Víðförli - 15.06.1988, Page 4
l-jósm. MBl.: BAR
að líkna og lækna
Okkur er ljóst að við þurfum hvert
á öðru að halda. Vinnufélagarnir
hafa auga hver með öðrum. Starfs-
menn hafa mismunandi djúp tengsl
við sjúklinga. Sá sem er með litla
sorgarbyrði, er aflögufær til að
hlynna að hinum til dæmis þegar
sjúklingur sem hann hefur fest sig
við er deyjandi eða dáinn. Að sýna
samstöðu og kærleika. Að taka utan
um og snerta. Að setjast niður og
drekka kaffi saman í horni. Að vera
félagi og stundum vinur. Að vera
manneskja og bróðir.
Forsenda þess að geta veitt hinum
deyjandi og aðstandendum hans ein-
hvern stuðning er að eiga vísan
stuðning sjálfur. Annars hellist yfir
okkur baráttuþreytan og uppgjöfin.
Jafngilt
Sigurður Árnason sérfræðingur í
krabbameinslækningum er í viðtali
við Víðförla um sorg og sorgarvið-
brögð starfsfólks á sjúkrahúsum.
Þessi samskipti starfsfólks og
mikið veikra eða deyjandi sjúklinga
geta verið afar flókin og andstæð-
urnar undarlegar. Þannig er ein
mikilvægasta forsenda góðra tengsla
milli starfsfólks og sjúklinga sú að
manneskjurnar á deildinni hafi
hæfileikann til þess að skynja og
skilja hvernig sjúklingnum líður, geti
horft á það sem er að gerast með
augum sjúklingsins. Þeir verða að
spyrja sig „ef ég væri þú?“ En þetta
getur nátturlega leitt til þess að skilin
milli „mín og þín“ verða óskörp.
Byrðin meiri og þar með erfiðara að
sinna sjúkling sem skyldi. Og það er
satt að segja afskaplega mikilvægt
fyrir starfsfólk að hafa stöðugt í
huga, að það er sjúklingurinn sem er
veikur! Hjúkrunarfólk og læknar
sjá stundum sjálfa sig einnig í ætt-
ingjum sjúklings, sem foreldri
sjúklings eða barn, og það eykur
næmi þeirra og getur auðveldað
þeim að sinna þörfum sjúklingsins
vel. En hættan á oftengslum getur þá
verið mikil. Mikilvægast í þessu öllu
er að reyna að taka ekki sjúklinginn
með sér heim, að geta losað sig frá.
Að reyna að dreyma sjúklinginn ekki
á nóttunni!! Það er ef til vill for-
sendan fyrir því að geta veitt sjúkl-
ingi þá umönnun sem hann þarf,
nefnilega þessa sérkennilegu blöndu
af sérþekkingu og manneskjuhætti
sem er nauðsynleg til þess að sinna
sjúklingnum vel.
Sumt starfsfólk er mjög meðvitað
um hættuna á oftengslum, bæði til
góðs og ills. Þetta getur nefnilega
leitt til þess að sjúklingi sé haldið í
ónauðsynlegri fjarlægð sem svo
getur haft mjög alvarlegar afleið-
ingar. - Finnst mér þetta vera mest
áberandi meðal lækna og hefur vond
áhrif á samband læknis og sjúklings.
Ög kannski eru einmitt þessi atriði
sem sjúklingur og ættingjar kvarta
mest yfir varðandi samskiptin við
lækna: að þeir hafi ekki tíma og þeir
skilji ekki þarfir þeirra.
Auðvitað erum við misjöfn og
sumir beita því í sjálfsvörn sinni að
blanda sér ekki inn í kvíða og sorg
aðstandenda. Þeir gefa kannski upp-
lýsingarnar hratt, og fara síðan, eða
nota fagmál sem hjálpar við-
komandi ekkert.
En auðvitað finna allir sem um-
gangast dauðvona sjúklinga fyrir
sorg. Þegar þín sorg vekur upp mína
sorg og ég þekki allar þær tilfinn-
ingar sem undir sitja og ég vil ekki fá
þær upp í hugann, þá gef ég stund-
um ekki kost á mér í hreinni sjálfs-
vörn. Ég held þó að hjúkrunarfræð-
ingar víki sér sjaldnar undan þessari
byrði, kannski af því að þær eru
konur.
— Er það ósigur lceknis að missa
sjúkling?
Mér finnst ég nú kannski vera
kominn yfir það, ég hef fylgt þeim
svo mörgum. Mesta áfallið fyrir mig
er þegar meinvörpin koma, þá dreg
ég það við mig að segja frá því fyrr
en nauðsynlega þarf, það er minn
ósigur. Ekki þegar sjúklingurinn
deyr, ef hann deyr vel. Þegar allir
viðkomandi eru undirbúnir eins og
kleift er. Það er okkar sigur, þegar
tekist hefur að mæta dauðsfallinu
eins og Hallgrimur orðar það: Kom
þú sæll, þá þú vilt. Og þó — það er
alltaf einhver ósigur frammi fyrir
dauða.
— Hvencer eru erfiðustu stund-
irnar fyrir aðstandendur?
Þær eru ekki fáar, þessar stóru
vondu stundir. Fyrst biðtíminn,
hvort æxlið sé illkynja, síðan þegar
þau fá að vita það. En svo kemur
vonin aftur, allt gengur betur. En þá
kemur holskefla þegar ljóst er að
æxlið vex hratt þrátt fyrir allar að-
gerðir. Og í okkar upplýsta samfélagi
vita menn hvers er að vænta. En
4 — VÍÐFÖRLI