Lögmannablaðið - 2016, Page 27
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 03/16 27
Eruð þið með einhverja alþjóðlega fyrirmynd að þessari þjónustu?
Já, lögfræðileg útvistun hefur lengi verið stunduð erlendis,
m.a. í Bandaríkjunum og í Bretlandi. Starfsmannaleigur á
borð við Lawyers On Demand, til dæmis, hafa leitað leiða
til að gera þjónustuna ódýrari og straumlínulagaðri og það
má líkja okkur við þá. Við reynum að gera ferlin einföld og
sjálfvirk þannig að kostnaður við milliliði og yfirbyggingu
verði sem minnstur. Þannig verður þjónustan ódýrari án
þess að skerða kjör þeirra sem taka að sér verkefni hjá
okkur.
Nýta margir lögmenn sér þjónustuna?
Ekki ennþá. Þetta er ný nálgun hér á landi og því má búast
við að það taki ákveðinn tíma að ná fótfestu. Viðskipta vinum
okkar hingað til hefur hins vegar litist vel á þjónustuna og
hafa nýtt sér hana oftar en einu sinni.
Hve marga sérfræðinga hafið þið á ykkar snærum?
Við höfum um 70 lögfræðinga og lögmenn á skrá hjá okkur
sem eru með sérþekkingu á öllum mögulegum sviðum.
Þar að auki hafa stærri lögmannsstofur séð sér hag í því að
nota Lexitex til að leigja út sína starfsmenn í tímabundnum
verkefnaskorti eða til að auka tekjur sínar.
Hverjir eru viðskiptavinir ykkar?
Við höfum orðið varir við mikinn áhuga hjá einyrkjum.
Stofur sem eru regnhlíf fyrir marga sjálfstætt starfandi
lögmenn hafa einnig sýnt okkur áhuga. Stærri stofurnar
hafa fyrst og fremst viljað leigja út sína starfsmenn með
milligöngu Lexitex en þess má geta að Lawyers On Demand
var upp haf lega innanhúsverkefni breskrar lögmannsstofu
þar sem hún hóf að leigja út eigin starfsmenn. Við sjáum
því einnig ákveðin tækifæri í því að búa til innviði sem þarf
til að allar lögmannsstofur geti leigt út sína starfsmenn með
einföldum hætti.
Hvernig fer þjónustan fram?
Lögmaður sendir okkur ítarlega lýsingu á verki sem þarf að
vinna ásamt kröfum um menntun og starfsreynslu þess sem
mun taka það að sér. Útfrá þessari lýsingu metum við tíma-
fjöldann við verkið og sendum lögmanni kostnaðar áætlun
ásamt mögulegum vikmörkum. Ef lögmaður ákveður að
fá full trúa Lexitex í verkið er skrifað undir samning um
meðferð trúnaðarupplýsinga þar sem Lexitex og verk taki
skuldbinda sig til að halda trúnaði um öll atriði sem varða
málið. Eftir það getur verktaki hafið vinnu sína og fær
greitt við afhendingu.
Hverjir eru kostir og gallar þjónustunnar?
Í fyrsta lagi getur lögmaður fengið sérfræðing í einstök
verkefni þegar mikið er að gera en sveiflukenndur mála-
fjöldi veldur því að oft er erfitt að ráða inn starfsfólk þar
sem óvíst er að verkefnafjöldinn haldi sér. Í öðru lagi til-
einka lögmenn sér oftast þröng sérsvið. Slík sérhæfing er