Lögmannablaðið - 2016, Page 32

Lögmannablaðið - 2016, Page 32
32 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 03/16 gagnaveitum sem staðsettar eru „nálægt“ þeim netlega séð. Þessi nálægð ræðst m.a. af staðsetningu nafnaþjóna sem afgreiða fyrirspurnir notenda. Ef notendur innlends fjarskipta fyrir tækis nota nafna þjóna úti í heimi, munu gagnaveitur afgreiða gagna flutning þessara not enda frá gagna þjónum sem eru „nálægt“ þessum nafn þjónum í stað þess að nota gagna þjóna sem þjóna Íslandi, eða er staðsett á Íslandi. Umferð til þeirra verður af þessum sökum hægvirkari og dýrari (erlent niðurhal) en ella fyrir alla notendur. Benda má á í þessu sam bandi vandaða skýrslu öryggishóps ICANN (aðalstjórnanda Inter- netsins) en hún varð til þess að DNS fölsun hefur að mestu verið aflögð í Evrópu og Banda ríkjunum, en viðgengst því miður enn á minna þróuðum svæðum.3 Hvað hefði átt að gera? Lögbanninu hefði átt að beina til eigenda hinna ólöglegu vefsíðna annars vegar, og hins vegar til þeirra sem sóttu hið ólöglega efni og notuðu það, þ.e.a.s. til brota- manns ins sjálfs. Enn betra væri, að í stað lögbanns og til heyr andi þvingunaraðgerða, kæmu fyrirmæli um að fjarskiptafyrirtæki framsendi kvartanir sem þeim berast um „ólöglega“ dreifingu efnis, til notenda sinna. Slíkar aðgerðir má gera sjálfvirkar, þær kosta lítið, en bera mun meiri árangur. Þeir sem nota og dreifa illa fengnu efni án leyfis, láta oftast af slíkri háttsemi þegar í ljós kemur að fulltrúar eigenda efnisins geta náð sambandi við þá – þótt óbeint sé. ISNIC notar hliðstæðar aðferðir þegar kvartað er yfir rangri lénaskráningu, sem aftur kemur í veg fyrir að hægt sé að ná sambandi við raunverulegan rétthafa léns. Aðferðir þær, sem hér eru tíundaðar og eru gerðar til þess að framfylgja lögbanni á lén, eru því miður algengar í minna þróuð um löndum eins og N-Kóreu og Kína, en Kinverjar eru sem kunnugt er frægir fyrir sinn „Mikla kínverska eldvegg“ (e. „The Great Firewall of China“. Hann er í raun stórt lénalokunarkerfi, sem framkvæmir umfangsmikila hreinsun á kínverska hluta internetsins og hindrar að verulegu leyti aðgang almennings að fjölmörgum lénum, eins og t.d. wikipedia.org, google.com og facebook.com. Hefur einhverjum dottið í hug að loka aðgangi Íslendinga að léninu facebook.com? Höfundur er framkvæmdastjóri Inter nets á Íslandi hf. ISNIC. Meðhöfundur tæknilegra kafla er Maríus Ólafsson, tölvunarfræðingur, net- og gæðastjóri ISNIC. Nýr starfsmaður á skrifstofu LMFÍ Í byrjun september hóf Valgeir Þór Þorvaldsson lögfræðingur störf á skrifstofu LMFÍ tímabundið á meðan Anna Lilja Hallgrímsdóttir hdl., er í fæðingarorlofi. Valgeir Þór útskrifaðist með meistaragráðu frá lagadeild Háskóla Íslands í október 2015 og starfaði um tíma sem lögfræðingur hjá Samgöngustofu. Valgeir Þór mun sjá um eftirlitshlutverk félagsins gagnvart lögmönnum, s.s. starfsábyrgðartryggingar, undanþágur, fjárvörslureikninga ásamt fleiru. Við bjóðum hann velkominn til starfa. 3 SAC 056 skýrsla ICANN: https://www.icann.org/en/system/files/files/sac-056-en.pdf

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.