Víðförli - 15.06.1988, Qupperneq 20
Viltu eignast appelsínutré?
Valtýr situr í eldhúsinu og nartar i
appelsínu. Safinn úr appelsínunni
rennur niður hökuna á honum og
þaðan niður á eldhúsborðið, en það
gerir ekkert til, það er hægt að
þúrrka það upp seinna. Valtýr þykir
appelsínur góðar og mömmu hans
finnst gott að hann skuli borða þær.
Hún segir að það sé svo mikið af C-
vítamíni i appelsínum og allir þurfa
c-vítamín.
Allt í einu spýtir Valtýr einhverju
kröftuglega út úr sér. Hvað var þetta
eiginlega sem hann hafði fengið upp
í sig, - kjarni auðvitað, harður, lítill
hvítur kjarni. „Mamma til hvers eru
þessir leiðinlegu kjarnar í appelsín-
unum?“ kallaði hann ergilega.
Mamma hans útskýrði fyrir honum,
að kjarnarnir væru til þess að app-
elsínutré gæti orðið til og þar með
fleiri appelsínur. „Getur komið nýtt
appelsínutré af þessum kjarna?“
spurði Valtýr undrandi. Við getum
reynt að gróðursetja kjarnann, það
gæti að minnsta kosti sprottið upp
lítil planta, sagði mamma.
Valtýr flýtti sér nú að klára app-
elsínuna og tíndi úr alla steinana sem
hann fann. Hann fann fimm litla
steina sem hann bað mömmu sína að
hjálpa sér að gróðursetja. Mamma
kom með gamlan blómapott sem
hún fann inni í skáp og þau hjálpuð-
ust að við að fylla hann af mold. Nú
skaltu stínga kjörnunum í moldina,
og svo verður þú að muna að vökva
af og til. Valtýr tók varlega utan um
pottinn með báðum höndum og bar
hann inn í herbergið sitt. Hann lét
pottinn á borðið við gluggann, því
hann vissi að blóm þurfa birtu. Síð-
an settist hann á stól og beið þess að
plantan kæmi í ljós.
En ekkert gerðist þennan dag og
ekkert þann næsta. Loksins, þegar
Valtýr fannst liðnir margir dagar, sá
hann allt í einu lítinn grænan depil í
svartri moldinni og bráðlega komu
fleiri grænir deplar í ljós og innan
tíðar átti Valtýr fimm fallegar litlar
appelsínuplöntur í pottinum sínum.
„Hvernig getur vaxið heil planta
af einu litlu fræi“, spurði Valtýr.
„Það er nú alveg furðulegt“, sagði
mamma hans. „En allt sem Guð
hefur skapað hér á jörðinni er svo
stórkostlegt, og líka það að falleg
blóm og stór tré skuli geta vaxið upp
af litlum fræjum sem sett eru í jörð-
ina. Hugsaðu þér bara hvað Guð
hefur gert jörðina okkar góða“. —
„ Já, og mennirnir eru nú líka góðir, “
sagði Valtýr. „Þú hefur sagt að við
höfum líka verið lítil fræ einu sinni.
Svakalega er Guð flínkur!“
20 — VÍÐFÖRLI