Víðförli - 15.12.1987, Page 7
VIMUEFNI OG FJÖLSKYLDUTENGSL
— HAFA „DAIГ
^ ÁFENGISNEYSLA
í VIKUNNl
B
*
HALF FLASKA
EÐA MEIRA
AFSKIPTI
LÖGREGLU
VERJA TÓMSTUNDUM MEÐ FORELDRUM
upp við hlýju móður og 76.6% við
samræmi móður. 38.1% þeirra eiga
foreldra sem aðlagast illa hjóna-
bandi en 5.6% þeirra sem ljúka há-
skólaprófi eiga foreldra í þeim hjú-
skaparvanda. Sigurjón sýnir einnig
að góð geðheilsa virðist jafn mikil-
væg til námsárangurs og gáfur.
Þarna má sjá hve góð umönnun
barna, sérstaklega ungra barna er
mikilvæg fyrir gengi þeirra í lífinu.
— Það ersem sagt góð fjárfesting
í börnum?
Ja, til hvers er fjárfesting án
barna, án framtíðar. Fjárfesting án
þess að hafa þeirra hag fyrir augum
er náttúrlega ekki skynsamleg. Öll
þessi fjárfesting núna t.d. í húsnæði
skapar ekki hagstæðar aðstæður
fyrir góðar samvistir fjölskyldna.
Jafnréttisráð hefur fundið út, að
60% sjö ára barna gangi sjálfala, eru
á eigin vegum á daginn. Verulegur
hluti þeirra barna sem lenda í slysum
eru ein. Skólahjúkrunarfræðingar
hafa bent mér á að stundum geta for-
eldrar ekki losað sig úr vinnu t.d.
þegar börn slasast í skóla og þurfa á
slysadeild. Er þá vinnuharkan eða
vinnuhraðinn svona magnaður. Nú
börnin leysa auðvitað sjálf sinn
vanda, samkvæmt lögmáli frum-
skógarins, læra að bjarga sér og
verða sjálfstæð. Svo verðum við for-
eldrar steinhissa þegar við förum
loksins að fylgjast með þeim á
gelgjuskeiðinu, og þau hlýða okkur
ekki. Við hittum allt í einu fyrir sjálf-
stæðan einstakling! En hversu gott
þetta er börnum er annað mál.
Kannanir sýna t.d. glögglega að þau
börn sem eru mikið með foreldrum
sínum lenda síður í vímuefnum. En
það þarf tvö til að afla heimilistekna
og börnin sitja á hakanum á meðan.
— Hvernig eru þá kjör einstceðra
foreldra og barna þeirra?
Kannanir Félagsvísindastofnunar
Háskólans og Hjartaverndar sýna að
tveir hópar hafa staðið í stað á þess-
um uppgangstíma, einstæðar mæð-
ur og öryrkjar. Auk þess hefur hagur
ellilífeyrisþega ekki batnað í 15 ár.
Þeir eru líka skattpíndir, borga öðru
sinni skatt af lífeyri sínum.
Einstæðir foreldrar hafa lægri
tekjur bæði af því að þeir eru einir til
tekna og geta unnið minni auka-
vinnu. Þess vegna búa þeir sjaldnar
í eigin húsnæði, flytja oftar og börn-
in verða ítrekað að venjast nýjum að-
stæðum. Það er ekki góð meðferð á
neinu barni. Nú, önnur könnun sýn-
ir að vinnutími 12 ára barna er næsta
jafnlangur og kennara þeirra, enda
kvarta þau jafn mikið um þreytu og
60 ára karlar og eldri í rannsókn
Hjartaverndar. Sem sé, þau vinna of
mikið.
Erum við að ala upp samskonar
vinnuþræla og við erum sjálf og
leiða þau inn í vítahringinn. Eftir-
sókn eftir lífsgæðum hérlendis gera
sitt gagn til að viðhalda honum.
Þarf ekki að breyta einhverju gild-
ismati?
— Hvar á að byrja á því?
Það byrjar enginn nema á sjálfum
sér. Við höfum miklar áhyggjur af
vaxandi vímuneyslu unglinga. Það
eru til ágæt baráttusamtök kölluð
vímulaus æska. Kannski væri nær
að stofna samtök vímulausra for-
eldra. Líf barnanna eru nú afrakstur
af okkar framferði. Ég minntist áður
á gildi traustrar fjölskyldu. 50% af
þeim unglingum á Vesturlöndum
sem nota fíkniefni koma frá fjöl-
skyldum sem sundrast áður en barn-
ið náði 7 ára aldri. Það segir okkur
töluvert um líðan barna við þær að-
stæður.
Landlœknir og Vilborg Ingólfsdóttir deildarstjóri I heimsókn á Biskupsstofu hjá sr.
Sigurði Guðmundssyni.
VÍÐFÖRLI — 7