Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Side 35
35
Starfsumhverfi er mikill áhrifaþáttur um
vellíðan og ánægju í starfi. Á Íslandi starfar
aðeins um helmingur menntaðra grunn-
skólakennara við fagið og mikil fækkun
nemenda hefur verið í kennaranámi við
háskólana. Ýmsar ástæður hafa verið
nefndar fyrir þessari þróun, en mikilvægi
kennarastarfsins er óvéfengt þar sem hér
ríkir skólaskylda frá 6 til16 ára aldurs. Fáar
íslenskar rannsóknir hafa skoðað áhrif
starfsumhverfis í skólum á kennara og
hvaða umhverfisþættir ýta undir eða draga
úr vellíðan og ánægju þeirra, við
framkvæmd verka í starfi. Markmið þessarar
rannsóknar er að bregðast við því og skoða
starfsumhverfi í einum grunnskóla,
Malarskóla (dulnefni). Til að leiða
rannsóknina voru settar fram tvær
spurningar: (1) Hvernig móta tilskipanir
ríkis og sveitarfélags starfsumhverfi
grunnskólakennara við Malarskóla? (2)
Hvernig ýtir starfsumhverfi grunnskóla-
kennara við Malarskóla undir starfsánægju
og vellíðan þeirra og hvernig dregur það úr?
Til að svara spurningunum var gerð
tilviksathugun þar sem gögnum var safnað
með vettvangsathugunum, WEIS viðtölum
við þrjá kennara, opnum viðtölum við
skólastjóra og skoðun ritaðra gagna.
Hugmyndafræðin sem stýrir rannsókninni
var Líkanið um iðju mannsins (e. Model of
Human Occupation – MOHO) og matstækið
Mat á starfsumhverfi (e. Work Environment
Impact Scale- WEIS) lagði grunn að
stærstum hluta gagnaöflunar. Með WEIS
fæst huglæg upplifun einstaklings af því
hvaða áhrif starfsumhverfið hefur á ánægju
og vellíðan í starfi. Niðurstöður WEIS eru í
megindlegu formi, en umhverfisþættir
MOHO voru notaðir sem sniðmát fyrir alla
eigindlega greiningu. Gögnin voru borin
saman hvert við annað. Val skóla tók mið af
stærð, stað og hentugleika en val
viðmælenda var tilgangsbundið. Við-
mælendur voru á aldrinum 27 til 43 ára,
þrjár konur og einn karl. Helstu niðurstöður
sýndu að skólastjórinn rekur skólann sem
fyrirtæki, hann starfar sem rekstrarstjóri og
starfsmannastjóri síns skóla. Hann hefur
ákveðið frjálsræði innan tilskipana ríkis og
sveitarfélaga sem hann getur nýtt sér í
þróunarstarfi skólans. Um 30% fjárframlaga
skólans fara í annað en laun starfsfólks og
er þeim deilt í samræmi við forgangsröðun
skjólastjórnar. Það sem ýtir undir ánægju
og vellíðan í starfsumhverfi kennara er að
þeir telja starf sitt mikilvægt. Til þeirra eru
gerðar sanngjarnar kröfu en jafnframt hafa
þeir frjálsar hendur með mótun
starfshlutverksins og kunna þeir vel að
meta það. Það sem einna helst dregur úr
ánægju þeirra og vellíðan er að laun eru
ekki í samræmi við vinnuframlag og ábyrgð.
Lykilhugtök: Starfsumhverfi, starfsánægja,
grunnskólakennari, Líkanið um iðju
mannsins og WEIS.
Höfundar: Silja Margrét Stefánsdóttir
og Hafrún Lilja Halldórsdóttir
Leiðbeinandi: Kristjana Fenger
„ÞAÐ ER GAMAN AÐ VERA KENNARI EN...“
TILVIKSATHUGUN Á STARFSUMHVERFI
GRUNNSKÓLAKENNARA
Leikur er mikilvægur fyrir þroska og vellíðan
allra barna. Þeim er mikilvægt að fá að leika
og taka þátt í leik með öðrum börnum, að
eiga félagslega hlutdeild jafnt á við aðra og
fá að vera með. Fyrir samfélagið í heild
skiptir það máli að öll börn geti leikið sér
saman og að hönnun sé á þann hátt að
hugað sé að félagslegu gildi leiks.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að sum börn
hafi færri tækifæri en önnur til að komast
um í samfélaginu og að vera virkir
þátttakendur. Að eiga hlutdeild í sam-
félaginu getur, jafnt og leikur, haft áhrif á
andlega líðan og þroska barna.
Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til
B.Sc. prófs í iðjuþjálfunarfræði við
Háskólann á Akureyri. Tilgangur rann-
sóknarinnar sem lýst er í þessari rann-
sóknaráætlun er að gera úttekt á leiksvæð-
um Mosfellsbæjar og kanna hvort aðgengi
sé í samræmi við algilda hönnun, nýlega
samþykktan samning Sameinuðu þjóð-
anna, lög og reglugerðir. Sú rannsóknar-
spurning sem mun leiða verkefnið er „Að
hvaða marki eru leiksvæði Mosfellsbæjar
aðgengileg börnum til leiks, samkvæmt
gátlista um útileik og félagslega hlutdeild?“
Rannsóknin er megindleg lýsandi rannsókn
og stuðst er við fyrrnefndan gátlista.
Lykilhugtök: algild hönnun, félagsleg
hlutdeild, þátttaka, aðgengi, notagildi,
leikur, leiksvæði og fötluð börn
Höfundur: Sonja Ólafsdóttir
Leiðbeinandi: Hólmdís Freyja Methúsalemsdóttir
GETA ALLIR VERIÐ MEÐ?
AÐGENGI AÐ ALMENNUM LEIKSVÆÐUM
MOSFELLSBÆJAR
– RANNSÓKNARÁÆTLUN