Bæjarins besta - 22.12.1999, Side 21
Halldór Halldórsson bæjarstjóri ísafjardarbæjar skrifar
Fjármál og byggðamál
Snjóflóðavarnar-
garður í Selja-
landshlíð
Á 69. bæjarstjórnarfundi
9. desember sl. var sam-
þykkt að fresta fram-
kvæmdum við snjóflóða-
varnargarð í Seljalandshlíð
um eitt ár. Ástæða frestunar-
innar er sú, að við gerð fjár-
hagsáætlunar hefur verið
leitast við að lækka eða taka
út liði sem ekki eru taldir
hafa veruleg áhrif á þjón-
ustu sveitarfélagsins. Þá
hafa skoðanir verið skiptar
um þetta rnikla ntannvirki
og hafa margir lýst þeirri
skoðun sinni, að hægt hljóti
að vera að minnka umfang
þess án þess að skerða varn-
argildið.
Leitað hefur verið eftir
upplýsingum frá Ofan-
flóðasjóði og Veðurstofu fs-
lands um það hvort hugsan-
lega hafi kontið frarn nýjar
forsendur við hönnun garð-
sins sem gætu breytt unt-
fangi hans og kostnaði við
framkvæmdina. Ekki hafa
borist skýr svör um þetta
atriði en bent á að einhverjar
breytingar sé hægt að gera
sem hafí í för með sér ntinna
umfang garðsins og lækki
tilkostnað við gerð hans.
Frestun unt eitt ár hefur
þann kost í för með sér að
hægt verður að yfirfara
hönnunarforsendur garðs-
ins enn betur. Þá má benda
á að enn hefur umhverfís-
ráðherra ekki sett reglugerð
urn svokallað hættumat í
byggð. Hættumat þetta mun
gera ákvarðanatöku við
snjóflóðavarnir auðveldari
því þá eru allar reglur orðnar
eins skýrar og hægt er. í
dag er stuðst við bráða-
birgðareglugerð varðandi
hættumatið sjálft.
Fjárhagsáætlun
2000, fjármál
ísafjarðarbæjar
Fimmtudaginn 16. desem-
ber sl. var síðari umræða um
fjárhagsáætlun Isafjarðarbæj-
ar fyrir næsta ár. Sé vitnað í
minni elstu manna er þetta í
fyrsta sinn sem fjárhagsáætl-
unin er afgreidd fyrir áramót í
þessu sveitarfélagi. Því að
samþykkja fjárhagsáætlun
fyrir árarnót fylgir ótvíræður
kostur. Starfsmenn hafa þá frá
fyrsta degi rekstrarársins þær
heimildir sent vinna skal eftir.
Það eykur skilvirkni kerfísins
og bætir stjórnun.
Mörkuð var skýr stefna með
gerð þessarar fjárhagsáætlun-
ar um aðgerðir á næsta ári
sent draga skulu úr útgjalda-
þenslu. Sveitarfélagið verður
að aðlaga sig sífellt breyttum
aðstæðum með sinn rekstur
til að vera fært um að veita
alla þá almennu lögbundnu
þjónustu sem krafist er. Með
því að frantfylgja þessari
stefnu vonast undirritaður til
að takist að draga úr þeirri
skuldauakningu sem sveitar-
félagið hefur orðið fyrir frá
sameiningu 1996.
Ein ástæðan fyrir skulda-
aukningu er sú að tekjur sveit-
arfélaga hafa verið að lækka
vegna misræmis á tekjuskipl-
ingu ríkis og sveitarfélaga.
Einnig að fólki hefur fækkað
og lækka þá útsvarstekjur. Þá
erísafjarðarbærdreift sveitar-
félag á stóru svæði sem þarf
að halda uppi almennings-
samgöngunt, mörgum skólum
og ýmissi þjónustu sem ekki
ertekið tillittil við tekjuskipt-
ingu.
Sambærilegt sveitarfélag að
mannfjölda sem hefur alla
sína íbúa á einum og sama
staðnum hefur sörnu tekju-
skiptingu og Isafjarðarbær.
Þetta sambærilega sveitarfé-
lag þarf e.t.v. aðeins að reka
einn skóla, eina sundlaug, eitt
íþróttahús, eitt áhaldahús og
eina höfn. Við erum með þetta
nánast allt fjórfalt en samt
sömu tekjur. Þetta er atriði
sem þarf virkilega að endur-
skoða af hálfu ríkisins í sam-
starfi við sveitarfélögin.
