Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 20

Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 20
20 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 03/16 meira frumkvæði og framsýni hvað þessa hluti varðar við skipulagningu laganáms því landslagið er að breytast og framtíðarstörf lögfræðinga og lögmanna munu vafalaust breytast frá því sem við eigum að venjast í dag. Eins má reikna með því að félagið haldi nokkuð þétt utan um umræðu sem þarf að eiga sér stað um málefni eins og trúnaðarskyldu þeirra lögmanna sem eru í okkar hópi, en það hefur þótt skorta á skýrar línur í þeim efnum. Þá munum við fylgjast vel með umræðunni um fyrirhugaðar breytingar á lögmannalögum vegna stofnunar Landsréttar, sem hafa nýlega verið kynntar og m.a. samþykktar á félags- fundi í Lögmannafélaginu. Það er afar mikilvægt að ekki verði reistar takmarkanir á möguleika lögmanna sem starfa innan fyrirtækja að fylgja málum síns umbjóðanda eftir milli dómstiga, eins og hefur verið möguleiki á hingað til. Sú þekking sem lögmenn úr okkar hópi hafa á deilumálum sem þarf að leysa úr fyrir dómstólum kann í sumum tilvikum að leiða til þess að okkar umbjóðandi óski eftir því að við flytjum málin sjálf fremur en að útvista til utanaðkomandi lögmanna, þó það sé allur gangur á því hvernig slíkum málum er háttað. Þarna eru klárlega hagsmunir undir fyrir okkar félaga. Fókus á hefðbundin lögmannsstörf Nú eru fyrirtækjalögfræðingar ýmist lögmenn eða ekki, hefur sá hópur sem er innan LMFÍ verið vanræktur að einhverju leyti? Ég vil ekki taka svo djúpt í árinni að segja að þessi hópur hafi beinlínis verið vanræktur en fókusinn hjá LMFÍ hefur fyrst og fremst verið á málefnum þeirra lögmanna sem sinna hefðbundnari lögmannsstörfum. Margir núverandi og fyrrverandi stjórnarmenn í LMFÍ starfa eða hafa starfað sem lögmenn innan fyrirtækja þannig að okkar sjónarmiða og hagsmuna ætti að hafa verið nægilega vel gætt. Ég sé ekki annað en að lögmönnum og lögfræðingum sem starfa hjá fyrirtækjum fari stöðugt fjölgandi, sem er afar jákvætt. Vonandi verður þessi fjölgun og tilkoma FLF til þess að auka vitund stéttarinnar um þau mál sem við erum að fást við og auka fjölbreytnina í starfsemi fagfélaganna okkar. Ætlum að hafa gaman að þessu Hvers konar starfsemi hyggst FLF stunda? Við stefnum að því að vera með a.m.k. fjóra fasta viðburði yfir vetrartímann, annað hvort ein og sér eða í samstarfi við fagfélögin. Ekki er ólíklegt að við teygjum okkur eftir erlendum fyrirlesurum eftir því sem kostur verður á. Við munum líka hvetja félagsmenn okkar til að sækja viðburði erlendis, þar er úr mörgu áhugaverðu að velja. Ef vel gengur og áhugi verður fyrir slíku kæmi til greina að setja saman ráðstefnu, en það mun koma í ljós. Umfram allt ætlum við að hafa hæfilega gaman af þessu þannig að vonandi fer enginn súr af viðburðum á vegum FLF. Sóknarfærin mörg og fjölbreytt Því hefur oft verið haldið fram að sóknarfæri felist í því að sannfæra fyrirtæki um að ráða fleiri lögfræðinga til starfa, hvað heldur þú um það? Það eru mörg og fjölbreytt sóknarfæri fyrir lögfræðinga og lögmenn sem hafa áhuga á að hasla sér völl á þessu sviði. Þetta helst vitanlega í hendur við hversu öflugt atvinnulífið er á hverjum tíma en þróunin virðist vera að störfum á þessu sviði fjölgar. Það er von okkar að FLF geti stuðlað að því að auka umræðu um kosti þess fyrir fyrirtæki að hafa lögfræðinga innan sinna vébanda, hvert hlutverk þeirra ætti að vera og hvaða verðmæti slíkur starfskraftur geti skapað. Ég held að stjórnendur fyrirtækja séu almennt farnir að átta sig á þessu þó reglulega þurfi að leiðrétta algengan misskilning um að við lögfræðingar og lögmenn séum fyrst og fremst kostnaðarskapandi fremur en virðisaukandi. Þar munum við vafalaust láta til okkar taka. Eyrún Ingadóttir. HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.