Morgunblaðið - 14.12.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.12.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2020 14. desember 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 127.65 Sterlingspund 167.8 Kanadadalur 99.96 Dönsk króna 20.798 Norsk króna 14.472 Sænsk króna 15.093 Svissn. franki 143.53 Japanskt jen 1.2259 SDR 183.07 Evra 154.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 190.5615 Hrávöruverð Gull 1833.65 ($/únsa) Ál 2031.0 ($/tonn) LME Hráolía 50.45 ($/fatið) Brent VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Ný íslensk vefverslun var opnuð á dögunum og væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að verslunin selur vindla. Elías Blöndal Guðjónsson er athafna- maðurinn á bak við síðuna Vindill.is og hefur hann aldeilis fengið að hafa fyrir því að opna sérverslun með tóbak á netinu. Elías er mikill stangveiðimaður og kviknaði hugmyndin að rekstrinum þegar hann hugðist kaupa sér vindla fyrir veiðiferð. Uppgötvaði Elías að ekki var hægt að panta vindla hjá ís- lenskum seljendum yfir netið. „Það besta sem ég fann voru erlendar vindlabúðir en vindl- arnir sem ég pantaði mér þaðan bárust ekki til landsins fyrr en eftir veiðiferðina,“ segir hann en einstaklingum er heimilt, upp að vissu marki, að flytja inn tóbak til eigin nota. Liðu um þrír mánuðir frá því hugmyndin kviknaði og þar til Vindill.is fór í loftið. Kom sér vel að Elías er lögfræðingur að mennt því megnið af undirbúningnum fór í að rýna í lög og reglugerðir og eiga í misauðveldum sam- skiptum við opinbera starfsmenn. Hann segir að lítill vandi hafi verið að koma á sambandi við framleiðendur sem voru flestir mjög áhugasamir um að nema land á nýju mark- aðssvæði, og það þrátt fyrir að íslenski vindlamarkaðurinn sé einhver sá minnsti í Evrópu. „Í þessu verkefni hef ég varið lang- mestum tíma í samskipti við ríkið og í glím- una við þessa stofnun sem Áfengis- og tób- aksverslun ríkisins er. Þar reiknast mér til að hafa þurft að eiga við níu starfsmenn í fjórum deildum til þess eins að geta flutt inn um það bil 50 öskjur af vindlum.“ Þvinguð viðskipti við ÁTVR Er óhætt að segja að reglurnar um inn- flutning og sölu á vindlum virðast komnar til ára sinna. Fyrsta hindrunin sem þurfti að yfirstíga var hvernig túlka skyldi lögin sem gefa ÁTVR einklaeyfi á heildsölu tóbaks. „Vindill.is er ekki heildsölufyrirtæki heldur innflytjandi og smásali og fellur starfsemin þannig ekki undir einkaleyfi ÁTVR. Ef ég, hins vegar, myndi t.d. vilja selja vindlana áfram til Fríhafnarinnar kallaði það á frekari flækjur.“ Næsta hindrun sneri að því að vindlarnir sem Elías flytur inn þurfa engu að síður að hafa viðkomu í vöruhúsi ÁTVR. „Ég sé alfar- ið um það sjálfur að koma á tengslum við framleiðendur, senda þeim pantanir og flytja vöruna inn, en þegar vindlarnir eru komnir á frísvæði hér á landi neyðir ÁTVR mig til að selja þeim hvern einasta vindil á verði sem ég fæ að ákveða. Því næst sækir ÁTVR vindl- ana, fer með þá í eigin geymslu og selur mér svo til baka með 18% álagi,“ útskýrir Elías. „ÁTVR hefur sumsé ekki gert neitt nema sækja vöruna og afhenda hana til baka og tekur fyrir það þessa ríflegu álagningu.“ Hefur Elías gert þann fyrirvara á viðskipt- unum við ÁTVR að hann áskilji fyrirtæki sínu rétt til að láta reyna á þetta fyrirkomulag fyrir dómstólum. Hefur hann falið lögmanni sínum að undirbúa málsókn enda ekki annað að sjá en að um þvinguð viðskipti sé að ræða. „Kerfið er að mínu mati úrelt og sennilega ólöglegt, og reglurnar ekki ósvipaðar því og ef Matvælastofnun væri t.d. falið einkaleyfi á heildsölu á allri matvöru bara til þess eins að athuga hvort merkingarnar á hverri krukku væru í lagi – og taka fyrir það ríflega þóknun í sinn hlut.