Morgunblaðið - 14.12.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.12.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2020 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Reyndu að halda þig sem mest við skipulagða dagskrá en vertu um leið sveigjanlegur ef eitthvað kemur upp á. 20. apríl - 20. maí  Naut Heimili þitt þarf að vera eins og hlýtt og notalegt hreiður. Njóttu þess að fá þér eitthvað virkilega gott að borða. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Loksins eru samstarfsmenn þín- ir farnir að koma fram við þig á þann hátt sem þú átt skilið. Starfið verður líka helm- ingi léttara fyrir vikið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þetta er frábær dagur til rann- sókna. Lykilatriðið er ekki hversu miklar tekjur þú ert með heldur hversu mikið þú getur sparað. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þótt þú fáir nokkur ný ábyrgðar- hlutverk eru þau lítil í samanburði við það sem þú hefur haft á herðum þér undan- farið. Láttu sem ekkert sé því þú munt uppskera laun erfiðis þíns. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft ekki að hugsa ævintýrið út í smáatriðinum. Gerðu eins og þú vilt og gættu þess að enginn sái fræjum efa- semda innra með þér, ekki einu sinni vitur og áhrifamikill ráðgjafi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Fastheldni þín á alla hluti stendur þér fyrir þrifum. Ef mikið liggur við skaltu leita ráða hjá einhverjum sem ekki á hagsmuna að gæta í þínum málum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú átt skilið umbun fyrir það starf sem þú hefur innt af hendi. Njóttu árangursins og haltu svo ótrauður áfram. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Haltu þig eins nálægt áætlun þinni og þú framast getur. Að því loknu geturðu um frjálst höfuð strokið og lyft þér upp. 22. des. - 19. janúar Steingeit Sérkennileg atburðarás kann að leiða til þess að þú hljótir loks umbun erfiðis þíns. Haltu bara þínu striki og þá hefst þetta allt saman. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert í rómantískum hugleið- ingum enda kominn tími til að dekra við sjálfan sig og aðra í leiðinni. Framkvæmdu hlutina með þínu lagi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þeir eru margir, sem vilja ná tali af þér, og þú átt að gera þitt besta til þess að geta hlustað á hvern og einn. - meira fyrir áskrifendur Lestumeira með vikupassa! Fyrir aðeins 1.890 kr. færð þú netaðgang að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga. - Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Íþróttir - Daglegt líf - Viðskipti - Fastir þættir - Aðsendar greinar - Aukablöð - Viðtöl - Minningargreinar - Umræðan Vikupassi er auðveldari leið til að lesaMorgunblaðið á netinu. Fáðu þér vikupassa af netútgáfu Morgunblaðsins. félaga gegn náttúruhamförum. Utan vinnunnar hefur Guðrún vítt áhugasvið og á erfitt með að skipta sér ekki af málum. Þetta endurspeglast í því að hún er stjórnarformaður góðgerðar- og menningarfélaga eins og Vina- félags Gljúfrasteins, Styrktarsjóðs skemmri og lengri tíma. Guðrún hefur birt fjölda vísindagreina og kynnt rannsóknir sínar um allan heim, hlotið fjölda rannsóknarstyrkja, síðast 500 milljónir króna frá NordForsk til að reka NORDRESS, öndveg- issetur um öryggi og seiglu sam- G uðrún Pétursdóttir fæddist í París 14. desember 1950 og sleit þar barnsskónum til fimm ára aldurs. Næst tók við Laugarásinn hálf- byggður og þar gekk hún í Laug- arnesskóla, sem var undir stjórn hins mikla skólamanns Jóns Sig- urðssonar. „Skólinn var skreyttur listaverkum Jóhanns Briem í hólf og gólf, með morgunsöng og mátulegum aga.