjón-
ustu,“ segir Arndís Soffía Sigurð-
ardóttir.
Skorður eru
settar um miðlun
á upplýsingum
Tilraunaverkefni í barnavernd í Eyjum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Eyjar Samvinna stofnana um breyt-
ingar í mikilvægum málum.
Arndís Soffía
Sigurðardóttir
Samþykkt var að gera ráð fyrir 38,4
milljóna króna halla á rekstri bæj-
arsjóðs Norðurþings á næsta ári á
fundi bæjarstjórnar í síðustu viku.
Norðurþing nær yfir Húsavík, Öx-
arfjörð, Kópasker, Raufarhöfn og
nærliggjandi svæði.
Hjúkrunarheimili og höfnin
Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi
á árinu 2021 verður veltufé frá
rekstri A- og B-hluta sveitarsjóðs
um 593 milljónir og fjárfest verður
fyrir 425,5 millj.kr. Þar ber helst að
nefna framlag til byggingar nýs
hjúkrunarheimilis á Húsavík, gatna-
framkvæmdir á Kópaskeri, end-
urnýjun lagna hjá Orkuveitu Húsa-
víkur og framkvæmdir við
Húsavíkurhöfn.
Heildarvelta sveitarfélagsins á
næsta ári er áætluð rúmir fimm
milljarðar kr. Af því skilar útsvarið
um 2,1 milljarði kr. og úr Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga fást liðlegar
700 milljónir. Laun verða lang-
stærsti útgjaldaliðurinn í rekstri
Norðurþings á næsta ári, eða rétt
um 2,7 milljarðar króna.
Íbúar í Norðurþingi eru nú 3.043
og gert er ráð fyrir að þeim fjölgi um
10 á ári komanda sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Húsavík Horft yfir hafnarsvæðið að skýjum huldum Kinnarfjöllunum.
Velta Norðurþings
5 milljarðar króna
Áætla halla á rekstri sveitarsjóðsins