Lögmannablaðið - 15.01.1996, Síða 19
því gert að greiða þrotabúinu kr.
1.000.000 í bætur með vísan til 62.
gr. gþskl. nr. 6/1978.
Gildi veðsetningar
Þá var K gert að aflétta veðsetn-
ingu skuldabréfsins, þar sem nægi-
lega þótti í ljós leitt að um mála-
myndagerning væri að ræða. Var
vísað til þess, að K hafi verið orð-
fá um tilurð og afdrif skuldabréfs-
ins og jafnframt litið tii óvenjulegra
skilmála þess og ráðstafana K á
bréfinu í tengslum við kaupsamn-
inginn, sem gerður hafði verið á
árinu 1991 með fyrirvara um sam-
þykki þrotabús M. Jafnframt var lit-
ið til þess að K lagði bann við því
að bróðir hennar, sem hún kvað
hafa haft með höndum ráðstöfun
bréfsins, upplýsti um afdrif þess og
breytti í engu þótt dómarinn
beindi tilmælum til K um að hlut-
ast til um að þau atriði yrðu upp-
lýst í samræmi við 2. mgr. 46. gr. 1.
nr. 91/1991. Nefndur bróðir K var
kvaddur fyrir dóm, en hann synjaði
um skýrslugjöf á grundvelli undan-
þáguréttar vitnis sökum skyldleika
við málsaðila. Leit dómurinn svo á
að nægilega væri í ljós leitt, að K
hefði ráðstöfunarheimild á bréfinu
og ekki væri til að dreifa öðrum,
sem í grandleysi leiddi betri rétt af
bréfinu. Var K því gert að aflétta
veðsetningu nefnds skuldabréfs.
Áfryjun - Nauðungarsala
fasteignarinnar
K áfrýjaði málinu til Hæstaréttar
og krafðist frávísunar málsins frá
héraðsdómi en til vara sýknu en til
þrautavara að aðeins yrði tekinn til
greina hluti af kröfum þrotabús M.
Tveimur dögum fyrir uppsögu hér-
aðsdóms var umdeild fasteign seld
á nauðungaruppboði og í samræmi
við hinn áfrýjaða dóm var ekki tek-
ið tillit til veðskuldabréfsins í fmm-
varpi sýslumanns að úthlutun sölu-
andvirðis eignarinnar. Aður en
frestur til að koma að athugasemd-
um við fmmvarpið rann út komu
fram mótmæli við það og var gerð
krafa í uppboðsandvirði nefnds
veðskuldabréfs. Sýslumaður frest-
aði að taka afstöðu til þeirrar kröfu
DOMflR
vegna áfrýjunar málsins af hálfu K.
Vegna breyttra aðstæðna féll þrota-
búið frá kröfu um afhendingu fast-
eignarinnar en gerði í þess stað
kröfu um afhendingu þess hluta
söluandvirðis eignarinnar, sem
falla ætti til þrotabúsins að um-
deildu veðskuldabréfi frágengnu,
en til vara, að K yrði dæmd til að
greiða þrotabúinu samsvarandi
upphæð í skaðabætur. Að öðru
leyti var krafist staðfestingar hins
áfiýjaða dóms og úrskurðar í hér-
aði um synjun á frávísunarkröfu K.
Dótnur Hcestaréttar
Nokkur ný gögn voru lögð fyrir
Hæstarétt, m.a. endurrit af vitna-
framburði handhafa veðskulda-
bréfsins, sem aflað var eftir áfrýjun
málsins. Hæstiréttur staðfesti úr-
skurð héraðsdóms um synjun á frá-
vísun málsins með skírskotun til
forsendna hans. Þá staðfesti Hæsti-
réttur riftunarákvæði héraðsdóms
og úrlausn um skyldu K til að
greiða þrotabúinu kr. 1.000.000
vegna innbús þess, sem gert var að
séreign hennar með umdeildum
kaupmála. Loks féllst Hæstiréttur á
að eftirstöðvar söluandvirðis fast-
eignarinnar skv. frumvarpi sýslu-
rnanns að úthlutunargerð skyldi
renna til þrotabús M. í dómi
Hæstaréttar kemur fram að veð-
setningin sé ekki, fremur en ráð-
stöfun fasteignarinnar til K, bind-
andi gagnvart þrotabúinu, en í
málinu reyndi ekki á rétt þriðja
manns, sem kynni að hagga þeirri
niðurstöðu á grundvelli traust-
fangsreglna. í dóminum er tekið
fram að handhafi veðskuldabréfs-
ins hafi átt þess kost að skjóta
ágreiningi þeim, sem upp var kom-
inn um frumvarp sýslumanns að
úthlutun uppboðsandvirðis, til hér-
aðsdómara skv. 52. og 73. gr. I. nr.
90/1991, en svo hafi ekki verið
gert. Brysti lagaskilyrði til þess að
leysa úr þeim ágreiningi í máli K
og þrotabúsins, sem handhafi
bréfsins ætti ekki aðild að.
Frá ritstjóra og ritnefnd:
Aðsendar greinar
Félagsmenn eru hvattir til aö rita í blaðið greinar, langar eða
stuttar, um hugðarefni sín er tengjast störfum lögmanna.
Ekki þarf að vera um mjög fræðileg skrif að ræða. Til að auð-
velda vinnslu blaðsins væri æskilegt að aðsendar greinar
kæmu bæði prentaðar á blað og á tölvudiskum, t.d. í Word
eða Word-Perfect ritvinnsluformi. Þeim, sem hafa áhuga á
að senda greinar til blaðsins, er bent á að það kemur út 15.
dag janúar, mars, maí, júlí, september og nóvember ár hvert.
Þurfa greinarnar því að berast til skrifstofu L.M.F.Í. eigi síðar
en 1. dag útgáfumánaðar.
Lögmannablaðið
19