“ Guðrún fór til sumardvalar 11 ára til frænku sinnar á Höskulds- stöðum í Akrahreppi, Skagafirði; seinna að Engihlíð í Laxárdal, og loks með Halldóru vinkonu sinni Thoroddsen og var matvinnungur á Hala í Suðursveit hjá hinni ómótstæðilegu fjölskyldu Stein- þórs Þórðarsonar. Guðrún varð stúdent frá mála- deild Menntaskólans í Reykjavík 1970, eftir fylgdi veturseta í Vín- arborg, og síðan nám til BA-prófs í sálarfræði við HÍ, lífeðlisfræði til MA-gráðu við Oxfordháskóla og loks nám og rannsóknir á þrosk- unarfræði taugakerfisins við Osló- arháskóla, þar sem hún varði doktorsritgerð sína sumarið 1991. Frá 1991 dósent í frumulífeðlis- fræði og fósturfræði við hjúkr- unarfræðideild HÍ, í hálfu starfi jafnhliða stöðu forstöðumanns Sjávarútvegsstofnunar HÍ frá 1995. Hún hefur verið framkvæmda- stjóri Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og þverfræði- legar rannsóknir frá 2006 þar sem sjálfbær þróun; sjálfbær nýting auðlinda, þ.m.t. öryggismál sjó- manna; og viðnámsþróttur sam- félaga gagnvart íþyngjandi um- hverfisbreytingum hafa verið helstu viðfangsefnin. Hnattræn hlýnun og mengun umhverfis eru dæmi um breytingar sem erfitt er að rannsaka því þær gerast svo hægt. Hins vegar gerast náttúru- hamfarir oft mjög hratt, og geta þjónað sem eins konar líkan fyrir rannsóknir á breytingum í um- hverfi mannsins, þar sem snöggar breytingar kalla á viðbúnað til hjartveikra barna, Hollvina Grens- ásdeildar, Íslensku óperunnar og Auðar í krafti kvenna. Af öllu hef- ur hún mesta ánægju af skemmti- legu fólki og valdi sér maka og tengdafjölskyldu samkvæmt því. Þau Ólafur Hannibalsson kynntust þegar hann var nýfluttur í bæinn Guðrún Pétursdóttir framkvæmdastjóri Stofnunar Sæmundar fróða við HÍ – 70 ára Afkomendurnir Ólafur Hannibalsson með alla afkomendur sína í Selárdal sumarið 2012. Mest gaman að skemmtilegu fólki 2020 Guðrún með dætrum og tengdabörnum árið 2020. Frá vinstri: Ieisha, Marta, Ásdís, Hallgrímur og Guðrún. 1998 Ólafur og Guðrún í Biskupstungum en myndin fangar vel þennan fallega streng sem var á milli þeirra. Til hamingju með daginn Seltjarnarnes Helgi Þór Elíasson fæddist 29. des- ember 2019 kl. 12.55. Hann vó 3.525 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Elías Sigurþórsson og Ásdís Helgadóttir. Nýr borgari 30 ára Silja ólst upp á Hvolsvelli en hún býr núna í Innri-Njarðvík. Hún vinnur í Sporthús- inu, en vegna Covid er það lokað núna. Hún hefur samt nóg að gera með stórt heimili. Helstu áhugamál hennar eru líkamsrækt og útivist og að vera með krökkunum. Kærasti: Hafstein Reykjalín, f. 1986, nemi. Börn: Gabríella Hill, f. 2012, Baltasar Hill, f. 2017 og Haukur Hill, f. 2018. Foreldrar: Sigurður Bjarni Sigþórsson, f. 1968, flugvirki hjá United í Bandaríkj- unum, og Ásta María Sigurðardóttir, f. 1964, vinnur hjá Sláturfélagi Suður- lands. Silja Sigurðardóttir 30 ára Hildur Björk er fædd og uppalin í Keflavík og býr þar enn. Hún er flug- maður að mennt og hefur starfað hjá Ice- landair undanfarin ár. Helstu áhugamál Hild- ar Bjarkar eru tónlist, ferðalög og öll úti- vera og einnig samvera með fjölskyld- unni. Maki: Jón Árni Benediktsson, f. 1989, flugmaður. Barn: Hekla Björk Jónsdóttir, f. 2018. Foreldrar: Páll Ketilsson, f. 1962, ritstjóri og eigandi Víkurfrétta, og Ásdís Björk Pálmadóttir, f. 1963, hárgreiðslukennari í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þau búa í Keflavík. Hildur Björk Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.