Morgunblaðið - 14.12.2020, Side 27

Morgunblaðið - 14.12.2020, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2020 ENGLAND Kristján Jónsson kris@mbl.is Gylfi Þór Sigurðsson var í sviðs- ljósinu í ensku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu um helgina þegar hann skor- aði sigurmarkið gegn stórliði Chelsea í 1:0 sigri Everton á Goodison Park í Liverpool. Var þetta fyrsta mark Gylfa í deildinni á tímabilinu og hefur hann þá skorað 62 mörk í deildinni á ferlinum fyrir Swansea, Tottenham og Everton. Gylfi hefur sérstakt lag á því að skora gegn Chelsea og hefur nú skorað á móti Chelsea í sex leikj- um á ferlinum. Oftar en á móti nokkru öðru liði á Englandi. Fyrir utan að skora eina mark leiksins úr vítaspyrnu þá var Gylfi fyrirliði liðsins. Gylfi hefur byrjað nokkra leiki á tímabilinu á vara- mannabekknum og var þetta því góð- ur dagur fyrir hann. Sigurinn var nokkuð óvæntur því Everton var án fjögurra leikmanna að þessu sinni. „Þetta var erfitt í kvöld. Við þurft- um að verjast fram á síðustu sekúndu en þessi þrjú stig eru mjög mikil- væg,“ sagði Gylfi í sjónvarpsviðtali við Sky Sports þegar sigurinn var í höfn. Eftir mjög harðar sóttvarna- aðgerðir á Englandi, þar sem til að mynda margra vikna útgöngubanni var beitt í höfuðborginni, hefur áhorf- endum nýlega verið leyft að fara á völlinn. Í litlum mæli þó og út frá ströngum reglum, en um tvö þúsund manns sáu leikinn. „Ég var næstum búinn að gleyma því hvernig er að spila fyrir framan áhorfendur. Ég fékk gæsahúð,“ sagði Gylfi einnig en Everton er með 20 stig í 7. sæti eins og West Ham United og Manchester United sem eru í 6. og 8. sæti. Fulham kom á óvart Stemningin í herbúðum Liver- pool-liðanna var líklega ólík um helgina því í gær gerðu meistararnir í Liverpool óvænt jafntefli gegn Ful- ham, 1:1. Þótt Liverpool væri með boltann 75% þess tíma sem hann var í leik þá var liðið samt sem áður undir í 54 mínútur eða frá því Bobby Reid kom Fulham yfir á 25. mínútu og þar til Mo Salah jafnaði á 79. mínútu. Ful- ham er í 17. sæti með 8 stig en Liver- pool með 25 stig í 2. sæti. Heldur rólegt hefur verið yfir hinu sterka liði Liverpool í vikunni en liðið hefur gert jafntefli við Midtjylland og Fulham í síðustu leikjum. Ef til vill er það lognið á undan storminum en á miðvikudagskvöldið mætast tvö efstu liðin, Tottenham og Liverpool. Jóhann ekki leikfær Grannaslagur Manchester liðanna á Old Trafford þótti bragðdaufur og tókst hvorugu liðinu að skora. Liðin þóttu ekki sérstaklega líkleg til þess og þótt margir telji líklegt að City berjist um titilinn í vor þá eru þessi lið aðeins í 8. og 9. sæti á þessum tímapunkti með 20 og 19 stig. Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í leikmannahópi Burnley gegn Arsenal vegna meiðsla og Rúnar Alex Rúnarsson var varamarkvörður hjá Arsenal. Góður dagur fyrir Gylfa  Sigurmark og gæsahúð  Hefur lag á því að skora gegn Chelsea AFP Bros Gylfi Þór Sigurðsson fagnar markinu á Goodison Park. Handknattleiksmaðurinn Rúnar Kárason hefur leikið sinn síðasta landsleik og greindi frá því í samtali við handbolta.is að landsliðsferlinum væri lokið. „Ég náði að leika 100 landsleiki, skora mörg mörk og taka þátt í nokkrum stórmótum. Ég er stoltur af að hafa fengið tækifæri til þess að leika með landsliðinu í eitt hundrað skipti og það er góður áfangi að mér finnst,“ sagði Rúnar við miðilinn. Rúnar skoraði 9 mörk í afar óvæntum sigri Ribe-Esbjerg gegn toppliði Álaborgar um helgina. sport@mbl.is Landsliðsferli Rúnars er lokið Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hættur Rúnar stendur sig vel en