Víðförli - 15.12.1987, Blaðsíða 19

Víðförli - 15.12.1987, Blaðsíða 19
lagsins. Síminn okkar er 14327. Þar eru biblíulestrar einu sinni í viku og eru þeir vel sóttir. Á næstunni verður námskeið um bænina fyrir þá, sem taka þátt í fyrirbænastarfi á sjúkra- húsum sem og aðra áhugamenn. Dagana 7r 9. nóvember vorum við í Vestmannaeyjum með kynningar og fræðslufundi á sjúkrahúsinu og elli- heimilinu. Einnig heimsóttum við KFUK-konur, hvítasunnusöfnuðinn og aðventista, því að Kristilegt félag heilbrigðisstétta er þverkirkjuleg hreyfing. Þá er fyrirhuguð samskon- ar ferð til. Keflavíkur á næstunni. Einnig hafa nokkrar stofnanir í Reykjavík beðið okkur að koma og hafa fræðslufundi. Við ætlum síðar að bjóða 5-10 klukkustunda námskeið á kristnum grundvelli um bænina, um dauðann, um kulnun í starfi, hvernig gefa má öðrum hlutdeild í trú sinni og auðvit- að alhliða umönnun sjúkra. Starfið á heilbrigðisstofnunum er mjög krefjandi og starfslið þarf margskonar stuðning. Einn kollegi minn sagði við mig nýlega, að hún hefði oft óskað þess að kunna að biðja og finna greinar í Biblíunni til að lesa fyrir þá sjúku, þegar þeir biðja um það. Hún sagðist vilja taka trúarþráðinn upp aftur og rækta trú sína. Við vildum gjarnan aðstoða fólk eins og hana, svo að það geti betur tekist á við þann þátt í lífi og starfi sem snertir hina trúarlegu hlið. — Þetta er mikið átak sem fram- undan er hjá ykkur? Það eru forréttindi að fá að starfa við sitt hjartans mál. En því má ekki gleyma, að Kristilegt félag heilbrigð- isstétta hefur starfað hérlendis í nær 10 ár og hefur sannarlega plægt ak- urinn. Víða eru vikulegar bæna- stundir á sjúkrastofnunum á vegum félagsins og gefið er út fréttabréf og tímarit sem dreift er víða. Auk þess eru mánaðarlegir fundir í Laugar- neskirkju öllum opnir. Þeir eru alltaf þriðja mánudag hvers mánaðar. Svona hugsjónarstarf er eingöngu hægt að vinna í krafti bænarinnar. Við viljum vera þjónar Drottins og treystum honum til að leiða starfið. — Hvernig geta lítil samtök eins og KFH haft tvo starfsmenn? Magnús er í fullu starfi en ég að- eins í hlutastarfi og máske fer það svo að ég fari í starf annarsstaðar ef fjárhagsgrundvöllur næst ekki. Það eru áhugasamir einstaklingar sem reyna að tryggja laun okkar en það þarf að gera kynningarátak til að leysa það mál til frambúðar. KFH er aðili að alþjóðasamtökunum sem hafa starfað í 50 ár og starfa nú í meir en 90 löndum. Frá þeim fáum við ráðgjöf og aðstoð við gerð námsefn- is en engan fjárhagsstuðning. — Hlakkarðu til að takast á við þetta verkefni? Svo sannarlega, þótt auðvitað sé í mér kvíði líka. Þetta hefur verið áhugamál mitt í mörg ár. Dvölin ytra hefur líka fært mér nýjar víddir. Þegar ég kenndi í námsbrautinni í hjúkrunarfræði í Háskólanum eða vann á sjúkrastofnunum bæði við aðhlynningu og stjórnun fann ég innri þunga starfsins skýrt, ég var t.d. bundin því að skynja fráfall sjúklings nánast sem persónulegan ósigur starfsfólksins. Biblían hefur varpað Ijósi á þessi mál fyrir mér og ég sé nú samhengi lífs og dauða með öðrum hætti og heildstæðum út frá mannskilningi Bibliunnar. Því vildi ég mega miðla til starfsfólks í heil- brigðisstéttunum. Kristilegt félag heilbrigðisstétta Hátúni 4 - 2c, s. 14327 Pósthólf 5118 - 125 Reykjavík. Sænska kirkjan notar endur- unnin pappír Sænska kirkjuþingi samþykkti nýlega að kirkjulegar stofnanir skyldu nota endurunninn pappír sem þátt í umhverfismálastefnu kirkjunnar. Frá og með næstu ára- móturn verða því öll bréf og bækl- ingar frá kirkjustjórninni í gráum lit. BORÐBÆNIR, til að leggja á borð. Kristilega skólahreyfingin hefur gefið út 7 borðbænir í stífu plasti, sem má leggja á borð til nota við máltíðir á heimilinu- í heimavistar- skólanum, eða hvar sem er. Þær gefa tækifæri til fjölbreytni í borðbæn- um, sem má ýmist lesa eða syngja, og þær gefa gestum, sem ekki kunna textann, tækifæri til að vera með. Auk þess geta einhverjir, sem eru ekki vanir að hafa borðbæn, tekið upp þá venju. Borðbænir þessar eru um leið lítill liður í fjáröflunarstarfi Skólahreyf- ingarinnar, sem hefur skólaprestinn á launum, auk annars starfsmanns. Til þess að það sé hægt, er sífellt ver- ið að leita nýrra leiða til fjáröflunar. Komið hafa fram hugmyndir um að gefa út nokkrar barnabænir á spjaldi líkt og borðbænirnar. Sú hugmynd kemur væntanlega til framkvæmda á næsta ári. Skólahreyfingin er einnig með happdrætti í gangi, 1000 miðar sem seljast á 1000 kr. stykkið og er lítill bíll í vinning. Dregið verður í happ- drættinu þegar allir miðar eru seldir, en í síðasta lagi 25. janúar 1988. Borðbænirnar eru seldar í Kirkju- húsinu, hjáæskulýðsfulltrúa kirkju- unnar og á skrifstofu KSH, Freyju- götu 27, sími 28710, en þar eru einnig veittar allar nánari upplýsingar. ffúeR/jia m/\ H-ALD/\ FR.IO V I £> ÓV/aJ/ OkKA^T p/Lo p/klt. ry/<?sr Eq/J-\ L)M\ Vl£> P'A- P'A J&TA ÓElR 'A OlCKÓR. l/‘Ð SKfjÖrUM A MOTj AdíTO KROFTUQtRf3 VÖPMUM^ peíR CjeRAjj ikjar/uORkuAFÁ. StM vtp EAfDURZjíÖLÍ) UAA Au ÐVlT~A£). ÖA-R M E7Ð ER.0 ALL.tR \UAUBiR OQ FRIÐOR R.j'k I'R ’ec veir etcKi £«\ H-vort ER SKELFj - ec R.A, 'AÆTLUJO MUO cBA þAÐ A-O fOLK SICOLi FALlATTU- A /4AAJA. VÍÐFÖRLI — 19

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.