Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Page 20
20
AÐDRAGANDI:
Undanfarið hefur orðið hlutfallsleg fjölgun
fólks í aldurshópnum 18-25 ára sem vísað
er í þjónustu Starfsendurhæfingar Hafnar-
fjarðar. Á árinu 2016 var tæpur fjórðungur
fólks sem vísað var í þjónustu á áðurnefndu
aldursbili og um 60% 35 ára eða yngra
(2017, Ársskýrsla SH). Starfsfólk Starfs-
endurhæfingar Hafnarfjarðar taldi þörf á að
þróa úrræði til þess að mæta þörfum þessa
hóps betur en hingað til hefur verið gert,
meðal annars vegna þess hve margir hafa
takmarkaða eða jafnvel enga reynslu af
vinnumarkaði. Við veltum fyrir okkur hvort
styttri hnitmiðaðri námskeið myndu frekar
henta yngri hópi. Áður en farið var í að
skipuleggja þessa vinnu var sótt um styrk til
VIRK vegna styrkja til rannsókna- og
þróunarverkefna.
Í kjölfar þess, eða í apríl 2017, var farið í ferð
til Toronto og Ottawa í Kanada, þar sem við
heimsóttum fjóra staði sem vinna með ungt
fólk. Þessir staðir voru heimsóttir: Halton
Industry Education Council , Jewish
Vocational Center, Toronto, Nation Cheong
United Way of Toronto, Youth Success
Strategy.
Við fengum frábærar móttökur og fullt af
efni sem við höfum getað nýtt okkur í
þessari vinnu. Eins höfðum við samband
við Önnu Lóu Ólafsdóttur sem hafði reynslu
af vinnu með ungu fólki (Stökkpallur) og
þaðan fengum við ráð og hugmyndir.
Einn liður í undirbúningsvinnu fyrir
verkefnið var að kalla saman rýnihóp. Hann
samanstóð af fimm ungmennum sem ekki
voru í vinnu eða skóla.
Eftirtaldar spurningar voru lagðar fyrir
hópinn og niðurstaða umræðna úr hópnum
nýttar m.a. til að byggja upp námskeiðið:
1. Fyrir hverja er starfsendurhæfing ?
2. Hvað græðir maður á því að fara í
starfsendurhæfingu?
3. Hvað á að leggja áherslu á í starfs-
endurhæfingu?
4. Hvaða fög á að kenna?
5. Hvað er markmið með starfs-
endurhæfingu?
6. Hvenær er æskilegt að fólk byrji í
starfsendurhæfingu?
Iðjuþjálfaneminn Linda Ósk Þorvaldsdóttir
kom talsvert að verkefninu þann tíma sem
hún var nemi hjá undirritaðri. Hún þýddi
meðal annars fyrir okkur mörg verkefni frá
Kanada og hafa þau nýst vel í vinnu með
unga fólkinu.
Í kjölfarið á þessari undirbúningsvinnu
settum við upp markmið og rannsóknar-
spurningu sem við ætlum að svara að sex
mánuðum liðnum.
MARKMIÐ:
Að styrkja ungt fólk til atvinnuþátttöku, ýta
undir andlegan og félagslegan styrk til að
auka möguleika þeirra á að taka þátt í
atvinnulífi eða fara í nám. Að efla hjá ungu
fólki trú á eigin getu og auka virkni þeirra í
daglegu lífi.
RANNSÓKNARSPURNING
SEM SETT VAR FRAM:
Henta stutt hnitmiðuð námskeið í starfs-
endurhæfingu ungu fólki til að ná aukinni
færni, líkamlega, andlega og félagslega til
að komast út á vinnumarkað eða í skóla?
Er þetta leið sem hentar ungu fólki til að
verða virkir þjóðfélagsþegnar?
AÐFERÐ:
Unnið var út frá heildrænni nálgun, þ.e.a.s.
út frá líkamlegum, andlegum og félagsleg-
um þáttum. Haft var að leiðarljósi að virkja
bakland einstaklings eins og kostur er.
Við byggðum námskeiðið upp á reynslu
Kanadamanna. Þar var lögð áhersla á stutt
hnitmiðað námskeið sem endaði í
starfsprófun.
Í megindráttum var námskeiðinu skipt upp
í þrjá hluta:
Í FYRSTA HLUTA (8 VIKUR):
a. Lögð fyrir matstæki: Sjálfsmatskvarði
Rosenbergs, COPM-viðtal, listi með
spurningum um daglegar venjur,
Hlutverkalistinn, Áhugalistinn, fylla út
iðjuhjólið.
b. Fræðsla – vinna með jákvæða
sjálfsmynd, trú á eigin getu og eigin
áhrifamátt, valdefling, sjálfsefling, HAM
– vinna með hugsanir, kvíðastjórnun / að
hafa stjórn á eigin aðstæðum. Mikilvægi
hreyfingar / líkamsrækt.
Í ÖÐRUM HLUTA (6 VIKUR):
a. Mikilvægi þess að setja sér markmið,
að búa sér til nýjar venjur, að vera í núinu,
skipuleggja tímann sinn (að dagurinn hafi
upphaf og endi), að hafa áhugamál, eigin
umsjá / mikilvægi þess að hugsa vel um
sig. Hverjir eru styrkleikar mínir, hverjar
eru hindranir mínar?
b. Vinnutengd námskeið; hvað gerir mig
að eftirsóttum starfsmanni? Æfa sig í
tjáningu. Búa til ferilskrá. Hvar langar mig
að vinna? Hreyfing. Finna stað fyrir
starfsprófun.
Í ÞRIÐJA HLUTA (10 VIKUR):
a. starfsprófun / aðlögun að starfi.
b. stuðningur.
c. mat á starfsgetu.
d. aðstoð við atvinnuleit.
GREIN
Elsa Sigríður Þorvaldsdóttir,
iðjuþjálfi með MA í heilbrigðisvísindum
ÞRÓUNARVERKEFNI
– UNGT FÓLK TIL ATVINNUÞÁTTTÖKU