Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 30
30
Útskriftarárgangurinn 2006 frá Háskólanum
á Akureyri var stundum kallaður sauma-
klúbburinn vegna þess hversu fámennur
hann var. Á öðru ári vorum við bara 7 en
tvær bættust við seinni tvö árin og féllu vel
inn í hópinn. Bekkurinn náði yfir breitt
aldursbil en náði að tengjast sterkum
böndum og var samheldinn hópur. Við
gerðum ýmislegt skemmtilegt saman utan
skólatíma og enduðum skólagöngu okkar
saman með vel heppnaðri útskriftarferð til
Búlgaríu. Eftir útskrift höfum við svo hist
reglulega en stefnum ávallt á að hittast
oftar.
Eini iðjuþjálfinn sem okkur er kunnugt um
að hafi útskrifast árið 2006 fyrir utan HA-
bekkinn er María Pálmadóttir. Hún út-
skrifaðist frá háskólanum í Árósum í
Danmörku. Hún tengist nú hluta af HA-
hópnum sem hún hittir reglulega í saumó.
HVAÐ HÖFUM VIÐ TEKIÐ OKKUR FYRIR
HENDUR FRÁ ÚTSKRIFT?
Erla Alfreðsdóttir
Erla Alfreðsdóttir hóf störf hjá Félags-
þjónustu Norðurþings eftir útskrift, fyrst
sem ráðgjafi í 50% starfi og for stöðumaður
geðræktarmiðstöðvar Seturs í 50% starfi en
tók síðar við stöðu deildarstjóra í málefnum
fatlaðra. Árið 2011 fluttist hún suður og hóf
störf sem iðjuþjálfi hjá Geðheilsustöð
Breiðholts en flutti sig þaðan og starfar í
dag sem iðjuþjálfi í Maríuhúsi, dagþjálfun
fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma.
Anna Dís G. Eydal
Anna Dís hóf störf á Reykjalundi 2006, fyrst
á verkjasviði og svo á gigtarsviði. Haustið
2011 hóf hún meistaranám í mannauðs-
stjórnun við viðskiptafræðideild Háskóla
Íslands og lauk því í janúar 2013. Á haust-
mánuðum 2012 hóf hún störf sem
yfiriðjuþjálfi á Droplaugarstöðum. Það starf
fólst einna helst í einstaklingsviðtölum,
ráðgjöf og þjálfun og einnig skipulagningu
félagsstarfs ásamt starfsmannamálum.
Árið 2015 hóf hún störf sem iðjuþjálfi hjá
Sjúkratryggingum Íslands, það starf fólst
aðallega í að yfirfara og afgreiða umsóknir
um hjálpartæki ásamt ráðgjöf til fagfólks og
einstaklinga. Árið 2017 tók hún við starfi
deildarstjóra þjónustuvers Sjúkratrygginga
Íslands og starfar við það í dag. Sem
deildarstjóri hefur hún umsjón með
starfsmannamálum og verkefnum deildar-
innar. Hún starfar því ekki í hefðbundnu
iðjuþjálfastarfi í dag en þekking og reynsla
hennar sem iðjuþjálfi í bland við mannauðs-
stjórnunarmenntunina nýtist vel á margan
hátt í starfinu.
Nanna Bára Birgisdóttir
Eftir útskrift hóf Nanna Bára störf hjá
Öldrunarheimilum Akureyrar og starfaði
þar í nokkur ár. Árið 2011 færði hún sig um
set og byrjaði sem NPA-starfsmaður
(notendastýrð persónuleg aðstoð) og
starfar við það í dag. Einnig vann hún um
tíma við aðgengisúttektir fyrir vefinn
gottadgengi.is samhliða NPA-starfinu.
Pálína Sigrún Halldórsdóttir
Pálína Sigrún Halldórsdóttir hóf störf hjá
búsetusviði Akureyrarbæjar á vordögum
2006 í búsetuþjónustu fyrir fólk sem glímir
við vanda tengdan geðröskunum. Segja má
að það hafi í raun verið framhald vettvangs-
náms 4 sem hún tók einmitt á þessum stað
en það starfssvið heillaði umfram annað og
er enn hennar vinnu staður. Í dag sinnir hún
starfi deildar stjóra í áfangaíbúðum fyrir
geðfatlaða þar sem fram fer tímabundin
endurhæfing en Pálína vinnur einnig í
þjónustuíbúðakjörnum þar sem er varanleg
búseta fyrir fólk með geðfötlun.
Á þeim tíma sem liðinn er frá útskrift hefur
Pálína fengið tækifæri sem iðjuþjálfi til að
taka þátt í ýmsum verkefnum sem tengjast
starfi á geðsviði, hafa áhrif á þróun og
uppbyggingu endurhæfingar starfsins á
starfsstöðvum sínum sem og að fara á ýmis
námskeið, ráðstefnur og heimsóknir til að
efla starfsemina. Meðal langtímaverkefna
hefur verið að móta og þróa endurhæfingar-
dagskrá í búsetuíbúðakjarna frá árinu 2009,
þegar starfsemi áfangaheimilisins var flutt
úr herbergjasambýli í áfangaíbúðir. Einnig
má nefna vinnu í starfshópi sem sá um
innleiðingu hugmyndafræði valdeflingar í
starfsemi búsetusviðs en sú vinna byrjaði
sem tilraunaverkefni á vegum Velferðar-
ráðuneytisins haustið 2014. Pálína starfaði í
kjaranefnd Iðjuþjálfafélags Íslands frá 2011
til 2017. Hún hefur einnig sinnt stunda-
kennslu í Háskólanum á Akureyri þegar til
hennar hefur verið leitað.
GREIN
Útskriftarárgangur HA 2006
ÚTSKRIFTARÁRGANGUR
IÐJUÞJÁLFA 2006