Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 24
24
Ég hef mikinn áhuga á að vinna að
forvörnum og hef unnið við það síðastliðin
fimmtán ár hjá Vinnueftirliti ríkisins. Ég hef
einnig tekið þátt í flestum skólatöskudögum
og verið með fræðslu á vorin síðastliðin ár
varðandi skólatöskurnar. Áhugi minn fyrir
forvarnarstarfi byrjaði eiginlega snemma
og hef ég alltaf hugsað hvað hægt væri að
gera til að bæta t.d. líðan og umhverfi.
Þegar ég var í mínu námi í iðjuþjálfun
kynntist ég hugmyndafræði Jane Ayres. Þá
langaði mig að kanna áhrif grindargliðnunar
á fóstrið, það er ef móðir ætti erfitt með að
hreyfa sig vegna verkja á meðgöngunni og
hvaða afleiðingar það gæti haft á hið
ófædda barn. Tilgangurinn með þessu var
að fræða móðurina um hvað hún gæti gert
til að létta sér verkið og draga úr verkjunum.
Ég er leiðbeinandi í Stimulastik og má
kenna það. Stimulastik kemur frá Dan-
mörku, er samsett úr orðunum stimulation
og gymnastik og á upphaf sitt í
hugmyndafræði Jane Ayres. Foreldrum er
kennt að hafa áhrif á öll skynfærin með
æfingum/leikjum og eru fræddir um
tilganginn.
Í þessu námskeiði er farið í gegnum æfing-
ar/leiki sem hægt er að gera heima og kennt
er nudd þar sem það er mikilvægur þáttur í
tengslamyndun. Markmiðið er að foreldrar
og börn tengist góðum böndum. Börnin fá
þá athygli sem þau þurfa og foreldrar eru
upplýstir um tilganginn með því sem verið
er að gera. Námskeiðið er einstaklings-
miðað og þess vegna eru fáir í einu á
námskeiðinu til þess að hægt sé að sinna
hverjum og einum. Foreldrar geta rætt við
mig í einrúmi, ef það eru einhverjar
áhyggjur, og fá þá svör við þeim.
Í forvarnarskyni hef ég verið með fræðslu
fyrir starfsfólk ungbarnaleikskóla, bæði
með tillögur að æfingum/leikjum eða ýtt
undir það sem þau hafa verið að gera. Ég
hef rætt um leikvelli bæjarins, hvernig hægt
er að nýta þá og umhverfið í hverfinu. Ég hef
séð marga góða leikvelli sem ýta undir leiki
og æfingar en því miður eru margir þeirra
mjög einhæfir.
Þar sem ég er upptekin af forvörnum þá fór
ég í nám í TEBA-þjálfun sem er tengsla-
myndun eða á þýsku Therapie zum
elementaren Bindungsaufbau. Það er hægt
að ráðleggja foreldrum sem eiga börn sem
gráta mikið og erfitt er að hugga. Það er
alltaf einhver skýring á grátinum og hægt
að aðstoða þá með það eða vísa þeim
annað.
Nýjustu rannsóknir um tengingar í heila
ungbarna sýna að öll samskipti á milli
foreldra og barns eru mikilvæg fyrstu 3
mánuðina, fyrsta árið og fyrstu 7 árin.
Barnið sýnir viðbrögð rétt eftir fæðingu.
Þetta hefur styrkt mig enn frekar í því að
geta haft áhrif á foreldra og ungabarn.
Ég hef haft mikinn áhuga á vinnuumhverfi
barnshafandi kvenna, hvort sem það sé
vinnustaðurinn eða heimilið, og áhrif þess á
hið ófædda barn. Ég hef kynnt mér nýjustu
rannsóknir varðandi það og út frá þeim
upplýsingum hef ég verið að útbúa fræðslu
og gátlista til að koma í veg fyrir að konur
séu að vinna við hættulegar aðstæður á
meðgöngunni. Því miður er álagið og
streitan mikil í þjóðfélaginu og ef þunguð
kona er stöðugt í streitufullu umhverfi hefur
það áhrif á hið ófædda barn. Hvernig verður
þetta barn þegar það er undir miklu álagi?
Er það mjög kvíðið eða er það sérstaklega
viðkvæmt? Já, það eru margar spurningar
og mikilvægt að bregðast við.
Ég mun halda áfram að vera með námskeið
fyrir foreldra og ungabörn.
GREIN
Hafdís Sverrisdóttir,
iðjuþjálfi með framhaldsmenntun
í nærumhverfi barna og unglinga,
leyfishafi í Stimulastik ungbarnafimi
LENGI BÝR AÐ FYRSTU GERÐ