Málfríður - 15.05.2001, Blaðsíða 18

Málfríður - 15.05.2001, Blaðsíða 18
Nemendur skipulögðu kvöldvöku og morgunleikíxmi sem skyldi fara fram á dönsku. sem mörg viðfangsefnanna beinlínis kröfðust þess að samvinna væri höfð í há- vegum. Síðast skal talið og þó ekki síst að eftir fyrstu vikurnar var það á ábyrgð hvers ein- staks nemanda að skrá í leiðarbók allt sem gert var í tímunum og heimavinnu. Ef nemandi missti af tíma var ákveðið verk- efni í uppnámi og sjaldnast hægt að skrifa upp eftir náunganum til að bæta úr fyrir sér. Dönskubúðir Viku af október var gerð tilraun sem lengi hefur verið beðið færis á að koma í fram- kvæmd. Það er að fara með hóp nemenda út úr skólaumhverfmu og líka hversdags- umhverfinu og reyna að skapa aðstæður þar sem allir skyldu tala dönsku, ekki bara við kennarana heldur einnig sín á milli. Fengið var að láni hús, sem gegnir hlut- verki sumarbúða, og því gistimöguleikar fyrir heilan bekk. Undirbúningur hófst viku fyrr með því að gera úttekt á þeim orðaforða sem nemendur þyrftu að ráða yfir í ferðinni. Gerður var listi yfir innkaup í sameiginlega máltíð. Gerður var listi yfir allt matarkyns sem nemendur tóku með sér að heirnan. Gerður var listi yfir allan þann búnað og fatnað, sem líklegt var að menn þyrftu á að halda. Kennarar skrifuðu á miða heiti ýmissa hluta, sem á staðnum voru, s.s. allt í eldhúsi. Nemendur skipu- lögðu kvöldvöku og morgunleikfimi sem skyldi fara fram á dönsku. Matseld fór fram á dönsku, uppþvottur og tiltekt. Otrúlegt var hvað nemendur tóku því vel að tala nánast ekkert nema dönsku frá því þeir stigu upp í rútuna á hlaði skólans og þangað til þeim var skilað þangað aftur. Kannski hjálpaði það mikið að þeir fengu frímínútur þar sem þeir gátu dregið sig í hlé í smástund milli dagskráratriða. Dvöl- inni lauk með munnlegu prófi sem byggðist alfarið á því sem farið hafði fram í ferðinni og bjó að baki þeim orðalistum sem nemendur höfðu útbúið við skipu- lagningu ferðar. Samantekt Eftir að verkfalli lauk var síðasta þemað keyrt í gegn. Reyndar það erfiðasta en nemendur létu engan bilbug á sér finna og luku áfanganum með sóma flestir hveijir. Námsmat varð með þeim hætti sem áætl- un gerði ráð fyrir. Ekki var laust við að undirritaðar veltu fyrir sér hvernig til hefði tekist ef verkfall hefði ekki sett strik í reikninginn á við- kvæmum tíma í þessu tilraunaferli. Þrátt fyrir að hafa eytt fjórum vikum í sumar í að undirbúa áfangann dugði það skammt þegar á hólminn var komið. Omældar vinnustundir fóru í að útbúa verkefni og enn fleiri fóru í að uppgötva hjólið varðandi tæknimáhn. Fyrir það fyrsta fengust ekki nógu margar tölvur í stofuna til að hver nem- andi hefði sína tölvu, þegar best lét voru þrír um tölvu. Þrengsli sáu fyrir því að slíkt gekk ekki.Tveir kennarar urðu því að vera til staðar í flestum kennslustundum, annar til að stjórna tölvuvinnu og hinn til að halda nemendum að verki við önnur verkefni. Þegar best lét voru átta tölvur í lagi í stofunni en aldrei var á vísan að róa með það hvernig ástand tækja var þegar kennslustund hófst að morgni. Stundum voru aðeins 4 tölvur virkar þegar til átti að taka. Þá var það kennaranna að bregðast við því. Bæði þetta og svo tíminn sem fór í að læra á WebCT án teljandi leiðsagnar er hlutur sem ekki ætti að eiga sér stað. Starfsmaður með tækni- og hugbúnaðar- þekkingu ætti alltaf að vera í kallfæri með- an kennarar eru að tileinka sér það sem þeir þurfa á að halda og þegar þeir þurfa á því að halda. Þessi tækni er komin til að vera. Þessi áfangi verður keyrður aftur í haust og þá væntanlega með einum kennara. Allir nemendur verða með fartölvur og von- andi leikur þá allt í lyndi. Nema — það verða önnur áhyggjuefni sem steðja að þegar þar að kemur. Litlu fartölvurnar verða rafinagnslausar þegar minnst varir og gögn týnast — en það verður að taka á því þegar þar að kemur. 18

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.