Bæjarins besta - 22.12.1999, Side 3
Verktakafyrirtækið Jón og Magnús hf. hættir starfsemi á ísafirði
Sameinast Hafelli ehf. í Reykja-
vík og tæki og fólk flytjast suður
Verktakafyrirtækið Jón og
Magnús hf. á Isafirði hefur
hætt starfsemi sinni hér vestra
og verið sameinað verktaka-
fyrirtækinu Háfelli ehf. í
Reykjavík. Fyrirtækið Jón og
Magnús hefur annast fjölda
verka á Vestfjörðum síðustu
fimmtán árin, bæði við vega-
framkvæmdir og aðra jarð-
vinnu.
„Maður verður að vera þar
sem vinnan er“, sagði Jón Vet-
urliðason verktaki í samtali
við blaðið, en hann er í þann
veginn að flytjast suður ásamt
fjölskyldu sinni og mun starfa
hjá Háfelli ehf. og vera þar
hluthafi. Þeir JónVeturliðason
og Magnús Halldórsson
stofnuðu verktakafyrirtækið
Jón og Magnús hf. árið 1984.
Magnús lést af slysförum fyrir
allmörgum árum og hefur Jón
veitt því forstöðu síðan. Jón
segir að lengst af hefði verið
nóg að gera en nú væri ástand-
ið dapurt. Síðasta árið eða svo
hefði verið lítil vinna og lítið
framundan sem vitað væri um.
Vikan
framundan
22. desember
Þennan dag árið 1897 var
stundaklukka sett upp í turni
Dómkirkjunnar í Reykjavík.
Klukkan, sem enn telur
stundirnar fyrir borgarbúa,
var gjöf frá Thomsen
kaupmanni.
23. desember
Samantekt Morrans á ísafírði og bókun bæjarstjórnar
Harmur bæjarfulltruanna
Morrinn, atvinnuleikhús
ungs fólks sem starfaði í ísa-
fjarðarbæ á líðandi ári, tók að
starfi loknu saman skýrslu,
þar sem greint er frá gangi
mála frá upphafi til enda. Slíkt
verður varla talið óeðlilegt,
allra síst þegar um er að ræða
starfsemi sem nýtur tjárhags-
stuðnings frá bæjarfélaginu.
Samantekt þessari „er ætlað
að vera til leiðbeiningar fyrir
þá sem reka atvinnuleikhúsið
næst, fyrir þá sem vilja feta í
fótspor Isafjarðarbæjar og þá
sem hafa gaman af lestri" eins
og segir í henni sjálfri um
tilgang hennar. Hér er um op-
inbert plagg að ræða og voru
kaflarúrþvíbirtirhéríblaðinu
í byrjun desember, að lang-
mestu leyti orðréttir og innan
tilvitnunarmerkja en að mjög
litlu leyti endursagðir.
Síðan gerist það á fundi
bæjarstjórnar Isafjarðarbæjar
16. desember að Birna Lárus-
dóttir lagði fram svohljóðandi
tillögu að bókun, og var hún
samþykkt með sex atkvæðum
gegn engu en þrír bæjarfull-
trúar sátu hjá:
„Bæjarstjórn harmar þá
ómaklegu gagnrýni sem
skóla- og menningarfulltrúi
og fulltrúar í fræðslunefnd
urðu fyrir í blaðaskrifum
vegna leikhópsins Morrans
fyrir skemmstu. Bæjarstjórn
telurframtak Morrans í menn-
i ngarmálum lofsvert og bendir
á, að framangreindir aðilar
hafa allir lagt hönd á plóginn
til að sem best tækist til við
framkvæmd verkefnisins."
Hér er engum öðrum blaða-
skrifum til að dreifa en því
sem birt var hér í blaðinu úr
skýrslu Morrans. Ekki var í
blaðinu til að dreifa neinni
gagnrýni á téða aðila nema
því sem fram kemur orðrétt í
skýrslu Morrans. í fyrirsögn
blaðsins var, eins og venjulega
er gert, dregið saman í eina
setningu eitt af því sem at-
hyglisverðast má telja í sam-
antektinni.
Ef einhverjir telja um ómak-
lega gagnrýni að ræða, þá er
rétt að þeir snúi sér gegn
skýrslunni og höfundum
hennar en ekki „blaðaskrif-
um“. I hliðstæðum tilvikum
er stundum talað um bakara
og smið. Svo virðist, sem bæj-
arfulltrúar þeir sem sam-
þykktu ofangreinda bókun
hafi annað hvort ekki lesið
þau „blaðaskrif" sem þeir eru
að harma eða kunni ekki að
gera greinarmun á „blaða-
skrifum“ og tilvitnunun í op-
inbert plagg. Nema hvort
tveggja sé. _ Ritstj
Nýtt fjölbýlishús við Sundstræti
Fyrstu íbúð-
irnar aflientar
Fyrstu tvær íbúðirnar í
húsinu að Sundstræti 34 á
Isafirði, þar sem eitt sinn var
HN-búðin og sitthvað fleira,
voru afhentar kaupendum
fyrir síðustu helgi. Ein íbúð
enn er tilbúin og verður af-
hent fljótlega en aðrar eru
tilbúnar undir tréverk.
Fyrir rúmu ári keypli
Þórður Júlíusson á ísafirði
húsið af Básafelli hf. Hann
stofnaði síðan fyrirtækið
Norðurtangann ehl'. ásamt
Hjalta syni sfnum og Magn-
úsi Geir Helgasyni í þeim
tilgangi að breyta húsinu í
fjölbýlishús nreð níu fbúð-
um á þremur hæðum. Fyr-
irtæki Magnúsar, Trésmiðj-
an ehf. í Hnífsdal, hefur hafl
verkið með höndum.
