Víðförli - 15.06.1988, Page 10
þessu. Mér finnst það vissulega hafa
frjóvgað hugsun mína á mjög spenn-
andi hátt, að tvær mismunandi
menningar „togast á“ í meðvitund
minni; en auðvitað er það erfitt og
ruglandi stundum, og ég held að
maður eigi að reyna sem mest að gera
sér grein fyrir því, sem er að gerast
með mann — að það kostar sitt að
skipta um umhverfi. Ég skal viður-
kenna, að það hetur verið flóknara;
en ég hélt, þegar ég ætlaði að flytja
á sínum tíma og hugsaði þannig, að
ísland væri nú „bara annað Norður-
land.“
Það fer að sjálfsögðu eftir skap-
gerð hvers og eins, hvernig hann fer
að því að aðlaga sig nýju umhverfi;
en allt i einu mundi ég ráðleggja út-
lenskum guðfræðinema við Háskóla
íslands að gera eins og ég. Ég mundi
mæla með, að hann veldi sér íslenskt
efni í lokaritgerð sína. Maður lærir
ákaflega mikið af því að sökkva sér
vandlega niður í ákveðið efni, eins
og maður er neyddur til við vinnslu
þessa verkefni, já, maður lærir tals-
vert um íslenskan hugsunarhátt
almennt með því að kafa djúpt í af-
leiðingar hans á afmörkuðu þrengra
sviði. Þess vegna er það ansi drjúgur
og dýrmætur lærdómur sem maður
dregur af slíku verkefni.
— Hvað hefur þér þótt koma þér
best að gagni í námi þínu og starfi
hérlendis?
Það er sárafátt af því sem ég lærði
í guðfræðideildinni, sem ég hef ekki
nú þegar þurft á að halda til þess að
skilja og skilgreina betur hlutverk
trúarinnar í lífi mínu — bæði gagn-
vart sjálfum mér og öðrum.
Þrjú og hálft ár sem kirkjuvörður
í Neskirkju gáfu mér ómissandi
reynslu af kirkjulegu starfi.
í um það bil tvö ár var ég hjá
frænda konu minnar á kúa og
gróðuhúsabúinu, Reykjum í Lýt-
ingsstaðahreppi, Skagafirði, og það
veitti mér góða innsýn í aðstæður og
vandamál íslenskra sveitamanna,
sem ég hefði ekki haft, ef ég hefði
komið hingað til starfa beint úr
Reykjavik. Tónlistaráhugi minn og
sæmileg kunnátta á gítar hefur
reynst vel í starfinu, og fleira mætti
nefna.
— Gcetirðu hugsað þér að eyða
elliárunum á íslandi?
Það fer ekki milli mála, að það eru
Séra Jens Hvidtfeldt Nielsen, Búðardal.
miklir kostir við íslenskt þjóðfélag,
kostir sem þykja hreinn lúxus í öðr-
um heimshlutum. í hvaða höfuð-
borg heims annarri en Reykjavík
getur maður gleymt peningaveski
sínu í framrúðu ólæsts bíls síns, áður
en maður fer að sofa og fundið það
ósnert á sama stað daginn eftir? Það
er ekki hægt að svara þessari spurn-
ingu öðruvísi en játandi; ég gæti
vissulega hugsað mér það! Hins
vegar er náttúrlega ýmislegt annað,
sem dregur mann í aðrar áttir. Ég var
túttugu og sex ára gamall, þegar ég
flutti hingað, og því mun ég aldrei
losna við danskan kjarna í mér.
Hins vegar get ég ekki hugsað mér
betri stað en íslenska sveit til að
íhuga líf sitt sem hluta af sköpunar-
verki Guðs, íhuga tilganginn með
upphafi þess og endalokum. Náttúr-
an er svo yfirþyrmandi nálæg og
ósnortin víða hérlendis, að hún er
alltaf að minna mann mjög áþreifan-
lega á það vald, sem „hannaði“ hana
— allavega ef maður er þannig inn-
rættur.
Ég gæti því mjög vel hugsað mér
að enda ævi mína hér, en tíminn á
eftir að leiða i ljós hvort það verður
svo.
I fréttum
Ó, þú fagra spekidís.
„Það er leikur að læra, leikur sá er
mér kær.“ Trall-la-la-la-ha- ha....
meira í dag en í gær. Víst er gaman
að læra. Og í okkar nútímaþjóð-
félagi er sífellt meiri þörf fyrir
fræðslu. Þetta á líka við um kirkju-
legt starf.
í flestum kirkjum landsins mun
vera boðið upp á eitthvert starf fyrir
börnin. Oft er þetta í formi barna-
guðsþjónustu á sunnudags-
morgnum. Prestar og leikmenn sjá
um þetta starf og er það vel innt af
hendi. En allir hafa gott af að bæta
örlitlu við starfsmenntun sína og
þekkingu. Þess vegna ætlar Æsku-
lýðsstarf Þjóðkirkjunnar að bjóða
upp á námskeið í haust fyrir fólk í
barnastarfi. Helgina KLll. septem-
ber verður námskeið á Vestfjörðum,
nánar til tekið að Núpi í Dýrafirði.
16rl8. september verður námskeið í
Skálholti, þann 1. október á Aust-
fjörðum og loks 8r9. október að
Löngumýri fyrir norðan.
Á námskeiðunum verður kynnt
fræðsluefni fyrir barnastarf. Kennd
verður notkun ýmissa hjálpartækja,
svo sem hreyfimynda, glærumynda
og leikbrúða. En fyrst og fremst eru
þessi námskeið gott samfélag. Fólk
hittist, skiptist á hugmyndum og
uppörvast til nýrra átaka í lifandi
barnastarfi heima í söfnuði sínum.
Hvernig væri að skella sér á svona
námskeið? Innritun og allar nánari
upplýsingar eru í síma 91-621500.
Hringið og spyrjið um Æskulýðs-
starf þjóðkirkjunnar.
M.Erl.
Kristnum skólum fjölgar í
Ungverjalandi
Fyrir síðustu heimsstyrjöld voru
nær 5000 kirkjulegir skólar í Ung-
verjalandi og meiri hluti þeirra var
eign mótmælendakirkjanna. Árið
1948 tók kommúnistaflokkurinn
yfir alla skóla þannig að aðeins einn
skóli mótmælenda hélt áfram starfi
sínu. Nú hafa veður breyst og eru
mótmælendur nú að undirbúa
stofnun menntaskóla og fjölga
grunnskólum sem að reknir verða á
kristnum grunni.
10 — VÍÐFÖRLI