Morgunblaðið - 14.12.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.12.2020, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2020 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is „Við“ unnum – „þið“ töpuðuð Ekki þarf að fjölyrða um vin- sældir knattspyrnu; hún er einfald- lega vinsælasta íþrótt í heimi. Ís- lenska þjóðin er ekkert frábrugðin öðrum þjóðum hvað það varðar. Hún svolgrar í sig knattspyrnu af áfergju. Og hefur lengi gert. Eins og við þekkjum er knatt- spyrna til þess fallin að sameina okkur. Besta dæmið um það er þátttaka ís- lenska karla- landsliðsins á Evrópumeist- aramótinu í Frakklandi 2016 og Heimsmeist- aramótinu í Rússlandi tveim- ur árum síðar. Þar stóð þessi þjóð öll saman sem einn maður og í heilan mánuð í hvort skipti hverfðist allt líf okkar um sparkið, líka hjá þeim sem hafa alls engan áhuga á knattspyrnu. Enginn komst hjá því að hrífast með, ekki einu sinni fólk sem í sínu innsta eðli hefur andstyggð á hjarðeðli. Fólk kom saman í heimahúsum, á ölstofum, í vinnunni og á víðavangi undir ber- um himni til að fylgjast með hverri spyrnu, hverjum spretti og styðja strákana okkar. Og öllum sigrum var fagnað sem um styrjöld væri að ræða. Talandi um styrjaldir er knatt- spyrnan vitaskuld einnig þeirrar náttúru að hún getur mjög auð- veldlega sundrað okkur. Gott dæmi um það er heimildarþáttur sem Ríkissjónvarpið sýndi á árinu. Undirrót haturs kallast hann og fjallar um það hvers vegna við mannfólkið hötum. Yfirferðin hófst nokkuð óvænt á eyjunni Cayo Santiago, sem til- heyrir Púertóríkó, en þar er að finna apaketti, svonefnda rhesus- apa, sem fæðast inn í tiltekna fylk- ingu sem hefur ímugust á öðrum apakattafylkingum þar um slóðir. Eyða fylkingar þessar svo ævinni í átökum og deilum sín á milli. Frá apaköttunum lá leiðin þráð- beint til Norður-Lundúna, þar sem á vegi dagskrárgerðarfólksins urðu áhangendur knattspyrnufélaganna Arsenal og Tottenham Hotspur. Ef marka má myndina eru örlög þeirra sambærileg við örlög apa- kattanna; þeir fæðast inn í eitt fé- lag og eru því dæmdir til þess að hata annað félag um aldur og ævi. „Hvað kemur fyrst upp í hugann þegar þú heyrir minnst á Arsen- al?“ var fylgjandi Tottenham spurður. Og ekki stóð á svari: „Hatur.“ Einnig kom fram að sparkið væri hans trúarbrögð. Þetta eru svo sem þekktar stærðir en útskýra ekki með bein- um hætti hvers vegna enska knatt- spyrnan hefur svona ofboðslega þýðingu fyrir sálarlíf íslensku þjóð- arinnar. Vandfundinn er sá Íslend- ingur, sem á annað borð hefur áhuga á knattspyrnu, sem ekki styður lið á Englandi. Oftar en ekki er þetta gert af mikilli ástríðu og jafnvel meiri ákafa en stuðn- ingur við liðið sem viðkomandi fylgir að málum hér heima. Öll þekkjum við fólk sem heldur með tilteknu liði á Englandi en höfum ekki hugmynd um hvar það stend- ur í sparkinu hér heima. Mögulega hefur lengd keppnis- tímabilsins eitthvað að segja; Ís- landsmótið stendur að jafnaði í fimm mánuði á ári en Englands- mótið í rúma níu mánuði. Þannig að menn lifa mun lengur með Liverpool en KR, nú eða Brentford en Kormáki. Það eru fleiri leikir að sjá, velta vöngum yfir, ræða um, gleðjast eða þjást. Að ekki sé talað um þvælutímabilið á sumrin, þegar menn ganga kaupum og sölum milli félaga. Við þær aðstæður er enginn afsláttur gefinn af athygl- inni. Ekki má heldur útiloka vallar- skilyrðin. Leikir