Morgunblaðið - 14.12.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.12.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2020 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mamma, pabbi, börn og bíll hef- ur gjarnan verið sagt, því sú var tíðin að einkabíllinn var tákn- mynd þess frelsis sem kjarna- fjölskyldan vildi og kaus sér. En nú eru tímarnir breyttir. „Já, best væri ef aukin umhverfisvit- und hjá fólki í dag næði betur til dags daglegra venja í sam- göngum, þannig að fólk væri meðvitaðra um hverja ferð, hug- leiddi hvort strætó, hjól eða ganga geti verið valkostur í hvert sinn,“ segir Ólöf Kristjáns- dóttir samgönguverkfræðingur. Reiknað er með að árið 2040 verði íbúar á höfuðborg- arsvæðinu orðnir liðlega 280 þúsund, borið saman við 212 þúsund í dag. Um ferðamáta á höfuðborgarsvæðinu og í þétt- býlum svæðum í helstu sam- anburðarlöndum Íslendinga er almennt litið svo á að göturnar beri ekki að íbúum og bílum fjölgi í sama taki. Því þurfi fjöl- breyttari ferðamáta en útreikn- ingar og margvíslegur und- irbúningur í því sambandi er starf Ólafar hjá verkfræðistof- unni Mannviti. Vindur í hárið og vellíðan á göngu „Margt ungt fólk í dag hef- ur aðrar væntingar í samgöngu- málum og ég held líka að sam- gönguverkfræðingar í dag hugsi hlutina í víðara samhengi, því samgöngur eru stórt umhverf- ismál og heilbrigðismál og hafa áhrif á gæði borga og hvernig okkur líður í því umhverfi. Með góðu samspili samgangna og skipulags má draga úr ferða- þörf, til dæmis með þéttri og blandaðri byggð með mikilli nærþjónustu. Samgöngulausnir þurfa alltaf að miðast við um- hverfi og aðstæður. Það er erfitt að þjónusta dreifbýl úthverfi vel með almenningssamgöngum rétt eins og mikil bílaumferð á þétt- býlum svæðum getur haft slæm áhrif hvað varðar öryggi, meng- un og plássþörf bílastæða og gatna. Sú þörf eykur göngu- vegalengdir svo úr uerður víta- hring,“ segir Ólöf og áfram: „Með síaukinni umferð í borgum er einkabíllinn ekki svo meðfærilegur á háannatíma. Þá geta aðrir samgöngumátar jafn- vel veitt meira frelsi. Við getum tekið strætisvagn þegar hentar og ef ferðir verða á sjö mínútna fresti, eins Borgarlínan á að vera, þurfum við hvorki að líta á klukku né tímatöflu. Við getum lagt hjólinu hvar sem er og fengið vindinn í hárið og göngu- ferðir veita vellíðan.“ Almenningur er tilbúinn Loftslagsbreytingar og sterkari umhverfisvitund ráða, að mati Ólafar, miklu um að al- menningur er tilbúnari til breyt- inga í samgönguvenjum sínum. Margir hafa búið erlendis og á undanhaldi sé sú hugmynd að aðstæður á Íslandi þýði að fara verði allra ferða á bíl. Áhugi á líkamsrækt og útivist hafi áhrif á ferðavenjur. Aðstæður í kófinu hafi líka kennt okkur mikilvægi öflugrar nærþjónustu og góðra hjóla- og göngustíga. „Við skipulag nýrra íbúða- hverfi er hægt að huga að sjálf- bærni í öllum þáttum. Raunar hafa það verið mín helstu verk- efni undanfarið að meta sjálf- bærni skipulags út frá til þess gerðu vottunarkerfi,“ segir Ólöf. Tiltekur að Urriðaholt og Vífils- staðaland í Garðabæ, Blikastaða- land í Mosfellsbæ og Orku- húsreiturinn í Reykjavík fari nú í gegnum slíkt mat. „Ég fer yfir skipulagsgögn út frá umhverf- ismálum og til dæmis því hvort skipulagið stuðli að vistvænum og öruggum samgöngum.