“ Hið opinbera tekur annan hvern vindil og aðra hverja vinnustund Þá bætast við ýmis gjöld og skattar. Þurfti Elías að fá leyfi til smásölu á tóbaki hjá Reykjavíkurborg þar sem fyrirtækið er skráð. „Borgin hugðist í fyrstu ekki veita mér þetta leyfi vegna þess að um netverslun er að ræða og sveitarfélagið taldi netið ekki í sínu um- dæmi. Þurfti að benda þeim á fordæmi sem var skapað þegar Fríhöfninni var veitt sam- bærilegt leyfi,“ útskýrir Elías en gjaldið fyrir smásöluleyfið er 23.700 kr. og þarf svo að greiða 35.000 kr. í árlegt eftirlitsgjald. Einnig þurfti innflutningsleyfi frá Tollstjóra sem var auðfengið og fljótafgreitt. Virðisaukaskattur er lagður á vindlana við komuna til landsins og að auki tóbaksgjald sem nemur 28,7 kr. á hvert gramm af tóbaki. Álag ÁTVR bætist þar ofan á, og virðis- aukaskattur rukkaður öðru sinni við endursöl- una til Vindils.is. Innskattinn fær Vindill.is endurgreiddan í samræmi við reglur um virð- isaukaskatt en þó ekki fyrr en eftir dúk og disk: „Það þarf að staðgreiða þessi gjöld en endurgreiðslurnar berast ekki fyrr en að mörgum mánuðum liðnum. Til að gera illt verra þá ákveður ÁTVR upp á sitt eindæmi að vera í reikningsviðskiptum við mig og borgar ekki fyrir vindlana fyrr en fimmtánda dag mánaðarins eftir að þau hafa tekið við vörunni. Ég þarf aftur á móti að staðgreiða þegar ég kaupi vindlana til baka frá ÁTVR. Þetta eru viðskiptahættir sem hið opinbera hefur ákveðið að stunda alveg óumbeðið.“ Þegar upp er staðið reiknast Elíasi til, eins og fyrr var getið, að ríflega helmingur af vinnutíma hans hafi farið í samskipti við op- inberar stofnanir en til viðbótar við það tekur hið opinbera til sín ríflega helminginn af út- söluverði hvers vindils í formi gjalda og álagningar. Elías er, sem betur fer, búinn að fjármagna reksturinn vel og hefur því það fjárhagslega úthald sem þarf til að koma vindlaversluninni vel af stað. Hann má ekki auglýsa vöruna en segir að opnun vefverslunarinnar hafi spurst hratt út og pantanirnar teknar að streyma inn. Sýnist Elíasi að íslenski vindlamarkaður- inn fari nokkuð ört stækkandi. „Vindlar virð- ast vera að sækja á. Rétt eins og fólki þykir gaman að gera sér dagamun endrum og sinn- um með góðu viskíi eða handverksbjór þá er áhuginn mikill á alvöru hágæðavindlum til að njóta í veiðiferðinni, á golfvellinum eða til að slaka á í vikulok. Með því að bæta aðgengi fólks að vindlum og með því að auka fram- boðið á salan vafalítið eftir að aukast.“ Ekki heiglum hent að selja vindla Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fyrirhöfn Elías hefur þurft að eyða miklum tíma í að fást við hinar ýmsu hindranir hins opinbera. Vindlarnir eru núna komnir á sinn stað og Vindill.is hefur fengið ágætis viðtökur.  Óþarfa flækjur og undarlegt gjaldaumhverfi torvelduðu opnun nýrrar vefverslunar með vindla  Eigandinn vill höfða mál vegna meintra þvingaðra viðskipta við Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins Bandaríska samsteypan Authentic Brands Group freistar þess nú að taka yfir bresku verslunarveldin Deben- hams og Arcadia Group sem á og rek- ur Topshop og fleiri tískuverslanir. Telegraph greindi frá þessu á laugar- dag og hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum í breska fjármála- geiranum. Authentic Brands var stofnað árið 2010 og á meðal annars réttinn á nafni og ásjónu tónlistar- og íþróttastjarna og íþróttatímaritið Sports Illustrated. Í sumar keypti félagið Brooks Broth- ers sem er með rótgrónari merkjum á bandrískum herrafatamarkaði, sem og Simon Property Group sem er stærsta verslanamiðstöðvafélag Bandaríkj- anna. Fyrir rösku ári eignaðist Auth- entic Brands lúxusvöruverslunina sögufrægu Barneys New York. Bæði Debenhams og Arcadia hafa átt í miklum rekstrarvandræðum und- anfarin misseri og sóttu nýlega um greiðslustöðvun. Authentic Brands hefur aftur á móti tekist að fjármagna sig vel á þessu ári og keypt fjölda fyr- irtækja sem lent hafa í vanda vegna kórónuveirufaraldursins. ai@mbl.is AFP Rautt Debenhams hefur átt erfitt uppdráttar í veirufaraldrinum. Bandaríkjamenn vilja kaupa Deben- hams og Topshop

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.