Hjónin Kristín Hálfdánsdóttir og Gunnar Þórðarson fengu íbúð sína afhenta um helgina.
Hér eru þau ásamt Magnúsi Geir Helgasyni (tv)og Þórði Júlíussyni en þeir hafa með fram-
kvœmdir við húsið að gera.
ísafjörður
Friðarganga á
Þoriáksmessu
A Þorláksmessu verður
farið í friðargöngu á ísa-
firði. Gengið verður með
kyndla og friðarljós frá
Isafjarðarkirkju niður á
Silfurtorg.
Þeir sem vilja taka þátt í
göngunni eru hvattir til að
mæta að kirkjunni laust
fyrirkl. 17. Þarfástkyndl-
ar leigðir fyrir hundrað
krónur. A Silfurtorgi ver-
ður sérstök friðardagskrá
með ávörpum, tónlist og
söng.
Að friðargöngunni
standa Isafjarðarkirkja og
áhugafólk unt friðarmál í
Isafjarðarbæ. Bæjarbúar
og aðrir eru hvattir til að
slást í hópinn og sýna mik-
ilvægu málefni samstöðu.
Bóksafan fyrir jófin
Gísfi og Jón
Páll enn efstir
Að sögn Jónasar Gunn- lag ísfirðinga gefur út hafi
laugssonar í Bókhlöðunni á verið prentuð í óvenju stóru
ísafirðivoruNýjarvestfirsk- upplagi er farið að ganga
ar þjóðsögur Gísla Hjartar- verulega á það. Geir Guð-
sonar og bók Jóns Páls Hall- mundsson í Bolungarvík er
dórssonar, Frá línuveiðum umboðsmaður Sögufélags-
til togveiða, enn sem áður ins og hefur hann annast
söluhæstu bækurnar í versl- beina sölu til félagsmanna,
uninni sl. mánudag. Þar á aukþesssemstórarpantanir
eftir voru komnar Slóð fiðr- hafa verið afgreiddar til
ildanna eftir Olaf Jóhann Ól- verslana í Reykjavík og víð-
afsson og Útkall Óttars ar. Jónas Gunnlaugsson í
Sveinssonar ásamt ævisögu Bókhlöðunni kvaðst vonast
Steingríms Hermannssonar. til að hafa tryggt sér nægi-
Enda þótt bók Jóns Páls legamikiðafbókinni tilþess
Halldórssonar sem Sögufé- aðþaðdygðiframaðjólum.
Sýslumaðurinn
á ísafirði
Brennur og flugeldar
Þeir sem hyggjast selja flugelda um ára-
mótin, eöa hlaða bálkesti til þess að kveikja
í þeim á gamlárskvöld eða á þrettándanum,
skulu sækja um leyfl til þess fyrir26. desem-
ber nk. Fyrir hverri brennu skal vera fulltíða
ábyrgðarmaður. Öllum þeim sem ætla að
standa fyrir brennu, er bent á að nálgast
reglur um bálkesti og brennur sem liggja
frammi á lögreglustöðinni á ísafirði.
Nánari upplýsingar veitir Önundur Jónsson
yfirlögregluþjónn í síma 456 4100.
ísaflrði 20. desember 1999,
Sýslumaðurinn á ísafirði,
Ólafur Helgi Kjartansson.
Þennan dag árið 1993 fékk
sjö manna tjölskylda á Sel-
tjarnarnesi stærsta vinning-
inn til þess tíma f Lottói
íslenskrar getspár, 17,9
milljónir króna. Tölurnar
voru 18, 23, 25, 26, 31.
24. desember
Þennan dag árið 1934 hófst
lestur jólakveðja í Ríkisút-
varpinu, kl. 20:30. Síðan
hefur þessi dagskrárliður
verið árviss, síðustu ár á
Þorláksmessu.
25. desember
Þennan dag árið 1986 sökk
flutningaskipið Suðurland
milli Islands og Noregs. Sex
skipverjar fórust en fimm
var bjargað. Að kvöldi sama
dags fórst breska tankskipið
Syneta við Skrúð í mynni
Fáskrúðsfjarðar. Allir tólf
skipverjarnir drukknuðu.
26. desember
Þennan dag árið 1877 varð
messufall í Dómkirkjunni í
Reykjavík vegna kulda.
Ofnar voru settir í kirkjuna
tveimur árum síðar eða 14.
september 1879.
27. desember
Þennan dag árið 1988 var
fyrsta bílnúmerið í fast-
númerakerfi, HP 741, sett á
bifreið Halldórs Ásgríms-
sonar, þáverandi dómsmála-
ráðherra. Nýja bílnúmera-
kerfið tók gildi í ársbyrjun
1989.
28. desember
Þennan dag árið 1965 reis
eyja úr hafi skammt frá
Surtsey en hvarf í október
1966. Eyjan var nefnd Jólnir
vega þess að goshrinan hófst
á annan í jólum.
29. desember
Þennan dag árið 1985 var
brjóstmynd af Gunnari
Thoroddsen afhjúpuð við
Fríkirkjuveg í Reykjavík,
þegar 75 ár voru liðin frá
fæðingu hans.
30. desember
Þennan dag árið 1935 fórust
níu manns er eldur kom upp
á jólatrésskemmtun í sam-
komuhúsi ungmennafélags-
ins í Keflavík. Þetta var
mesta manntjón í eldsvoða á
síðari árum.
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999
3