á Íslandsmótinu fara gjarnan fram í kulda, rigningu og trekk en það viðrar alltaf jafn vel í stofunni fyrir framan túbu- sjónvarpið og í seinni tíð flatskjá- inn. Í þessu sambandi ber þó að hafa í huga að vinsældir ensku knattspyrnunnar á Íslandi, eins og fram hefur komið, voru orðnar út- breiddar og almennar löngu áður en reglulegar sjónvarpsútsend- ingar hófust. Og hvers vegna enska knattspyrnan frekar en til dæmis sú spænska, ítalska, franska eða þýska? Þau lönd búa einnig að vinsælum deildum og risastórum stjörnum en eigi að síð- ur heyrir maður ekki að áhangend- ur Juventus, Real Sociedad eða RB frá Hlaupsigum komi saman í stórum stíl á íslenskum ölstofum til að horfa á leiki. Hverju sætir þetta? Ég er ekki fyrsti maðurinn til að velta vöngum yfir þessari ástríðu íslensku þjóðarinnar fyrir ensku knattspyrnunni og örugglega ekki sá síðasti. Við skulum grípa snöggvast niður í ríflega fjörutíu ára gamla greiningu úr fyrsta tölu- blaði og fyrsta árgangi hins gagn- merka knattspyrnurits Tuðrunnar, 1. tbl. 1. árg. 1. maí 1977, en útgef- andi var unglingaráð knatt- spyrnudeildar Selfoss og ábyrgð- armaður Björn Gíslason. „Það fer naumast á milli mála, að enska knattspyrnan nýtur gífur- legra vinsælda meðal íslenzks íþróttaáhugafólks,“ sagði Tuðran. „Kemur þar margt til, en þó senni- lega sérstaklega það að fjölmiðlar hafa sýnt ensku knattspyrnunni mun meiri áhuga á liðnum árum en knattspyrnu annarra þjóða og einnig hafa leikir ensku knatt- spyrnunnar verið notaðir á get- raunaseðla íslenzkra getrauna. Þar af leiðir að allir þeir sem taka þátt í getraunastarfinu hafa mikinn áhuga á ensku liðunum, gengi þeirra og úrslitum leikja.“ Ekki nóg með það. „Fjölmargir Íslendingar eru sannkallaðir sérfræðingar í ensku knattspyrnunni, og er þar bæði um að ræða unga og aldna,“ hélt Tuðr- an áfram. „Þeir vita nákvæmlega hvaða leikmaður leikur með hverju liði, hver er seldur til þessa liðsins eða hins og hver er beztur hjá hinu liðinu eða þessu í þessari og þessari stöðu á vellinum. Þegar hlustað er á tal slíkra sérfræðinga, ber það ósjaldan á góma hver skoraði fyrir þetta lið eða hitt í fyrra eða árið þar áður. Vel flestir þeir sem fylgjast með ensku knatt- spyrnunni eiga þar sín uppáhalds- lið. Margir halda með þeim liðum sem komið hafa í heimsókn til Ís- lands, en meðal þeirra má nefna Queens Park Rangers, Bury, Ars- enal, Liverpool. Everton og Tott- enham. Aðrir hafa tekið ástfóstri við ákveðin lið á velgengnitímum þeirra og fylgja þeim síðan gegn- um súrt og sætt.“ Fjölmiðlar og getraunir eru hér nefnd sem helstu orsakir. Gott og vel. Það er alls ekki ósennilegri skýring en hvað annað. En hvers vegna tóku fjölmiðlar á sínum tíma ákvörðun um að fjalla svona veg- lega um ensku knattspyrnuna en ekki þá ítölsku, spænsku eða þýsku? Og hvers vegna höfnuðu leikir á Englandi frekar á get- raunaseðlum? Þessu er ekki auð- velt að svara, nema þá á þann hátt að enska deildin hafi einfaldlega meira aðdráttarafl en aðrar deildir. Árið 2017 var gerð rannsókn á íslenskum stuðningsmönnum enskra knattspyrnuliða í lokaverk- efni til M.Ed.