Víðförli - 15.06.1988, Blaðsíða 23
Guðsþjómisla á ráðstefnunni var að öllu
leyti undirbúin af þátttakendum. Hér er
verið að gera altaristöfluna sem nílkaði á
sinn hátt stef guðsþjónustunnar.
Hindranir í vegi.
Að fara á ráðstefnu og hitta fólk
frá öðrum löndum sem er að fást við
sömu mál og maður sjálfur gefur
manni yfirsýn yfir sitt eigið starf og
nokkra hugmynd um að fleiri eiga
við sömu vandamál að stríða og
maður sjálfur. Kristur er hinn sami
þó við förum ýmsar leiðir í boðun.
Það er vissulega hvatning fyrir
okkur í íslensku kirkjunni að sjá að
okkar starfi miðar áfram og að þau
verkefni sem æskulýðsstarfið hér
glímir við eru svipuð og verið er að
fást við á hinum Norðurlöndunum.
Með svona ráðstefnu brýtur maður
Þorsteinn Kristiansen œskulýðsfulltrúi á
Akureyri við fullgerða altarismyndina.
Hún sýnir unglinginn í því neikvœða og
jákvœða umhverfi sem hann lifir i.
niður múra sem eru á milli landa,
milli einstaklinga og maður færist
nær hvert öðru og getur bæði gefið
frá sér af reynslu sinni og tekið á
móti reynslu annarra. Yfirskrift
mótsins var „Grænser" — landa-
mæri, afmörkun, hindrun, mörk,
múrar eru íslensk orð sem etv. má
nota sem þýðingu. Þó svo að ein ráð-
stefna ryðji ekki öllum hindrunum
úr vegi fyrir árangri í æskulýðsstarfi
þá er tilganginum náð ef maður gerir
sér betur grein fyrir þeim hindrunum
sem eru á veginum eftir ráðstefnuna
en fyrir.
Ragnheiður Sverrisdóttir
f fréttum
Fjölbreytt lesefni í Ritröð
Guðfræðistofnunar.
Fyrsta heftið í Studia Theologica
Islandica er komið út undir ritstjórn
sr. Jónasar Gíslasonar dósents.
Kennarar guðfræðideildar leggja til
efni þessa heftis sem er bæði fjöl-
breytt og áhugavert. Efnisyfirlit er
sem hér segir:
Bjarni Sigurðsson: Jólasálmur
Lúthers
Björn Björnsson: Hjónabandið
og fjölskyldan
Einar Sigurbjörnsson: Um kristna
trúfræði
Jón Sveinbjörnsson: Lestur og rit-
skýring
Jónas Gíslason: Er þörf á endur-
skoðun íslenskrar kirkjusögu?
Kristján Búason: Nýjatesta-
mentisfræði áfangar og viðfangsefni
Þórir Kr. Þórðarson: Spurning
um hefð og frelsi
Efni næstu hefta hefur verið
ákveðið. Þar verða m.a. erindi frá
námsstefnu í sálmafræði, niður-
stöður könnunar um trúarlif og
trúarviðhorf íslendinga, sem þeir dr.
Björn Björnsson og dr. Pétur Péturs-
son gjörðu, ritgerð dr. Sigurðar
Arnar Steingrímssonar um Gamla-
testamentið o.s.frv. Skálholt annast
útgáfu og dreifingu.
Halldóra Þorvarðardóttir
kjörin prestur Fellsmúla-
prestakalls.
Kosningar hafa farið fram í Fells-
múlaprestakalli sem var auglýst laust
til umsóknar fyrir skemmstu eftir lát
sr. Hannesar Guðmundssonar sem
þar þjónaði um áratuga skeið.
Kjörin var Halldóra Þorvarðardóttir
cand.theol. Halldóra er 28 ára að
aldri og lauk guðfræðiprófi frá Há-
skóla íslands árið 1986. Hún er
dóttir hjónanna Magdalenu Thor-
oddsen og Þorvalds Kerúlfs Þor-
steinssonar sýslumanns sem nú er
látinn. Maður hennar er Sigurjón
Bjarnason skólastjóri og eiga þau
eitt barn.
Yfirskriftin var Grœnser eða iandamœri, veggir, takmörk, og mikil áhersla var lögð á
sönginn, sem bœtir ævinlega um það sem vantar á skilning orðanna.
VÍÐFÖRLI — 23