Bæjarins besta - 22.12.1999, Síða 9
Lilja Rafney Magnúsdóttir, verkakona Suðureyri
„ Vom nðennþú búiþijóskii
off seiffla í Vestíirðinffum "
Þegar ég lít yfir liðið ár er
mér efst í huga stofnun nýs
flokks, Vinstri hreyfingar-
innar - græns framboðs, og
að hafa verið þátttakandi í
stofnun hans og í framboði
fyrirhann. Það varskemmti-
leg og dýrmæt lífsreynsla.
Mérfmnstárið 1999 hafa
verið gott á ýmsan hátt. Þá
varð þessi mikla uppstokk-
un í íslensku flokkakerfi,
sem ég tel að styrki lýðræð-
islegar umræður og
ákvarðanir. Það er álit mitt
að hún undirstriki að hug-
sjónir eiga rétt á sér og eru
mikils virði. Fleiri skoðanir
og sjónarmið fá að koma
fram.
Hér á Vestfjörðum hafa
verið miklir umbrotatímar
lfkt og víðar á landsbyggð-
inni. Það veldur áhyggjum
hvernig landsbyggðinni muni
ganga að lifa þessar hremm-
ingar af. Ég hygg að það ráðist
á næstu misserum hvort takast
muni að stöðva hrun margra
byggða og snúa vörn í sókn.
Þar verða allir að leggjast á
eitt, íbúar, sveitarstjórnir og
ríki. Ég tók sæti í stjórn
Byggðastofnunar í vor og þar
er vissulega verið að gera
marga góða hluti. Smá-
skammtalækningar duga þó
skammt og nauðsyn er á meira
fjármagni, ásamt uppstokkun
í kvótakerfinu og nteiri
byggðatengdum, óframselj-
anlegum kvóta. Erfiðleikar í
sauðfjárrækteru líkaáhyggju-
efni og þar verður mikið að
korna til ef heilu sveitirnar
eiga ekki að fara í auðn.
Sem betur fer eru til hér á
Vestfjörðum öflug fyrirtæki
með góðar hugmyndir. Það er
hugvitið sem á eftir að skapa
hér fleiri störf. Við fengurn
hingað vestur Islenska rniðlun
sem hefur skapað um 50 störf.
Það er rnjög ánægjulegt og
sýnir að með nýrri tækni geta
slík fyrirtæki verið á hvaða
stað sem er. I því felast vissu-
lega tækifæri fyrir lands-
byggðina.
A móti korna miklar
áhyggjur af öllum þeim störf-
um í veiðunt og vinnslu sem
tapast hafa hér á svæðinu. Ég
vona að ennþá búi þrjóska og
seigla fVestfirðingum og þeirn
takist að ná aftur til sín sent
mestu af aflaheimildum - og
nýti þær í uppbyggingu heirna
fyrir en ekki í brask í kaup-
höllum.
Það sem mér finnst standa
upp úr á erlendum vettvangi
er allur þessi tilgangslausi
stríðsrekstur víða um heim.
Þar eru hörmungamar í fyrrum
Júgóslavfu ofarlega í huga og
sú skömm að Islendingar skuli
með aðild sinni að NATO hafa
verið þar óbeinir þátttakendur.
Samt held ég að andstaðan
við að bregðast við ofbeldi
með ofbeldi sé að aukast í
veröldinni og skynsemin eigi
eftir að taka völdin.
Mér er einnig ofarlega í
huga hversu vægi umhverfis-
rnála hefur aukist í heiminum.
Það er ánægjulegt hversu virk-
ir Islendingar ætla að verða í
þeirri untræðu og þar eru mál-
efni Fljótsdalsvirkjunar og
verndun hálendisins auðvitað
efst á baugi. Ég hef trú á því
að sú harðvítuga krafa sem
nú er komin fram um að nátt-
úruperlum sé ekki fórnað fyrir
skammsýni eða stundargróða
eigi eftir að eflast mjög á nýrri
öld. Osnortin náttúra og víð-
erni eiga eftir að verða marg-
falt verðmætari en mengandi
stóriðja. Atvinnutækifærin
munu liggja annars staðar
en í álverum.
