Morgunblaðið - 14.12.2020, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FRÁBÆR NÝ JÓLA TEIKNIMYND
NÝGRÍN-SPENNUMYNDMEÐMEL GIBSON,
SEM “HINN EINI SANNI” JÓLASVEINN.
HARÐASTA JÓLAMYND SEMKOMIÐHEFUR!
JÓLAMYNDIN 2020
FRUMSÝND
16. DES.
FORSALA
HAFIN
TRYGGÐU
ÞÉR MIÐA.
Týndri upptöku af ástardúett
Scrooge og Belle úr kvikmyndinni
The Muppet Christmas Carol verð-
ur skeytt aftur inn í myndina á sín-
um upprunalega stað. Þetta hefur
BBC eftir Brian Henson, leikstjóra
myndarinnar, sem frumsýnd var
1992 og byggist á Jólaævintýri
Charles Dickens. Ástardúettinn sem
nefnist „When Love is Gone“ er
sunginn þegar Belle (leikin af Mere-
dith Braun) tjáir unnusta sínum,
Scrooge yngri (leikinn af Raymond
Coulthard), að hún skilji nú að hann
elski peninga meira en hana. Meðan
lagið hljómar yfirgefur Scrooge
yngri Belle, en Scrooge eldri (leik-
inn af Michael Caine), sem fylgst
hefur með fortíð sinni, fer að syngja
með Belle og beygir af í loka-
erindinu þar sem minningin er of
sár.
Jeffrey Katzenberg, framleiðandi
hjá Disney, taldi að senan myndi
ekki höfða til ungra áhorfenda þar
sem aðeins væri í henni mannfólk og
engar Muppet-leikbrúður. Af þeim
sökum var senan, sem er lykilsena í
myndinni, klippt út úr kvikmynda-
húsaútgáfu myndarinnar þrátt fyrir
mikil mótmæli Hensons. Hann gerði
kröfu um að senan væri sett aftur
inn áður en myndin var gefin út á
VHS-spólum og fékk það í gegn.
Þegar kom að því að myndin væri
gefin út á DVD-diski hafði uppruna-
lega upptakan hins vegar glatast og
því reyndist ekki unnt að setja sen-
una inn í myndina fyrir útgáfu.
Í frétt BBC kemur fram að Hen-
son hafi í seinasta mánuði fengið
símtal þess efnis að búið væri að
finna týndu upptökuna. „Ég er svo
hamingjusamur,“ segir Henson og
tekur fram að hann viti ekki hvort
það náist í tæka tíð að setja nýju og
endurbættu útgáfuna af myndinni
inn á streymisveitu Disney Plus
fyrir jól. „En full lengd myndar-
innar verður sett inn.“ BBC leitaði
viðbragða hjá Disney, en talsmenn
fyrirtækisins vildu ekki tjá sig um
málið. silja@mbl.is
Týndur ástardúett ratar
aftur inn í Muppet-mynd
Dúett Michael Caine og Meredith
Braun í hlutverkum sínum.
Bandaríska tónlistarkonan Taylor
Swift sendi á föstudag óvænt frá sér
nýja plötu sem nefnist Evermore og
er 9. hljóðversplata hennar. Plöt-
unni er lýst sem systuralbúmi plöt-
unnar Folklore sem út kom í júlí og
tilnefnd var til Grammy-verðlauna
m.a. sem besta plata ársins og fyrir
lagið „Cardigan“. Folklore, sem
tekin var upp með leynd í vor, inni-
heldur 17 ný lög og var tekin upp
samhliða upptökum á Folklore.
Swift líkir tilurð nýjustu tveggja
platna sinna við ferðalag inn í þjóð-
lagaskóg þar sem hún og samstarfs-
fólk hennar hafi valið að ferðast
djúpt inn í skóginn í tónsköpun
sinni.
Í frétt The Guardian kemur fram
að árið sem senn er að líða hafi ver-
ið afar gjöfult sköpunarár hjá Swift,
því auk Folklore og Evermore sé
hún einnig að
taka upp fyrstu
sex hljóðvers-
plötur sínar aftur
þar sem hún var
ósátt við að
Scooter Braun og
Scott Borchetta
keyptu í fyrra
útgáfufyrirtækið
Big Machine La-
bel Group (BMLG ) og seldu það á
þessu ári til fjárfestingarsjóðs.
