Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Qupperneq 32
32
Góð geðheilsa er undirstaða virkni og
þátttöku hvers einstaklings og er endur-
hæfing á geðsviði því mikilvægur þáttur í
nútíma velferðarþjónustu. Skjól stæðings-
miðuð þjónusta hefur undanfarna áratugi
orðið mikilvægur liður í endur hæfingar-
þjónustu. Slík þjónusta miðar að samstarfi
þar sem valdið er fært markvisst til
skjólstæðinga og þeir eru virkir þátt-
takendur í endurhæfingu sinni. Þrátt fyrir
að nálgunin hafi verið leiðandi í
endurhæfingarþjónustu í þó nokkurn tíma
er skortur á rannsóknum á fyrirbærinu og
þá sérstaklega út frá sjónarhóli skjólstæð-
inga. Tilgangur rannsóknarinnar var að
kanna reynslu fólks með geðrænan
heilsufarsvanda af sérhæfðri endurhæfingu
á geðsviði og að hvaða marki hún sam-
ræmist meginþáttum skjólstæðings-
miðaðrar þjónustu. Rannsóknarspurningin
sem leitað var svara við og leiddi verkefnið
var: Að hvaða marki samræmist starfsemi
sérhæfðrar endurhæfingardeildar á geð-
sviði meginþáttum skjólstæðings miðaðrar
þjónustu að mati notenda? Rannsóknin var
lýsandi þversniðsrannsókn. Gagnaöflun fór
fram með mælitækinu Spurningalisti um
skjólstæðingsmiðaða endurhæfingu sem
metur að hvaða marki endurhæfing er
skjólstæðingsmiðuð út frá sjónarhóli
notenda þjónustu. Öllum þeim sem
útskrifuðust af sérhæfðri endur hæfingar-
deild á geðsviði á tímabilinu 5. september
2014 til 4. nóvember 2016 var boðin
þátttaka. Svarhlutfall var 93,9%. Við úr-
vinnslu gagna var notast við tölfræði forritið
IBM Statistical package for social sciences
(SPSS, 20.útgáfa) og voru niðurstöður settar
fram með lýsandi tölfræði og ályktunar-
tölfræði. Gagna greining leiddi í ljós að
þátttakendur töldu sig hafa fengið gott
viðmót og stuðning frá fagfólki og að
ákvarðanir væru teknar og markmið sett í
takt við skjólstæðingsmiðaða þjónustu.
Samskipti fagfólks við aðstandendur
endurspegluðu síst megin þætti skjól-
stæðings miðaðrar þjónustu sem gefur
vísbendingu um að skoða þurfi aðkomu
aðstandenda að þjónustunni.
Lykilhugtök: Endurhæfing, fólk með
geðræn veikindi, skjólstæðingsmiðuð
þjónusta
ÁGRIP ÚTSKRIFTARNEMA 2017
Höfundar: Bryndís Jónsdóttir
og Linda Ósk Þorvaldsdóttir
Leiðbeinandi: Sólrún Óladóttir
AÐ VERA SÉRFRÆÐINGUR
Í EIGIN LÍFI:
REYNSLA FÓLKS AF SÉRHÆFÐRI ENDURHÆFINGU Á GEÐSVIÐI
Höfundar: Laufey Þórdís Sigurðardóttir,
Petra Sæunn Heimisdóttir
og Unnur Birgitta Halldórsdóttir
Leiðbeinandi: Hermann Óskarsson
„ÞETTA ER
DÁSAMLEGT STARF“:
VIÐHORF OG REYNSLA STARFSFÓLKS SEM
VINNUR EFTIR EDEN HUGMYNDAFRÆÐINNI
Sjónarhorn starfsfólks sem vinnur eftir
Eden hugmyndafræðinni á hjúkrunar-
heimilum hefur lítið verið rannsakað, oftar
er litið til íbúa og aðstandenda. Mörg
hjúkrunarheimili hafa innleitt breytingar og
tekið upp nýja hugmyndafræði sem hefur
áhrif á viðhorf og menningu þeirra. Starfið
er fjölbreytt og krefjandi og starfsmenn
skulu mæta þörfum einstaklingsins fremur
en að hann aðlagi þarfir sínar að
hjúkrunarheimilinu. Tilgangur rannsóknar-
innar var að kanna viðhorf og reynslu
starfsfólks af því að vinna eftir Eden
hugmyndafræðinni. Sett var fram rann-
sóknarspurningin: Hver eru viðhorf og
reynsla starfsfólks sem vinnur eftir hug-
myndafræði Eden á hjúkrunarheimilum? Í
þessari rannsókn var notast við eigindlega
rannsóknaraðferð og hentugleikaúrtak. Við
öflun gagna voru tekin sex einstaklings-
viðtöl, til að draga upp raunhæfa mynd af
starfinu og hannaður var hálfstaðlaður
viðtalsrammi. Stuðst var við innihalds-
greiningu, gögnin afrituð og greind í fjögur
þemu sem voru: Tíminn er líklegri til að
týnast, þetta er heimili fólks, maður nýtir
augnablikið og mér fannst þetta fáránlegt
fyrst. Allir viðmælendurnir voru sammála
um að þetta væri heimili íbúanna og voru
fremur jákvæðir í garð Eden hugmynda-
fræðinnar. Auk þess lögðu þeir áherslu á að
virkja íbúa til félagslegra samskipta og
þátttöku í þeim viðburðum sem boðið var
upp á inni á hjúkrunarheimilunum. Eins
kom fram að gott utanumhald var á Eden
námskeiðunum, en endurmenntunin væri
ómarkviss og fannst viðmælendum
mikilvægt að haldið yrði betur utan um
hana. Rannsóknin getur gefið stjórnendum
hjúkrunarheimila innsýn í viðhorf og
reynslu starfsmanna.
Lykilhugtök: Umönnunaraðili, hjúkrunar-
heimili, umhverfi, viðhorf, reynsla og
hugmyndafræði.