“ Gjár í gegnum í íþróttasvæði Nýlega kom fram tillaga á Alþingi að lækka hámarkshraða bíla í þéttbýli og það sjónarmið segir Ólöf að sé allrar athygli vert. Hætta á alvarlegum slysum aukist í veldivexti með hærri há- markshraða. Því sé mikilvægt að fara yfir hraðatakmörk og önn- ur atriði í öryggisátt. „Víða mynda götur gjár í gegnum hverfi sem eru eitt íþróttasvæði barna, samanber Hringbrautin í Vesturbænum og Miklabraut í Hlíðunum. Tryggja þarf öryggi óvarinna vegfarenda og að börn geti farið um hverfið sitt á eigin spýtur, gangandi og hjólandi. Samgöngur og lýð- heilsa haldast í hendur. Að búa í hverfi þar sem stutt er að fara gangandi eða hjólandi í skólann, sundlaugina, hverfisbúðina eða á útivistarsvæði eru eftirsóknar- verð lífsgæði. Innviði sem þessa er nú verið að efla og styrkja og er mjög gott mál.“ Einkabíllinn er ekki góður kostur á háannatíma í borgarumferðinni Morgunblaðið/Sigurður Bogi Verkfræðingur Einkabíllinn ekki meðfærilegur á háannatíma í borgarumferð, segir Ólöf Kristjánsdóttir. Umhverfisvitund í samgönguvenjum  Ólöf Kristjánsdóttir fæddist 1980 í Reykjavík og er uppalin í Laugardalshverfinu í Reykjavík að mestu leyti, en einnig á Hvammstanga. Hún er sam- gönguverkfræðingur að mennt, með B.sc. í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og lauk M.Sc. í samgönguverkfræði ár- ið 2006 frá University of Wash- ington í Seattle í Bandaríkj- unum.  Ólöf hefur starfað hjá Mann- viti verkfræðistofu og forvera hennar, Hönnun, frá 2003. Hún er fagstjóri samgöngufaghóps hjá Mannviti og situr í stjórn fyrirtækisins. Hver er hún? Umferð Bílalest á leið til vesturs á Miklubraut. Þörf er á breytingum. „Að finna veraldarsöguna svona óvænt inni á sínu heimili er skemmtileg upplifun,“ segir Mi- roslawa Helga Þorleifsson á Fá- skrúðsfirði. Að undanförnu hefur hún föndrað við að gera upp gamla kommóðu sem talin er meira en 100 ára gömul, og í því starfi gerðist merkilegt atvik. Kommóðan var upphaflega í eigu hjónanna Helgu Sigurðar- dóttur og Sigurðar Jónssonar múrameistara í Reykjavík, sem látin eru fyrir margt löngu. Þau Helga og Sigurður arfleiddu Há- skóla Íslands að öllum sínum eign- um. Seinna bauðst tengdafor- eldrum Miroslöwu, séra Þorleifi Kjartani Kristmundssyni sóknar- presti á Kolfreyjustað við Fá- skrúðsfjörð og konu hans Þórhildi Gísladóttur, munir úr búinu, með vísan til þess að Helga var föður- systir Þórhildar. Með því barst kommóðan austur á land og eftir þeirra dag til Kristmundar, sonar þeirra, og Miroslöwu. „Kommóðuna er ég búin að pússa með sandpappír á alla kanta. Þetta gekk vel en mikið varð ég hissa þegar ég fór að skoða bakhliðina og tók frá speg- ilinn sem þar var,“ segir Miro- slawa. „Öll hliðin var þakin blaða- úrklippum, þar sem mátti finna myndir og frásagnir af Hitler, Stalín og Mússólíni. Mest af þessu eru úr fréttir úr Mogganum á ár- unum fyrir seinni heimsstyrjöld, löngu liðnum tíma en áhugaverð- um. Nú þarf ég bara að finna út hvernig best megi varðveita úr- klippurnar. Þetta eru menningar- verðmæti sem halda verður til haga.“ sbs@mbl.is Stríðssaga á bak- hlið kommóðu  Óvæntur fundur á Fáskrúðsfirði Morgunblaðið/Albert Kemp Fróðleikur Miroslawa Helga virðir fyrir sér fróðleik fyrri tíma. STOFNAÐ 1956 Ísafold 41 fundarstóll m. örmum 5.415 kr. m.vsk Tilboðsverð Bæjarlind 8-10 201 Kópavogur sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is 3 Fjöldi áklæða í boði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.