Swift var á mála hjá BMLG frá 2005
til 2018 þegar hún skrifaði undir
samning við Universal Music Group.
BMLG á réttinn að upptökunum á
fyrstu plötum Swift, en samkvæmt
frétt Variety var henni frá og með
seinasta mánuði heimilt að taka lög-
in af fyrstu plötum sínum aftur upp
og gefa út.
Taylor Swift sendir óvænt frá sér plötu
Taylor Swift
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Fyrir stuttu kom út barnabókin Litla
snareðlan sem gat eftir Söru Páls-
dóttur. Þetta er fyrsta bók Söru sem
starfar sem lögmaður en er líka dá-
leiðari og orkuheilari. Hún segist
lengi hafa ætlað sér að verða rithöf-
undur og þegar hún var barn skrifaði
hún nokkrar sögur sjálf og gerði
myndasögu. „En svo tók forritun
unglings- og fullorðinsáranna við og
öll rithöfundaráform gufuðu upp,“
segir hún. Eftir að hún fór að stunda
hugleiðslu tóku hugmyndir að kvikna
hjá henni og í einni hugleiðslu varð
hugmyndin að bókinni um snareðluna
litlu til.
– Í Júragaðsmyndunum eru snar-
eðlur áberandi og ekki beint krútt-
legar.
„Nei einmitt, þær voru illskeytt
rándýr. En sonur minn sem nú er
fjögurra ára dýrkaði og dáði risaeðlur
frá eins árs aldri, sérstaklega þessar
grimmu. Ætli innblástur í aðal-
persónuna sé ekki fenginn frá hon-
um.“
– Segðu mér aðeins frá því hvað
vakti fyrir þér, hvernig var upphaf-
lega hugmyndin að bókinni?
„Sem dáleiðari og orkuheilari er ég
sérfræðingur í því hvernig undir-
meðvitundin virkar og vinnur. Svo
mörg börn eru haldin ótta og kvíða
alls konar, sem heldur aftur af þeim
og hamlar þeim. Kemur ef til vill að
hluta til í veg fyrir að þau séu þau
sjálf. Ég var líka svona sjálf sem
barn, oft óttaslegin. Trúði því ekki að
ég gæti gert hluti sem mig langaði,
óttaðist að mistakast, að vera ekki
samþykkt, eða ekki nógu góð. Svona
neikvæð forritun fylgdi mér inn í full-
orðinsárin og þurfti mikið átak til að
leiðrétta.
Börn læra gríðarlega auðveldlega
og svo mikilvægt að foreldrar leggi
sig fram um að kenna börnum hvað
ótti er, að það þarf ekki að láta hann
stöðva sig, að það sé hægt að velja
hugrekkið og hafa trú á sjálfum sér
og ná markmiðum sínum. Það er boð-
skapurinn í bókinni. Slíkur lærdómur
gefur börnum jákvæðan meðbyr inn í
framtíðina sem getur hjálpað þeim um
alla ævi.“
– Er hægt að kenna svona með bók?
„Já það er hægt. Með endurtekn-
ingum eins og í bókinni og með því að
setjast niður með börnum og útskýra
fyrir þeim hvað ótti sé og ræða heil-
brigð skref til að stíga inn í hann og
láta hann ekki stöðva okkur. Bók og
lifandi saga með grípandi myndum er
ef til vill ein besta leiðin til að kenna
börnum þetta.“
Segja má að Sara sé komin á bragð-
ið með bókarskrif því hún segist vera
með fleiri barnabækur í vinnslu sem
komi beint úr undirmeðvitund hennar.
„Það eru fleiri risaeðlusögur í vinnslu,
það verða fleiri tegundir, til dæmis
grameðla, kambeðla og fleiri. Ég varð
einmitt sérfræðingur í risaeðlum og
tegundum í gegn um son minn. Þær
sögur hafa ríkan boðskap einnig til
ungra barna. Svo er ein í vinnslu sem
er fyrir eldri krakka, og þar verða
sennilega hestar í aðalhlutverki.“
Snareðla beint úr
undirmeðvitundinni
Sara Pálsdóttir vill kenna börnum að takast á við ótta og kvíða
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Boðskapur Sara Pálsdóttir, lögmaður, dáleiðari, orkuheilari og rithöfundur, er komin á bragðið með bókarskrif.