Víðförli - 15.10.1992, Síða 20
UNDIR SÓLINNI
EVROPURAIÐ VTEL
AU KA EFTIRLIT MEÐ
SERTRUARHOPUM
Hvernig er hœgt að setja reglnr,
sem hindra að sértrúarhópar nái að
skaða fólk í nafni trúar, án þess að
skerða trúfrelsi? Evrópuráðið, sem
ísland á aðild að, glímdi við þessa
spurningu snemma í ár og ákvað að
hvetja aðildarlönd til að hafa eftirlit
með trúhópum og láta skrá þá.
Árið 1978 fundust lík eitt þúsund manns sem
höfðu fyrirfarið sér í Gíneu. Þetta voru meðlimir
trúflokks sem kallaðist Musteri fólksins. Leiðtogi
flokksins hvatti eða neyddi alla meðlimina til
sjálfsvígs, hugsanlega vegna þess að bandarísk
stjómvöld höfðu hafið rannsókn á starfsemi hans.
Árið 1986 var kóreiskur klerkur að nafni Moon,
leiðtogi svokallaðra Moonista, dæmdur fyrir
skattsvik og settur í fangelsi. Þetta em aðeins tvö
dæmi af mörgum um tníflokka sem hafa náð
valdi á fólki, grætt peninga og misnotað vald sitt.
Sömu trúflokkarnir kærðir víba
Fyrr á þessu ári var efnt til umræðna í
Evrópuráðinu um trúfrelsi í Evrópu. Tilefnið
var meðal annars kæmr sem ráðinu höfðu borist
vegna trúflokka sem vom sagðir tæla fólk til sín á
fölskum forsendum og beita þá andlegri og jafn-
vel líkamlegri kúgun. Oft voru sömu trúar-
hóparnir kærðir í fleiri en einu landi og flestar
kæmrnar fjölluðu um meinta fjárplógsstarfssemi
og vafasamar aðferðir við öflun nýliða. Þeir sem
hafa orðið illa fyrir barðinu á slíkum flokkum vilja
að Evópuráðið banni starfsemi þeirra. Það er hins
vegar ekki auðvelt þar sem með því væri stórlega
vegið að trúfrelsi í Evrópu og mannréttindalög
Evrópuráðsins brotin.
Auka eftirlit meö trúhópum
Þingmenn Evrópuráðsins voru sammála um að
auka þyrfti eftirlit með trúfélögum og
sértrúarhópum í Evrópu og koma á
skráningarskyldu. Við skráningu bæri hverjum
hóp að gera grein fyrir markmiðum og starfs-
aðferðum. Einnig var sú tillaga rædd að koma á
eftirlitsstofnun sem gæti fylgst með starfsemi ein-
stakra sértrúarhópa, safnað upplýsingum og
dreift þeim til aðildarlanda ráðsins. Að fengnum
slíkum upplýsingum væri hægt að dæma um
hvort einhverjir þættir starfsins brytu í bága við
ríkjandi lög.
Meirihluti fómarlamba sértrúarhópa er ungt fólk.
Ástæðumíir em margar. Sumt fólk sér þama leið til
að losna undan þrýstingi og kröfum þjóðfélagsins.
Aðrir heillast af framandi yfirbragði
trúarflokka sem eiga rætur í annarri
menningu. Niðurstaða Evrópuráðsins
var því að leggja bæri ríka áherslu á
að gera allar slíkar upplýsingar um
sértrúarhópa aðgengilegar fyrir ungt
fólk.
Formælendur slíkrar eftirlitsnefn-
dar telja að almenningur græði á
þessu fyrirkomulagi og einnig þeir trúhópar
sem ekkert hafi að fela. Þeir vonast Hka til að
það geti sett hömlur á þá sértrúarhópa sem iflt
orð fer af.
Oft voru sömu trúarhó-
parnir kærðir í fleiri en
einu landi og flestar fjöl-
luðu kærurnar um meinta
fjórplógsstarfssemi og
vafasamar aðferðir við
öflun nýliða.
Yfirbragð trúarhópa sem eiga sér rætur í framandi
menningu heillar ungt fólk sem sér þama leið til að losna
undan kvöðum samfélagsins.
Fjöldagiftingar tíðkast hjá Moonistum þar sem hjónaböndin
em skipulögð af safnaðarleiðtogum. Margir hafa aldrei séð
maka sinn áður en að giftingu kemur.
20
Október 1 992 VÍÐFÖRL