Morgunblaðið - 14.12.2020, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2020
Fullkomið flatbrauð f
yrir öll tækifæri
„VEL GERT. GEFIÐ YKKUR SJÁLFUM NÚ
GOTT KLAPP.” „SÉRÐU EITTHVAÐ?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að virða fjarlægðar-
takmörk til að vernda
ástvini.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GRETTIR, HVAÐ ÆTLAR ÞÚ
AÐ GERA Í SAMBANDI VIÐ
ÞENNAN MÚSAGANG?!
NÁLGUNARBANN? ER ÞAÐ ALLT OG SUMT?
OG 50 ÞÚSUND
KRÓNA REIKNING FRÁ
LÖGFRÆÐ INGNUM
HEYRÐU! ÉG ER MJÖG
ÞAKKLÁTUR FYRIR KVÖLD-
VERÐAR BOÐIÐ EN MATURINN
Á DISKNUM MÍNUM ER
MATURINN MINN!
ÚTRÝMUM
HUNGRI
EKKI AÐ
MATI
HRÓLFS!
ÞEGAR HANN SPLÆSIR ÞÁ Á HANN
ALLAN MATINN Á BORÐINU!
STING
SKERI
frá Selárdal, en hún að utan. „Við
kynntumst í baráttunni gegn
byggingu ráðhússins í Tjörninni,“
segir Guðrún og hlær, „því má
segja að núverandi ritstjóri Morg-
unblaðsins, en þá borgarstjóri,
hafi komið einhverju góðu til leið-
ar á löngum ferli.“
Samanlagt eru börn þeirra Ólafs
Hannibalssonar fimm, barnabörn-
in átta og fleiri á leiðinni.
Fjölskylda
Eiginmaður Guðrúnar er Ólafur
Hannibalsson, f. 6.11. 1935, d.
30.6. 2015, blaðamaður og ritstjóri.
Foreldrar hans voru hjónin Sól-
veig Ólafsdóttir og Hannibal
Valdimarsson.
Börn Guðrúnar og Ólafs eru: 1)
Ásdís, f. 20.2. 1989, heimspekingur
og alþjóðafræðingur hjá Inter-
national Crisis Group í Brussel,
maki Hallgrímur Oddsson hag-
fræðingur og þau eiga Guðrúnu
Helgu, f. 20.1. 2019. 2) Marta, f.7.
2. 1992, læknir, maki Ieisha Oliver
frá Georgíu, BNA, nú dýra-
fræðinemi við Nottingham Uni-
versity í Bretandi. Systur Guð-
rúnar eru Ragnhildur Pétursdóttir
Paus (móðir Guðrún Briem), f.
28.12. 1937, endurskoðandi í Osló,
Noregi og Ólöf Pétursdóttir, f. 8.7.
1948, d. 20.3. 2008, dómstjóri Hér-
aðsdóms Reykjaness.
Foreldrar Guðrúnar eru hjónin
Marta Thors, f. 28.3. 1918, d.
20.12, 1998, eiginkona sendiherra í
áratug, fulltrúi á tónlistardeild
Ríkisútvarpsins og Pétur Bene-
diktsson, f. 8.12. 1906, d. 29.6.
1969, sendiherra, Landsbanka-
stjóri og alþingismaður.
Guðrún
Pétursdóttir
Sveinn Víkingur Magnússon
söðlasmiður og veitingamaður á Vertshúsinu á Húsavík
Kristjana Guðný
Sigurðardóttir
ljósmóðir á Húsavík
Benedikt Sveinsson
þingmaður og forseti neðri deildar Alþingis, stofnandi
Landvarnarflokksins; ritstjóri Ingólfs og Fjallkonunnar
Guðrún Pétursdóttir
frá Engey, stofnfélagi Hins íslenska kvenfélags,
Kvenréttindafélags Íslands, formaður
Mæðrastyrksnefndar og Heimilisiðnaðarfélagsins
Pétur Benediktsson
sendiherra, Landsbankastjóri
og alþingismaður
Pétur Kristinsson
bóndi í Engey
Ragnhildur Ólafsdóttir
húsfreyja í Engey og frumkvöðull í vinnslu mjólkur og ullar
Thor Jensen
frumkvöðull í verslun, útgerð og landbúnaði á 20. öld
Margrét Þorbjörg
húsfreyja í Reykjavík
Ólafur Thors
alþingismaður og ráðherra, formaður
Sjálfstæðisflokksins 1934-1961
Ingibjörg Indriðadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Indriði Einarsson
hagfræðingur og
leikskáld í Reykjavík
Marta María Pétursdóttir Guðjohnsen
húsfreyja í Reykjavík
Úr frændgarði Guðrúnar Pétursdóttur
Marta Thors
starfaði í áratugi fyrir utanríkisþjónustu
Íslands sem eiginkona sendiherra. 1969-
1987 á Tónlistardeild Ríkisútvarpsins.
Sigurlín Hermannsdóttir hefurorð á því á Boðnarmiði að
menn hafi einhverjar áhyggjur af
því að skötuveislur rúmist ekki inni
í jólabúbblunni:
Á tánum menn varlega tipla
því tímarnir hættuvef knipla.
Menn segja úr þessu
að á Þorláksmessu
á skötunni muni þeir skripla.
Jónas Frímannsson sendi mér
tölvupóst, – „Skammdegið“:
Dagsbirtan í desember
dvínar fyrir jólin.
Góðri frétt þó fagna ber
þá fer að hækka sólin.
Friðrik Steingrímsson yrkir á
Boðnarmiði:
Um fjölda mörkin flestir þrátta
flæða víða tár um kinn.
„Jólasveinar einn og átta“
ættu að sleppa í þetta sinn.
Ingunn Björnsdóttir svarar:
Svo er ekki í Svíþjóð núna.
Sveini verður fargað þar.
Þeir sig telja af kóvid knúna
og kom’ ei fleir’en átt’á bar.
Pétur Blöndal leggur inn orð:
Á næturklúbba nú þeir ná
níu sveina bjargföst vissa;
ef fjöldinn reynist þrettán þá
þrír af öllu djammi missa!
Sigurður Atlason kveður:
Áhyggjum mun ekki leyna
er nú fyrir dyrum vá.
Þrettán eigum sæla sveina,
svo þeim fækka mun um þrjá
Jón Arnljótsson er tölvís:
3 + 9 það er 12,
því ég spurning sendi:
Mun þá einn „um ganga gólf,
með gildan staf í hendi“.
Indriði Aðalsteinsson á Skjald-
fönn yrkir og kallar „Bálviðri“:
Nú er úti veður verra.
Víst fá sumir kvef og hnerra.
Naglfast allt til fjandans fokið.
Fyrr má vera djöfuls rokið.
Jón Atli Játvarðarson bætir við:
Bylur regn á brotnum glugga,
byrjar traktorinn að rugga,
hnútar nálgast nógu stórir
núna 24.
Guðrún Bjarnadóttir á síðasta
orðið:
Ef hnerrar fólk í hörkuroki,
held það eigi að panta tíma,
og finnist einhver flensa í stroki,
flýja heim í ból með síma
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Skriplað á skötunni
og jólasveinarnir