Lögmannablaðið - 2016, Síða 16

Lögmannablaðið - 2016, Síða 16
16 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 03/16 Óhætt er að segja að frumvarp til laga um millidómstig hafi verið í deiglunni meðal lögmanna að undanförnu. Að loknum félagsfundi LMFÍ þann 18. ágúst sl., þar sem tillögur til frumvarps um breytingar á lögum um lögmenn nr. 77/1998 voru samþykktar, sendi Kristrún Elsa Harðardóttir, formaður Félags kvenna í lögmennsku, innanríkis ráðherra bréf þar sem áhyggjum félagsins af tillögunum var lýst og óskað eftir tækifæri til þess að koma sjónarmiðum FKL á framfæri áður en frumvarp þessa efnis yrði lagt fyrir Alþingi. Ekki allir sáttir Þessi íhlutun formanns FKL vegna til lagna LMFI olli deilum innan stjórnar FKL. Varð hún til þess að tveir stjórnar menn af fimm sögðu sig úr stjórn inni auk tveggja varamanna. Í yfirlýsingu stjórnarkvennanna fráfar- andi kom fram að ekki hefði verið fylgt starfsreglum stjórnar við stefnumótun í mikilvægum málefnum í nafni FKL. Þá sendu yfir þrjátíu konur í lög- mennsku, þ. á m. félagsmenn bæði í FKL og LMFÍ, innanríkisráðherra bréf 26. ágúst sl. þar sem þær lýstu yfir stuðningi við tillögur LMFÍ og skoruðu á ráðherra að leggja fram frumvarp á yfirstandandi þingi sem endurspegluðu þær. Boðað var til félagsfundar í FKL 5. september sl. til að ræða um afstöðu félagsins til tillagna innanríkis ráðu- neytis ins um frumvarp til laga um breytinga á lögum um lögmenn nr. 77/1998 en frumvarpið byggir á nefnd- um tillögum LMFÍ. Formaður FKL gerði í upphafi grein fyrir tildrögum fundar ins og sagði að ákvörðun um að gagn rýna tillögur LMFÍ í nafni FKL hefði verið tekin á löglega boð uð um stjórnarfundi af meirihluta stjórn ar og að ákvörðunin væri í sam ræmi við tilgang félagsins. Einnig rifjaði hún upp að rætt hafi verið á síðasta aðal- fundi FKL að félagið léti meira til sín taka á opinberum vettvangi. Félags- menn hefðu m.a. lýst yfir ánægju með þá afstöðu sem stjórn FKL hafði tekið í máli er varðaði skipan í valnefnd sem metur hæfi umsækjenda um dómara- embætti þar sem afstaða LMFÍ um að jafn réttis lögin giltu ekki við þá skipun var gagnrýnd. Að því loknu fóru fram málefnalegar umræður þar sem tillögur LMFÍ voru ræddar og þá hvort og hvaða afstöðu FKL ætti að taka formlega til málsins. Hluti félags manna lýsti yfir ánægju með það að FKL hefði látið til sín taka í málinu á meðan aðrir voru á því að FKL þyrfti ekki að láta málið sig varða sérstaklega. Að lokum var samþykkt af meirihluta fundarmanna að FKL myndi ekki taka formlega afstöðu til tillagna innanríkisráðuneytisins um frumvarp um breytingar á lögunum og því ekki skila inn umsögn til ráðu- neytisins. Hlutverk FKL Umræður um hlutverk FKL og mark - mið voru í brennidepli á félags fund- inum 5. september. Fram kom það sjónar mið fundar manna að til gang ur félagsins væri að efla samstarf kvenna, stuðla að fjölgun þeirra í stétt inni og Tekist á um hlutverk FKL

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.