Víðförli - 15.06.1988, Blaðsíða 17

Víðförli - 15.06.1988, Blaðsíða 17
Mat fræðaranna á mætingu for- eldra í guðsþjónustur á meðan á fermingarundirbúningi stendur. N % Góð 33 30 Misjöfn/dræm 56 52 Léleg 10 9 Annað 1 1 Svara ekki 9 8 109 100 Þó halda 70% fræðaranna fundi með foreldrum, oftast í upphafi fermingarundirbúningsins og næst- um 50% hvetur þá eindregið per- sónulega að mæta með börnum sínum í kirkju á meðan á fræðslunni stendur. Tengsl við skóla í könnuninni kemur í ljós að ferm- ingarfræðslan fer mun minna fram í skólum nú en áður. Þó kom á óvart að 40% fræðaranna höfðu fræðsl- una innan stundarskrár skólans. Þetta sýnir hve tengsl skólans og kirkjunnar eru ennþá mikil. Tengsl presta og skóla eru og mikil ennþá, um 40% þeirra kenna við skólana eða hafa kennt þar, yfirleitt kristin- fræði. Þó eru menn gagnrýnir á kristinfræðikennsluna, 30% telja að skólinn gegni henni illa og 34% að hann geri það „misjafnlega". Ein- ungis 20% er jákvæður. Þessi við- horf leiða þó ekki til neikvæðrar afstöðu gagnvart skólanumm sem slíkum, 29% vill auka tengslin meðan einungis 8% vill frekari að- greiningu. Hugmyndir presta um samstarf fermingarstarfa og grunnskóla út frá lögum um grunnskóla. N Þekkir ekki lögin 8 Ástandið gott eins og það er, ekki ástæða til breytinga 17 Aðgreina frekar skóla og kirkju 9 Tengja frekar skóla og kirkju 32 Annað 11 Svara ekki 32 109 % 7 16 29 10 29 99 Guði að hann hefði ekki hugsað sér að jörðin yrði sorphaugur. Óskir um úrbætur Að lokum er gerð grein fyrir óskum fermingarfræðaranna. Þar kemur fram eindreginn vilji presta í fjölmennari prestaköllum fyrir að- stoðarfólki við fermingarstörfin. Þegar er víða full þörf á aðstoð en með auknum kröfum um fræðsluna, verður þörfin enn brýnni. Því er nauðsyn að gera stórátak í þjálfum leikmanna til fermingarfræðslu- starfa innan kirkjunnar með nám- skeiðahaldi og jafnvel skipulagðri fræðslu. Stærri söfnuðirnir eru orðnir það vel fjárhagslega stæðir að þeim ætti ekki að vera skotaskuld úr því að ráða fólk til slíkra starfa. Lokaorð. Fermingarstarfanefnd og dr. Pétur Pétursson hafa með þessari könnun unnið mjög gott starf, starf sem er afrakstur margra ára umræðu um fermingarstörfin. Nú er það i höndum Prestastefnunnar i sumar að vinna úr könnuninni og ákveða áframhaldið. Gera má ráð fyrir að margt safnaðarfólk bíði spennt eftir niðurstöðum hennar ekki síður en prestarnir. Þá er bara að vona að vel til takist. Sr. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín. æskulýðsfulltrúi. Námskeið fyrir fermingar- fræðara í haust. Dagana 12.-14. sept. n.k. verður námskeið fyrir fermingarfræðara haldið í Norræna húsinu í Reykja- vík. Fermingarstarfanefnd stendur fyrir námskeiðinu ásamt Norræna húsinu, en helsti sérfræðingur Norð- manna um fermingarstörf og náms- skrárgerð, Finn Wagle, verður þar aðalleiðbeinandi. Námskeiðið er skipulagt í fram- haldi af könnun fermingarstarfa- nefndar á Prestastefnu 1988 og verður megináherslan á hinni kennslufræðilegu hlið ferminga- starfanna, hversu aðlaga megi fræðsluna aðstæðum unglingsins. Auk Finn Wagle verða fyrirlesarar frá Kennaraháskólanum þau Erla Kristjánsdóttir lektor og Sigurður Pálsson áður námsstjóri auk dr. Wolfgang Edelstein frá Max Planck stofnun í Berlin. Á námsskeiðinu kynna og ýmsir íslenskir prestar að-^ ferðir sínar við fermingarfræðslu og reynslu af gerð og notkun námsefnis þar. Skráning og upplýsingar um námskeiðið er hjá æskulýðsfulltrúa í sima 91-621500. Líf með Jesú. Ef til vill heldur þú, lesandi minn góður, að nú sé að hefjast enn ein greinin um fermingarmál. Svo er þó ekki. Að vísu er til fermingarkver með þessu nafni, „Líf með Jesú,“ en það er ekki til umfjöllunar hér. Líf með Jesú, er það gott líf? Hvernig er að vera unglingur og trúa á Jesú Krist? Þessu ætla unglingar af öllu Islandi að velta fyrir sér þegar þeir hittast eina helgi i september að Stóru-Tjarnarskóla í ■ Suður-Þing- eyjarsýslu. En þá verður haldið sér- stakt landsmót fyrir öll æskulýðs- félög af landinu. Allir unglingar 13 ára og eldri eru velkomnir á þetta mót. Boðið verður upp á rútuferðir á mótið frá Akureyri, Egilsstöðum og Reykjavík. Innritun og allar nánari upplýsingar eru í síma 91-12445 hjá Æskulýðsstarfi Þjóðkirkjunnar. Gleymið ekki Stórutjarnarmótinu þann 23. til 25. september. M.Erl. VÍÐFÖRLI — 17

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.