lætur gott heita með landsliðinu. Anna Björk Kristjánsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir, leikmenn Le Havre í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu, hafa greinst með kórónuveiruna. Frá því var greint á Vísi.is. Misstu þær af leiknum gegn París St. Germain sem Parísarliðið vann 5:0. Le Havre er á botni deildarinnar með fjögur stig að 11 umferðum loknum. París SG er á toppnum með 31 stig en Lyon er með 30. Lyon sýndi Issy- Les-Moulineaux enga miskunn og vann 9:0. Sara Björk lék allan tím- ann á miðjunni hjá Lyon. Anna og Berglind með veiruna Ljósmynd/Emanuel Leilaidier Frakkland Berglind Björg Þor- valdsdóttir í leik með Le Havre. Spánn Zaragoza – Bilbao ............................. 105:76  Tryggvi Snær Hlinason skoraði 8 stig, tók 9 fráköst og gaf 2 stoðsendingar hjá Zaragoza. Estudiantes – Valencia ....................... 81:86  Martin Hermannsson skoraði 7 stig og tók eitt frákast fyrir Valencia. Gipuzkoa – Andorra................... 86:82 (frl.)  Haukur Helgi Pálsson skoraði 16 stig og tók tvö fráköst fyrir Andorra. Staðan: Real Madrid 28, Tenerife 24, Barcelona 22, Baskonia 20, Joventut Badalona 16, San Pablo Burgos 16, Unicaja Málaga 16, Val- encia 14, Murcia 14, Manresa 14, Andorra 12, Obradorio 10, Estudiantes 10, Fuenla- brada 8, Zaragoza 8, Gran Canaria 6, Bilbao 4, Real Betis 3, Gipuzkoa 4. Þýskaland Fraport – Ludwigsburg ..................... 80:94  Jón Axel Guðmundsson skoraði 9 stig, tók 3 fráköst og gaf 4 stoðsendingar fyrir Fraport.   EM kvenna Milliriðill 1 í Herning: Svartfjallaland – Svíþjóð ..................... 31:25 Danmörk – Spánn................................. 34:24 Staðan: Rússland 4 3 1 0 113:99 7 Frakkland 4 3 1 0 101:96 7 Danmörk 4 3 0 1 106:88 6 Svartfjallaland 4 1 0 3 96:101 2 Svíþjóð 4 0 1 3 96:108 1 Spánn 4 0 1 3 94:114 1 Milliriðill 2 í Kolding: Króatía – Noregur............................... 25:36  Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg. Ungverjaland – Þýskaland.................. 25:32 Staðan: Noregur 4 4 0 0 138:93 8 Króatía 4 3 0 1 101:103 6 Þýskaland 3 2 0 1 77:86 4 Holland 3 1 0 2 78:83 2 Ungverjaland 3 0 0 3 71:84 0 Rúmenía 3 0 0 3 59:75 0 Þýskaland RN Löwen – Flensburg....................... 31:31  Alexander Petersson skoraði 2 mörk fyr- ir Löwen en Ýmir Örn Gíslason komst ekki á blað. Göppingen – Bergischer .................... 26:26  Janus Daði Smárason skoraði eitt mark og gaf 3 stoðsendingar fyrir Göppingen.  Arnór Þór Gunnarsson skoraði 4 mörk fyrir Bergischer en Ragnar Jóhannsson lék ekki. Balingen – Magdeburg ....................... 26:39  Oddur Gretarsson skoraði 4 mörk fyrir Balingen.  Ómar Ingi Magnússon skoraði 5 mörk og gaf 4 stoðsendingar fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 2 mörk. Staða efstu liða: R-N Löwen 19, Kiel 18, Flensburg 17, Fuchse Berlin 15, Stuttgart 15, Leipzig 13, Lemgo 13, Göppingen 13. B-deild: Bietigheim – Wilhelmshavener ......... 25:18  Aron Rafn Eðvarðsson varði 11 skot í marki Bietigheim og skoraði eitt mark. Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið. Elbflorenz – Gummersbach ............... 21:26  Elliði Snær Viðarsson skoraði eitt mark fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs- son þjálfar liðið. Spánn Cangas – Barcelona ............................ 24:39  Aron Pálmarsson lék ekki með Barce- lona. Danmörk Aalborg – Ribe-Esbjerg...................... 29:31  Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg.  