Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 38
38 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 03/16
áhrif á bæði skilvirkni og málshraða, auk þess að skerða
réttaröryggi flóttamanna.
Örugg upprunaríki
Í nokkrum ákvæðum laganna er vísað til lista, sem stjórn-
völdum er heimilað að útbúa, yfir ríki sem talin eru örugg.
Er hugtakið þannig fest enn frekar í sessi en slíkir listar
yfir örugg ríki hafa lengi verið gagnrýndir af hálfu Rauða
krossins, Flóttamannastofnunarinnar, ECRE1 og fleiri aðila.
Slíkir listar eru bæði óþarfir og til þess fallnir að koma í veg
fyrir að hver og ein umsókn um hæli hljóti fullnægjandi
skoðun. Þá telur Rauði krossinn slíka lista með öllu óþarfa
enda séu stjórnvöld fullfær um að greina á milli bersýnilega
tilhæfulausra umsókna og annarra.
Umsókn um alþjóðlega vernd
Í upphaflegu frumvarpi til laganna, sem auglýst var til
umsagnar á vef innanríkisráðuneytisins í desember 2015,
var fallist á tillögu Rauða krossins um að kæra ákvörð-
unar í máli vegna umsóknar um hæli fresti réttaráhrifum
ákvörð unarinnar. Hafa bæði Rauði krossinn og Flótta-
mannastofnun Sameinuðu þjóðanna ítrekað lagt til að
slík frestun verði sjálfkrafa, í þágu bæði réttaröryggis um-
sækjenda um hæli og skilvirkni kerfisins og málshraða.
Réttarbót þessa var hins vegar ekki að finna í frumvarpi
því sem innanríkisráðherra lagði fyrir Alþingi í apríl síðast-
liðnum. Í 35. gr. hinna nýju laga er fjallað um framkvæmd
ákvörðunar í málum um alþjóðlega vernd en þar er engin
efnisleg breyting gerð að þessu leyti frá núgildandi löggjöf.
Virk kærumeðferð er óaðskiljanlegur hluti réttlátrar og
skilvirkrar málsmeðferðar hælisumsókna. Í þessu sambandi
má benda á að töluverður fjöldi flóttamanna í Evrópu
fær ekki viðurkenningu á stöðu sinni fyrr en að lokinni
kærumeðferð. Frestun réttaráhrifa ákvörðunar vegna kæru
er því mikilvægt úrræði til að tryggja að grundvallarreglan
um bann við endursendingu (e. non-refoulement) sé ekki
brotin.
Sjálfkrafa frestun réttaráhrifa vegna kæru einfaldar máls-
með ferð, minnkar vinnu kærunefndarinnar þar sem ekki
þarf þá að taka rök studda afstöðu til beiðni um frest un
réttar áhrifa, auk þess sem frestun réttaráhrifa eykur þrýst-
ing á kæru nefnd ina að gæta að málshraða í kæruferlinu.
Engin bylting
Á heildina litið er ekki um viðamiklar breytingar á núgild-
andi hæliskerfi að ræða með hinum nýju lögum, þó lögin
séu skýrari og nákvæmari en áður og ráðist hafi verið í
nokkrar mikilvægar réttarbætur.
Höfundur er lögfræðingur hjá Rauða krossinum.
1 Europe and Council on Refugees and Exiles.
Andri Árnason hrl.
Edda Andradóttir hrl., LL.M.
Finnur Magnússon hdl., LL.M.
Halldór Jónsson hrl.
Lárus L. Blöndal hrl.
Sigurbjörn Magnússon hrl.
Simon David Knight
Stefán A. Svensson hrl., LL.M.
Vífill Harðarson hrl., LL.M.
Borgartúni 26
IS 105 Reykjavík
+354 580 4400
www.juris.is
Andri Árnason hrl.
Halldór Jónsson hrl.
Lárus L. Blöndal hrl.
Páll Ásgrímsson hdl., LL.M.
Sigurbjörn Magnússon hrl.
Stefán A. Svensson hrl., LL.M.
Vífill Harðarson hdl., LL.M.
Borgartúni 26
IS 105 Reykjavík
+354 580 4400
www.juris.is
Andri Árnason hrl.
Halldór Jónsson hrl.
Lárus L. Blöndal hrl.
Páll Ásgrímsson hdl., LL.M.
Sigurbjörn Magnússon hrl.
Stefán A. Svensson hrl., LL.M.
Vífill Harðarson hdl., LL.M.