Málfríður - 15.05.2001, Qupperneq 7

Málfríður - 15.05.2001, Qupperneq 7
Aukin tungumálakunnátta styrkir íslenskuna Til að hver einstaklingur geti þroskað og nýtt hæfileika sína þarf hann að geta tjáð skoðanir sínar, komið vitneskju sinni á framfæri og aflað sér nýrrar þekkingar. I nútímaþjóðfélagi þarf hann að geta gert þetta, svo vel sé, á fleiri tungumálum en ís- lensku. Með þessu er ég ekki að segja að íslenskan sé óþörf, óþjál eða líkleg til að verða annars flokks. Hún er okkar móður- mál, á henni byggjum við, og hún er óijúfanlegur partur af því sem við erum. Það er mín skoðun að það sé með tungumálakunnáttu eins og aðra þekk- ingu, að því meira sem við eigum af henni, því víðari verður sjóndeildarhring- urinn. Jafnframt lærir maður betur að meta það sem maður hefur og því tel ég að aukin tungumálakunnátta muni styrkja íslenskuna frekar en veikja. Tungumálakunnátta getur skap- að forskot En gætum við ekki gert betur en það eitt að nýta tungumálin til að skapa okkur jafnréttisgrundvöll í viðskiptum? Getum við ekki nýtt þau til að skapa okkur for- skot? Tungumálakunnátta stærri þjóða er mjög misjöfn. Einfaldlega af því að þær eru svo stórar að þær verða sjálfhverfar. Með því að leggja áherslu á að efla enn frekar almenna tungumálakunnáttu á Is- landi auðveldum við hverjum og einum íbúa þessa lands að nýta hæfileika sína sem best, hvort sem er hér heima eða annars staðar. Afi minn hlaut stuðning góðra manna til að afla sér menntunar í Evrópu á þriðja áratug þessarar aldar. Svo náin tengsl við aðra menningarheima, jafnvel bara í formi ferðalaga voru ekki á allra færi á þeim tíma. Með aukinni velmegun og nútíma fjarskipta-möguleikum eiga þau að geta verið það. Eg ólst upp við að lestur bóka og blaða á öðrum tungumálum en ís- lensku væru sjálfsagt mál, þrátt fyrir að úrvalið væri ekki mikið og stundum væru blöðin gömul. Það hefur breyst en verðið á innfluttum bókum og blöðum gerir þau ekki beinlínis aðgengileg öll- um. En hvað með tungumálakennslu? Hvaða hlutverki gegnir hún fyrir atvinnu- lífið? Stóru hlutverki í mínum huga. Fyrir fullorðið fólk eru margvíslegar leiðir í boði til að bæta við tungumála- kunnáttu sína og hjá Islandsbanka-FBA bjóðum við t.d. upp á talþjálfun í ensku. Það er hins vegar svo að tímaskortur nú- tímafólks verður oft til þess að góð áform um viðbótarnám verða að litlu. Leggjum grunninn snemma Því tel ég mikilvægt að byrja á grunnin- um. Það er ósköp einföld staðreynd sem löngu hefur verið viðurkennd að hæfi- leikinn til að læra tungumál er mestur hjá börnum. Þau soga í sig þekkinguna, eiga auðvelt með að ná tökum á málfræðinni og nýjum framburði — m. a. af því að þau eru algjörlega óhrædd. Eftir því sem árin líða minnkar þessi hæfileiki. Það eina sem virðist ekki minnka, er hæfileikinn til að læra ný orð. Við byrjum að kenna börnunum okk- ar ensku þegar þau eru 10 ára og dönsku þegar þau eru 12 ára. I samanburði við ná- grannaþjóðir okkar komum við ágætlega út.Víðast í Evrópulöndum byrja börn að læra erlent tungumál í fýrsta sinn 10 ára. 1 smærri löndum álfunnar byija börn þó sums staðar að læra tungumál strax í upp- hafi skólagöngu. Eg spyr hvort við getum ekki gert það líka? Farið að kenna börn- um ensku 8 ára, dönsku 10 ára og þriðja tungumálið 12 ára? Og gert átak í að fjölga möguleikum í tungumálakennslu í ffam- haldsskólum, t. d. með því að samnýta kennslu? Þannig værum við að undirbúa börnin okkar betur fyrir heim þar sem þau þurfa að vera í stakk búin til að viða að sér þekkingu alls staðar að, eiga dagleg samskipti við fólk úr öllum heimshornum þar sem hæfileikinn til að tjá sig og skilja aðra verður meðal þess sem mest er met- ið. Það er mín skoð- un að það sé með tungumálakunn- áttu eins og aðra þekkingu, að því meira sem við eigum af henni, því víðari verður sj óndeildarhr ing- urinn. 7

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.