Rúnar Kárason skoraði 9 mörk og gaf 2 stoðsendingar fyrir Ribe-Esbjerg, Gunnar Steinn Jónsson skoraði 3 mörk og gaf 3 stoðsendingar og Daníel Þór Ingason gaf eina stoðsendingu. Aarhus – GOG...................................... 25:31 Viktor Gísli Hallgrímsson varði 11 skot í marki GOG. Staða efstu liða: GOG 26, Aalborg 25, Holstebro 22, Bjerr- ingbro/Silkeborg 21, Skjern 19, Kolding 17, SönderjyskE 17 Pólland Wisla Plock – Kielce............................ 19:31  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 2 mörk fyrir Kielce en Haukur Þrastarson er frá keppni vegna meiðsla. Noregur Drammen – Haslum ............................ 35:23  Óskar Ólafsson skoraði 4 mörk og gaf 4 stoðsendingar fyrir Drammen. Svíþjóð Sävehof – Alingsås .............................. 24:28  Aron Dagur Pálsson skoraði 2 mörk og gaf 6 stoðsendingar fyrir Alingsås. Varberg – Skövde ............................... 28:26  Bjarni Ófeigur Valdimarsson lék ekki með Skövde.   Rhein-Neckar Löwen og Flensburg gerðu jafntefli 31:31 í toppslag í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær en liðin mættust á heimavelli Löwen. RN Löwen heldur því efsta sæti deildarinnar og er með 19 stig eftir ellefu leiki. Kiel og Flensburg eru með 18 stig og 17 stig en þau eiga leik til góða á Löwen. Alexander Pet- ersson skoraði tvö mörk fyrir Lö- wen í leiknum og Ýmir Örn Gísla- son kom einnig við sögu. Úrslitin sýna að Löwen er til alls líklegt í baráttunni um titilinn en Flensburg varð meistari bæði 2018 og 2019 en tímabilið 2020 var blásið af vegna kórónuveirunnar og var Kiel þá í efsta sæti og þar með meistari. Ómar Ingi Magnússon heldur áfram að leika vel fyrir Magdeburg og skoraði fimm mörk og gaf fjórar stoðsendingar í 39:26-stórsigri Magdeburg gegn Balingen. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Magdeburg og Oddur Gretarsson var með fjögur mörk fyrir Balingen. sport@mbl.is Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldssoon Reyndur Alexander Petersson er enn í stóru hlutverki hjá toppliði. Jafntefli hjá Löwen í toppslagnum Íslensku landsliðsmennirnir í körfuknattleik sem leika í spænsku ACB-deildinni láta æ meira að sér kveða en deildin er almennt talin sterkasta deildakeppnin í Evrópu. Martin Hermannsson og sam- herjar hans í Valencia unnu sinn þriðja deildarleik í röð er liðið vann 86:81-sigur á Estudiantes á útivelli. Eftir erfiða byrjun hefur Valencia tekist að rétta úr kútnum og er liðið í 8. sæti deildarinnar með sjö sigra og sex töp eftir 13 leiki. Liðið er hins vegar í fimmta sæti í Evrópu- deildinni, sterkustu Evrópu- keppninni. Martin skoraði sjö stig og tók eitt frákast á 14 mínútum. Næsti leikur Valencia er á útivelli gegn gríska liðinu Olympiacos í Evrópudeildinni á miðvikudaginn kemur. Tryggvi Snær Hlinason átti góð- an leik þegar lið hans Zaragoza vann öruggan 105:76-sigur gegn Bilbao. Tryggvi skoraði átta stig, tók níu fráköst og gaf tvær stoð- sendingar í leiknum. Miðherjinn er orðinn mjög stöðugur í leik sínum þegar kemur að stigaskori og frá- köstum. Zaragoza er eftir sigurinn í 15. sæti deildarinnar með átta stig. Haukur Helgi Pálsson og liðs- félagar hans í Andorra þurftu að sætta sig við naumt 82:86-tap gegn botnliði Gipuzkoa í gær. Haukur Helgi lék þó vel í leiknum þar sem hann skoraði 16 stig og tók tvö frá- köst. Haukur hefur látið töluvert að sér kveða í leikjunum sem hann hefur spilað eftir að hafa verið frá um tíma vegna kórónuveirunnar. Andorra er í 11. sæti deild- arinnar eftir þetta óvænta tap með 12 stig. sport@mbl.is Þriðji sigur Valencia í röð í deildinni Morgunblaðið/Hari Sterkur Erfitt er að eiga við Tryggva nærri körfunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.