Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Qupperneq 28
28
Ævintýrið hófst 2008 þegar félagasamtök
með þjónustuúrræði höfðu samband við
mig og óskuðu eftir þjónustuúttekt og
ráðgjöf tengdri þjónustunni þeirra. Þetta
verkefni heillaði mig mjög mikið þar sem ég
fékk tækifæri til að rýna í þá þjónustu sem
verið var að veita og umhverfið sem
þjónustan fór fram í auk þess að koma með
tillögur að úrbótum. Ég hef alla tíð haft
mikla þörf fyrir að leggja mitt af mörkum til
að stuðla að virkri samfélagsþátttöku og
vellíðan annarra. Á starfsferli mínum hef ég
unnið í mörgum ólíkum starfshópum til að
bæta gæði í þjónustu, umhverfi og vel-
ferðartækni. Ég sat til dæmis í þriggja
manna þróunarhóp á vegum Sjómanna-
dagsráðs ásamt tveimur framkvæmda-
stjórum til að stuðla að þróun á þjónustu
Sjómannadagsráðs þegar ég hætti störfum
hjá Hrafnistu.
Ég ákvað að stíga skrefið til fulls í byrjun árs
2017 þegar ég stóð frammi fyrir ákveðnum
tímamótum og var óviss hvað ég vildi taka
mér fyrir hendur í starfi. Eftir töluverða
íhugun ákvað ég að verða eingöngu sjálf-
stætt starfandi iðjuþjálfi. Ég hafði verið í
góðu samstarfi þann veturinn við fyrirtæki
sem veitir sérhæfða þjónustu og það var
áhugi fyrir því að kaupa mun meiri þjónustu
hjá mér. Einnig hafði ég verið starfandi sem
stundakennari við Borgarholtsskóla frá
árinu 2014 í námi félagsliða og félagsliða í
viðbótarnámi svo tekjurnar voru ágætlega
öruggar og því engin ástæða til að láta ekki
drauminn rætast. Á þessum tíma komst ég
líka í samband við hagsmunasamtök sem
höfðu einnig áhuga á samstarfi við sjálfstætt
starfandi iðjuþjálfa svo það voru margir
áhugaverðir boltar á lofti. Mér fannst ég
varla vera búin að taka þessa ákvörðun og
var til að mynda á fullu að útbúa heima-
síðuna www.heimastyrkur.is þegar mér var
mjög óvænt boðin áhugaverð staða
verkefnisstjóra innan heimaþjónustu
Reykjavíkur við að innleiða verkefnið
„Endurhæfing í heimahúsi“. Nálgunin í
þeirri þjónustu byggist á sambærilegri
hugmyndafræði og þeirri sem ég hafði hug
á að veita í gegnum HeimaStyrk, hjálp til
sjálfshjálpar út frá hugmyndafræði vald-
eflingar. Ég ákvað að taka það verkefni að
mér og hugsaði sem svo að ég gæti innleitt
þá hugmyndafræði á meðan ég væri að
byggja upp ímynd og reynslu tengt
HeimaStyrk og sé ég alls ekki eftir því!
Reynslan sem ég hef fengið á þessu ári sem
ég hef verið í starfi hjá Reykjavíkurborg er
algjörlega ómetanleg. Ég tala nú ekki um
eftir að skemmtilega teymið tók til starfa á
þessu ári sem veitir endurhæfingu í heima-
húsi og svo allt frábæra starfsfólkið sem
starfar hjá Reykjavíkurborg.
Margir myndu telja það óraunhæft að geta
sinnt svona mörgum mikilvægum verk-
efnum á sama tíma en ég flokkast undir það
að vera orkumikill einstaklingur og hef
mikla þörf fyrir að takast á við fjölbreyttar
aðstæður og áskoranir þar sem ég fæ
tækifæri til að vera skapandi hugsuður.
Þannig hef ég verið alla tíð síðan ég man
eftir mér, mjög uppátækjasöm og þannig
líður mér best. Það merkir að ég hef þörf
fyrir fleiri verkefni en þau sem almenn
dagvinna getur boðið mér upp á, mér tókst
til dæmis að ljúka meistaranámi samhliða
fullu starfi sem deildarstjóri, meðgöngu og
fæðingarorlofi.
Það sem hentar mér svo vel við að vera
sjálfstætt starfandi er það frelsi sem því
fylgir, ég stjórna algjörlega hvaða verkefni
og hversu mikið af þeim ég er tilbúin að
taka að mér hverju sinni. Þann 1. nóvember
2017 staðfesti Embætti landlæknis að
þjónusta mín sem sjálfstætt starfandi
iðjuþjálfi undir starfsheitinu HeimaStyrkur
uppfyllti lágmarkskröfur embættisins til að
veita þjónustu og var það í fyrsta sinn á
Íslandi sem slíkt leyfi var veitt iðjuþjálfa. Ég
hef því verið að sinna þeim verkefnum
þegar vinnudeginum mínum lýkur sem
verkefnisstjóri og um helgar. Verkefnin eru
mjög fjölbreytt, mér til mikillar gleði, og
halda mér við efnið faglega, mér líður líka
best í þannig starfsumhverfi. Sveitarfélög,
fyrirtæki, stofnanir, samtök og einstaklingar
hafa þegið þjónustu mína varðandi ráðgjöf,
þjónustuúttektir, þjálfun, hjálpartæki og
heimilisbreytingar svo eitthvað sé nefnt. Ég
hef þá reglu að kanna alltaf hvort ein-
staklingurinn eigi kost á að sækja þjónustu
iðjuþjálfa að kostnaðarlausu áður en
þjónusta á mínum vegum hefst og vísa
þeim þangað ef svo er. Þegar þjónustu
HeimaStyrks lýkur þá óska ég eftir að fólk
svari nafnlausri könnun sem er stöðluð til
GREIN
Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir,
verkefnisstjóri, Iðjuþjálfi, MA í norrænum
öldrunarfræðum
HEIMASTYRKUR