Víðförli - 15.10.1992, Side 13

Víðförli - 15.10.1992, Side 13
MYLSNA Sáttfýsi og þolinmæði Maður þröngvar ekki hugmyndum sínum og skoðunum upp á fólk, eða lætur það fram- kvæma eftir sínum eigin geðþótta. Það þarf að vera hægt að sýna vissan sveigjanleika og hafa þolinmæði til að bíða réttra tækifæra. Það er ann- að að geta beðið með hlutina en láta þá niður falla. Sóknarnefndir eru stundum ekki á einu máli um umfang og nauðsyn framkvæntda eða verk- lag við þær. Það þarf að sætta slík innbyrðis sjón- armið og hvetja til góðra verka. Það er líka nauð- synlegt að koma til móts við allan áhuga sern vaknar og nýta þau tækifæri sem starfið felur í sér til að veita jákvæðu fólki byr. Aróöursstarf Þetta hefur fyrst og fremst verið áróðursstarf. Ég hef varið langmestum tíma til þess að tala við fólk og reyna að vekja áhuga þess og metnað til að gera görðunum til góða og bæta umhirðu þeirra. Umsjónarmaður suður í Reykjavík fær litlu kom- ið til leiðar án áhuga og samvinnu heimafólksins. Auglýsingarnar hafa skilað miklu, þegar um framkvæmdir er að ræða. Þær vekja athygli á því hvað til stendur. Frestur er allrúmur fyrir athuga- sentdir, og þar sent ég hef alltaf auglýst undir nafni, þá hefur fólk getað snúið sér beint til mín. Ég hef því getað talað milliliðalaust við mjög marga og skipst á upplýsingum og skoðunum, og oft hafa sh'k samtöl eytt tortryggni og rnis- skilningi. Auglýsingantar lntfa hka orðið til að vekja áliuga og metnað í sóknum um að vera ekki eftirbátar nágrannanna og þannig valdið nokkurs konar keðjuverkun. Kirkjuafmæli og tylhdagar verða hka oft til að að vekja áhuga á viðgerðum og fegrun. Betri tekjur ýta vi2> áhuganum Garðamir hafa hka fegnið betri tekjur í seinni hð. Fólk fær áhuga þegar það sér fram á að geta fram- kværnt eitthvað og sóknarmenn greiða sín kirkju- garðsgjöld með glöðu geði, ef þeir sjá að þeim er vel og skynsamlega varið. Áður iýrr var fjárskortur ein meginistæðan iýrir sinnuleysinu um garðana. Það var einfaldlega ekki hægt að gera neitt, svo að það tók því ekki að hafa áhugann. Viökvæmnismál Maður þarf að fá á sig vissan skráp í þessu starfi. Það er viðkvæmt mál fýrir fólki að hrófla við kirkjugörðum. Garðarnir eru helgir reitir og nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir geta verkað á suma sem vanhelgun. Um- sjónarmaðurinn verð- ur óneitanlega nokk- urs konar höggdeyfir í klögumálum, ef mis- tök verða við frarn- kvæmdir. Samskiptin við fólk hafa verið fjölþætt og nær alltaf ánægjuleg. Hitt eru undantekningar sem gleymast og víkja fljótt fyrir því gleðilega og jákvæða. Mannbætandi háskóli Ég hefði alls ekki viljað missa af þessu starfi. Ég hef mikið lært og kynnst rniklum fjölda afbragðs- fólks, úti um allt land og eins hef ég verið ntjög lánsamur með mína nánustu samstarfsmenn á biskupsstóli, í skipulagsnefnd kirkjugarða og stjóm Kirkjugarðasjóðs. Þeir hafa allir verið góðir, en ég lialla ekki á neinn þó að ég nefni Bjarna Ólafsson. Hann var í skipulagsnefndinni þegar ég kom til starfa og er þar enn þegar ég hætti. Stundum kalla ég þetta í gamni háskólanámið mitt. Ég tel mig vera töluvert betri mann eftir að hafa gengið í þann háskóla í nærri 30 ár. Áður fyrr var fjárskortur ein meginástæðan fyrir sinnu- leysinu um garðana. Það var einfaldlega ekki hægt að gera neitt, svo að það tók því ekki að hafa ánugann. Jesús sagði við þá: „Hvern segið þið mig vera?" Þér svöruðu: „Þú ert eskatólógísk birting frumor- sakar tilveru okkar, skynmyndin sem gerir okkur fært að skilja hinstu merkingu gagnkvæmra tengsla okkar." Og Jesús sagði: „Ha?" Skrifað á vegg St.John's háskólans, New York. Forðist jólaörtröðina - farið i kirkju á sunnudögum! Á Hlemmi: Hvar verður þú á dómsdag? Ætli ég verði ekki ennþá hér að bíða eftir leið tólf. Auglýsing i bæjarblaðinu: „Fundur í Kristniboðsfélaginu i kvöld klukkan 20. Mætið báðir. Stjórnin." Frétt um basar hjá kvenfélagi kirkjunnar: „Basarinn tókst í alla staði mjög vel. Konurnar komu með hluti heiman frá sér sem þær gátu án verið og gáfu á basarinn. Margar komu með eiginmenn sína." Kaþólskur prestur, lúterskur prestur og gyðin- garabbí fengu allir sömu spurninguna: „Hvenær hefst lífið?" „Lífið hefst við getnað," sagði kaþólski presturinn. „Lífið hefst við fæðingu," sagði lúterski presturinn. „Lífið," sagði rabbíinn, „hefst þegar börnin eru farin að heiman og hundurinn er dauður." Hryðjuverkamaður kom til himna og hitti Lykla- Pétur. Pétur leit á lífsskrá mannssin:„Látum okkur sjá...sprengjur....sprengjutilræði...vopna- smyggl....sprengjur....nei, þú átt ekki að fara hérna inn." „Það veit ég vel en þið hafið tíu mínútur til að koma ykkur út." Undir vel hlöðnum vegg .Aðalsteinn ásamt eftirmanni sínum, Guðmundi Rafni Sigurðssyni VÍÐFÖRLI Október 1992 13

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.