Fyrir mig persónulega
hefur þetta ár verið við-
burðaríkt og skemmtilegt,
margt að gerast í mínu lífi
og ekki yfir neinu að kvarta
í því efni. Ég á mér þá ósk
þegar dregur að upphafi
nýrrar aldar, að heimur
batnandi fari. Ég á mér þá
ósk að væntanlegir kjara-
samningar komi láglauna-
fólki til góða. Ég á mér þá
ósk að unga fólkið okkar
nýti hugvit sitt og þekkingu
til að byggja upp lands-
byggðina á þeirri nýju öld
sem brátt gengur í garð.
Síðan vil ég óska öllum
gleðilegrajóla, árs og friðar.
Guðrún Jónsdóttir, söngkona á ísafirði
Úfshmningjun felst íokkursjnlfum
Það sem hefur valdið mér
mestum ótta á árinu er at-
vinnuástandið og lokun fisk-
vinnslufyrirtækja. Og þá ekki
aðeins hér vestra, heldureinn-
ig annars staðar á landinu. En
sem betur fer hefur ýmislegt
komið í staðinn og það eru
auðvitað breyttir tímar og fólk
vill síður vinna fiskvinnslu-
störf ef það hefur val.
En það er margt ánægjulegt
sem hefur gerst á árinu sem
auðgar mannlífið. Menningar-
lífið hér hefur blómstrað sem
aldrei fyrr. Þarmá nefnaflutn-
ing Litla leikklúbbsins og
Tónlistarskóla Isafjarðar á
söngleiknum Oliver! þar sem
ungir listamenn stóðu sig með
ágætum. Vígsla tónleikasalar
í haust var einstaklega
ánægjulegur viðburður. Það
er gaman að upplifa þá breyt-
ingu sent orðið hefur á Tón-
listarskóla Isafjarðar nteð
gjörbreyttu og glæsilegu hús-
næði og þar er tónleikasalur-
inn punkturinn yfir i-ið. Fyrir
utan það að vera mjög fallegur
hefur hann reynst vel og
hljómburðurinn er rnjög góð-
ur. Við getum borið höfuðið
hátt og verið stolt af.
Það sem stendur upp úr hjá
mér persónulega er flutningur
á oratoríunni Messías eftir
Hándel í ísafjarðarkirkju á
föstudaginn langa. Það var
einr. glæsilegasti menningar-
viðburðurinn á árinu og án
efa metnaðarfyllsti flutningur
sem ráðist hefur verið í hér á
Isafirði.
Þegar ég lít til baka hefur
árið verið mér gott. Ég er svo
lánsönt að hafa fengið að eign-
ast yndislega telpu. Slíkt
breytir auðvitað öllu manns
lífi og allt hefurannan forgang
í dag. Ég á reyndar von á öðru
barni í marslok og á þá ósk
heitasta að það gangi allt vel,
en það er nokkuð sem við
getum vissulega ekki gengið
út frá sem sjálfsögðum hlut.
Ég er mjög bjartsýn á
framtíðina. Ég hef trú á því að
atvinnulífið fari að færast upp
á við hér á Vestljörðum. Við
verðurn auðvitað að ná botnin-
um til þess að geta tekið stefn-
una upp á ný. Ég trúi því að
botninum sé náð og blómlegir
tímar séu framundan.
Ég er ákaflega ánægð hér á
Isafirði og get ekki hugsað
mér að fara héðan. Ég vildi
óska þess að fleiri höfuðborg-
arbúar kynntust frelsinu sem
fylgir því að búa í litlu sarnfé-
lagi, því að lífshamingjan felst
ekki í stórmörkuðum, fleiri
leikhúsum eða kaffihúsum,
heldur felst hún í okkur
sjálfunt.
Að lokunt óska ég Vestfirð-
ingum árs og friðar og það er
ósk mín og von, að nýtt ár og
ný öld megi færa okkur ham-
ingju og frið.
i S'R:
Nœsta blað
kemur út
miðviku-
daginn
5. janúar
\ " ■»> t r;i f ‘ ’J
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jóla- og nyárshátið og þökkum árið sem er að líða.
Sparisjóður
Þingeyrarhrepps
baðstofan
Silfurgötu 6 - ísafirði
Sparisjóður
Súðavíkur
ísfang hf.
Suðurgötu - Isafirði
RdFVERK ehf
VERSLUN • RAFVERKTAKl • RAFMAGNSVERKSTÆÐI
Skólastíg 4 • Bolungarvík • S: 456 7373
RÖRtæ
KNI EHI
ú
Sindragötu 12b - Isafirði
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999
9