Lögmannablaðið - 2016, Qupperneq 36
36 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 03/16
Helstu breytingar
Hin nýju lög um útlendinga, sem taka gildi 1. janúar 2017,
eru talsvert lengri og ítarlegri en núgildandi lög án þess
endilega að um nýjungar í framkvæmd sé að ræða. Sem
dæmi má nefna að í 3. gr. gefur nú að líta skilgreiningar
hugtaka sem þýðingu hafa við beitingu þeirra en engar
slíkar skilgreiningar eru í núgildandi lögum.
Skýrari ákvæði en áður eru varðandi heimildir stjórnvalda
til þess að synja um efnismeðferð hælisumsóknar, en þau
ákvæði hafa valdið nokkrum vandkvæðum í framkvæmd.
Skýrar er kveðið á um rétt fylgdarlausra barna sem fá vernd
hér á landi til fjölskyldusameiningar. Hið nýja skilgrein-
ingarákvæði verður einnig að telja til bóta, ekki síst er
varðar skilgreiningu einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri
stöðu.
Ríkisfangslausir einstaklingar
Samkvæmt núgildandi löggjöf getur ríkisfangslaus ein-
staklingur hlotið vernd hér á landi falli aðstæður hans
að flóttamannahugtakinu. Með 39. gr. hinna nýju laga er
tekið af skarið um að einstaklingur sem ekkert ríki telur
til borgara sinna samkvæmt landslögum eigi sjálfstæðan
rétt til alþjóð legrar verndar hér á landi á grundvelli ríkis-
fangsleysis síns. Er hér um mikla réttarbót að ræða gagnvart
þessum hópi fólks sem stendur mjög höllum fæti í heimi
þar sem ríkisfang er grundvöllur nánast allrar aðstoðar og
réttinda einstaklinga samkvæmt landslögum.
Alþjóðleg vernd
Réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd eru tryggð
með skýrari hætti en í núgildandi lögum. Á þetta við um
til dæmis réttindagæslu, sbr. 30. gr. laganna og réttinn til
Á vorþingi 2016 voru samþykkt ný heildarlög um útlendinga sem byggðu á grundvelli
vinnu þverpólitískrar þingmannanefndar sem skipuð var vorið 2014. Örar breytingar í
mála flokknum á síðustu árum hefur skapað þörf á heildstæðri endurskoðun á lögum um
útlendinga, m.a. í þeim tilgangi að auka skýrleika laganna og skilvirkni stjórnsýslu.
Frá árinu 1956 hefur Rauði krossinn á Íslandi komið að málefnum flóttamanna en
félagið vinnur nú að málefnum flóttamanna og hælisleitenda í samvinnu við stjórnvöld
og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Með samningi við innanríkisráðuneytið
árið 2014 tók Rauði krossinn að sér enn umfangsmeiri þjónustu við hælisleitendur, þar
með talið lögfræðilega aðstoð vegna umsóknar um hæli. Í þessari grein verður gerð
stutt grein fyrir helstu breytingum nýju laganna er varða einstaklinga í þörf fyrir
alþjóðlega vernd.
NÝ LÖG UM ÚTLENDINGA
BETRUMBÆTUR EN ENGIN BYLTING