Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Side 5
5
Á sama tíma voru meðallaun í landinu
667.000 kr. Það var klárt mál að við sættum
okkur ekki við að vera langt undir meðal-
launum og því var það okkar helsta krafa að
hækka grunnröðun og að menntun
iðjuþjálfa yrði metin til launa sem er í takt
við kröfu BHM.
Með nýju samkomulagi hækkuðu byrjunar-
laun iðjuþjálfa hjá ríki í 417 þúsund og
einnig voru gerðar nokkrar breytingar á
orðalagi í miðlægum kjarasamningi. Að
auki var samið um 4% launahækkun og
eingreiðslu. Þetta samkomulag gildir til 31.
mars 2019 og því er stutt í næstu samninga-
lotu.
Þann 1. júní var skrifað undir breytingar og
framlengingu á kjarasamningi Samtaka
fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) og
nokkurra aðildarfélaga BHM. Undir SFV
heyra flest hjúkrunarheimilin auk annarra
sjálfseignarstofnana. Um það bil 30
félagsmenn IÞÍ njóta kjara samkvæmt
samningi félagsins við SFV. Auk IÞÍ eiga
sjúkraþjálfarar, sálfræðingar, félagsráð-
gjafar, þroskaþjálfar, bókasafns- og
upplýsingafræðingar og Fræðagarður aðild
að honum.
IÞÍ er ásamt þeim aðildarfélögum BHM,
sem undirrituðu kjarasamning við
Samband íslenskra sveitarfélaga í mars
2016 að vinna í mati á störfum iðjuþjálfa
sem starfa hjá ýmsum sveitarfélögum undir
stjórn verkefnastofu um starfsmat. Tekin
hafa verið viðtöl við iðjuþjálfa og var úrtakið
um 45 störf.
Til grundvallar liggja starfslýsingar auk
þess sem iðjuþjálfar í viðkomandi störfum
hafa svarað ítarlegum spurningalista.
Verkefnastofa starfsmatsins sér um viðtölin
og auk fulltrúa þaðan eru fulltrúi IÞÍ,
viðkomandi iðjuþjálfi og næsti yfirmaður
hans til staðar. Viðtölum lauk nú í sumar og
verið er að vinna úr niðurstöðum og leggja
þær fram til samþykkta. Á þeim fundum
hefur BHM fastan fulltrúa auk þess sem
fulltrúi kjaranefndar IÞÍ situr þá fundi sem
varða störf iðjuþjálfa. Ráðgert er að ljúka
þessari vinnu um næstu áramót.
FRAMUNDAN
Það voru 15 iðjuþjálfar sem útskrifuðust frá
iðjuþjálfunarfræðibraut Háskólans á Akur-
eyri þann 9.júní síðastliðinn og við óskum
þeim innilega til hamingju. Félagið okkar
fer stækkandi og það er alltaf gleðiefni
þegar svona glæsilegir iðjuþjálfar útskrifast.
Árið heldur áfram að vera viðburðaríkt og
vonumst við til þess að sjá sem flest ykkar á
þeim viðburðum sem framundan eru og má
þá sérstaklega nefna málþing á alþjóðadegi
iðjuþjálfa sem verður haldinn hátíðlegur
um heim allan þann 27. október. Einnig
munu verða auglýstir hádegisfyrirlestrar,
námskeið og vísindaferð svo eitthvað sé
nefnt. Mikilvægt er að við hjálpumst að við
að kynna fagið okkar, birta pistla og greinar
um mikilvægu störf ykkar á sem flestum
miðlum.
Í vor og sumar réðst stjórn IÞÍ í gerð
myndbanda þar sem félagsmenn á 7 mis-
munandi vinnustöðum kynna starfið sitt og
erum við einstaklega ánægð með efnið. Við
hvetjum félagsmenn til að horfa á og deila
þessum vel gerðu myndböndum. Þau er að
finna á Facebook síðu félagsins sem og á
heimasíðu félagsins www.ii.is
Í mars á næsta ári mun formannsstaðan
breytast í fulla stöðu og við munum
sameina stöðu formanns stjórnar IÞÍ og
formanns kjaranefndar, undirbúningur fyrir
sameinguna og rafræna kosningu fer fram á
haustmánuðum og munu félagsmenn
fljótlega fá fréttir af því hvernig því verður
háttað.
Það eru spennandi tímar framundan,
félagið fer stækkandi og við viljum geta
unnið að enn fleiri og spennandi verkefnum.
Ósk Sigurðardóttir
Formaður IÞÍ
Iðjuþjálfi lætur sig varða orðstír og stöðu iðjuþjálfunar meðal almennings, stjórnsýslu og stofnana, bæði hérlendis
og á alþjóðlegum vettvangi.
Að tilheyra starfsstétt felur í sér skuldbindingar og ábyrgð gagnvart öðrum sem tilheyra stéttinni. Það er starfstéttin
í heild sem skapar sér sess og stöðu óháð einstaklingunum sem eru innan hennar. Það er því sameiginlegt verkefni
allra að vera vakandi fyrir þvi hvernig orðstír stéttarinnar og fagsins er út á við.
Siðaregla 4.4. fjallar um þetta. Um leið felur hún í sér hvatningu að bregðast við ef eitthvað má betur fara og vera
opin fyrir tækifærum sem hugsanlega gefast. Með því að tala saman, koma ábendingum á framfæri til réttra aðila
og bregðast við ef þörf er á, getum við hvert og eitt lagt okkar af mörkum.
Guðrún Áslaug Einarsdóttir
formaður siðanefnar
SIÐAREGLA 4.4