-prófs í íþrótta-, tóm- stunda- og þroskaþjálfadeild Há- skóla Íslands. Þar kemst höfundurinn, Atli Jóhannesson, að eftirfarandi niðurstöðu: „Enska deildin er vinsælasta sjónvarpsefni í heiminum. Áhuga- málið er mjög stórt hér í landi og það er mat höfundar að fleiri tengja við liðið í Englandi heldur en liðið sem stuðningsmenn styðja hér á landi. Höfundur telur að þessi upplifun eða þessi sterka tenging við lið og að vera ekki sama um úrslitin sé þáttur til að reyna að bæta líf sitt eða sækjast eftir einhverjum verðlaunum. Þeir segja hluti eins og „við“ og „þeir“ og telja sig jafnvel vera part af lið- inu. Stuðningsmenn geta engan veginn stjórnað eða haft áhrif á það hvernig liðinu gengur en því má halda fram að fátt annað í líf- inu skipti þá eins miklu máli eins og gengi liðsins.“ Um vinsældir ensku knattspyrn- unnar segir Atli meðal annars: „Það liggur kannski beinast við en þeir [viðmælendur höfundar] tala allir um að gæðin í enska bolt- anum séu mikil en síðan strax í framhaldi að enska deildin sé ekki besta deild í heimi. Það sem veldur því að þeim finnst enski boltinn skemmtilegastur er hversu jöfn deildin sé. Á meðan boltinn í Skot- landi, Þýskalandi og á Spáni sé kannski barátta á milli tveggja liða þá sé fótboltinn á Englandi þannig að allir geti unnið alla. Jafnvel geta lið í neðri deildum unnið A- deildarlið í bikarnum. Enski bolt- inn er hraður þar sem allt getur gerst og það sé það sem er svona skemmtilegt við þetta. Í enska boltanum er mikill kraftur þar sem meira er um löng hopp, tæklingar og hröð hlaup sem bæði lítur betur út í sjónvarpi og er líkara íslensku deildinni. Þó svo að tæknilega sé betri fótbolti í öðrum deildum þá er það spennan og óvissan sem er stór þáttur í skemmtanagildi ensku deildarinnar.“ Ljóst er að sjónvarpsútsend- ingar hafa ekki dregið úr vinsæld- um ensku knattspyrnunnar á Ís- landi. Öfugt við til dæmis ítölsku knattspyrnuna. Margar af skær- ustu stjörnum heims, svo sem Diego Maradona og Michel Platini, léku á Ítalíu á níunda áratugnum þegar íslenskt sjónvarp fór að gefa henni aukinn gaum, sýna valda kafla og síðar beint frá leikjum. Mörgum brá hins vegar í brún þegar í ljós kom að hraðinn og ákefðin voru mun minni í leikj- unum en við áttum að venjast frá Englandi. Einhverjum fannst eins og verið væri að sýna ensku knatt- spyrnuna hægt og ágætur vinur minn á Akureyri leikgreindi ítölsku knattspyrnuna ágætlega á þessum tíma. „Bæði lið eru í vörn. Síðan fær leikmaður númer 10 boltann og röltir með hann í róleg- heitunum upp að vítateig hins liðs- ins. Nemur þar staðar og tilkynnir hinum leikmönnunum hátt og snjallt: Nú ætla ég að vippa bolt- anum!“ Þetta er auðvitað spéspegill en segir sína sögu um upplifun manns sem vanist hafði meiri hraða og spennu og var á tíðum löð- ursveittur og örmagna eftir að hafa horft á leiki í ensku knatt- spyrnunni. Hér hefur mér pottþétt tekist að móðga allt það góða fólk sem hefur dálæti á ítölskum fót- menntum en það verður bara að hafa það – mig hefur lengi langað að sjá þessa skeleggu leikgrein- ingu á prenti. Gegnum súrt og sætt Bókarkafli |Íslendingar gleðjast og þjást yfir ensku knattspyrnunni eins og hún væri þeirra eigin. Í bókinni Í faðmi ljónsins rekur Orri Páll Ormarsson það hvenær og hvernig þessi ástar- saga hófst og hvað hef- ur viðhaldið ástinni í áratugi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ástríki Ungir stuðningsmenn Liverpool bíða spenntir á Players í Kópavogi eftir að leikur liðsins við Manchester United hefjist í september 2008. Morgunblaðið/Golli Orri Páll Ormarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.