Ríkisstjórnin ákvað f síð-
ustu viku að veita viðbótar-
fjármagni til sveitarfélaganna
í landinu, kr. 700 milljónum,
til að koma til móts við kröfur
sveitarfélaganna unt leiðrétt-
ingu á tekjum. Þetta mun fara
í gegnum Jöfnunarsjóð sveit-
arfélaga og skiptast í þjón-
ustuframlag og svokallað
fólksfækkunarframlag sem
fer til sveitarfélaga sem misst
hafa frá sér íbúa, orðið fyrir
tekjulækkun af þeint sökum
en ekki geta dregið úr útgjöld-
unt.
Undirritaður sá haft eftir
formanni Santbands íslenskra
sveitarfélaga nýverið, að þetta
væri ein mesta byggðaaðgerð
sem framkvæmd hefði verið
á undanförnum árum. Þar verð
ég að lýsa mig ósantmála okk-
ar ágæta formanni, sé þetta
rétt eftirhonum haft. Byggða-
aðgerð er fólgin í raunhæfum
aðgerðum sem gefa lolki í hin-
um dreifðu byggðum fram-
tíðarsýn fyrir sitt svæði, að-
gerðum sem sýna fólki frant á
að atvinnulífið ntun þróast
fram á við og verða fjölbreytt-
ara, aðgerðum sem styrkja
skólakerfi á öllurn stigum, að-
gerðum sent auka bjartsýni
og vitund um framtíð.
Nokkrar milljónir til sveit-
arfélaganna í landinu með
þessari aðferð breyta engu
öðru en því að fjárlagagat
þeirra verður eitthvað rninna
en ella. Sem byggðaaðgerð
breytir þetta því miður engu
fyrir hinn almenna íbúa vegna
Halldór Halldórsson.
þess að sveitarfélögin þurfa
alvöru leiðréttingu til að geta
tekið kröftuglega á heirna fyrir
og haft áhrif þannig á hina
ýmsu þróun. Þó er rétt að
þakka þetta útspil ríkisstjórn-
arinnar með von um að þetta
sé byrjunin á leiðréttingu á
tekjuskiptingu ríkis og sveit-
arfélaga.
Menningarveisla,
áramót
Hvort sem Isafjarðarbær er
tengdur sérstöku menningar-
átaki eða ekki, þá er menn-
ingin alltaf í miklum blórna
hér í bæ. Við munum tengjast
Reykjavík menningarborg
2000 en í raun munum við
nteð því benda enn frekar á að
árið er ein menningarveisla
hér í bæ. Við áramót rennur
upp nýtt árþúsund, árið 2000
rennur í garð. Með það í huga
mun flugeldasýning Björgun-
arfélagsins verða enn stór-
kostlegri og er hluti hennar
styrktur af Isafjarðarbæ.
Undirritaður hefur nú verið
þrenn áramót hér fyrir vestan
og er sannfærður um að hér er
best og skemmtilegast að vera
á þeim tímamótum. Hér tekur
náttúran þátt í hátíðinni,
ntagnar upp Ijósaganginn með
endurkasti frá snjóþöktum
fjöllunum og bergmálið ómar
í fjallasal.
JÓl
Nú eru jólin á næsta leiti.
Þeirn fylgir hjá flestum sér-
stök hefð og hluti af upplifun-
inni er sá að gera hlutina eins
áður. Eins og var gert hjá
pabba og mömmu og afa og
ömrnu. Þessu fylgja stundum
þau vandkvæði þegar fólk hef-
ur sambúð að hefðirnar rekast
eitthvað á, nokkur smáatriði
passa ekki sarnan. Þetta Ieysir
fólk yfirleitt með því að
blanda sarnan aðferðunt og
útkoman verður gleðileg jól í
faðmi ástvina.
Við sem búum í samfélagi
eins og Isafjarðarbæ eigurn
að rninna okkur reglulega á
hvað er gott að búa hérna, hér
líður okkur vel, hér býr gott
fólk. Við höfurn samt gott af
því að hugsa stundum um það
hvort við getum ekki gert ein-
hverja hluti öðruvísi, hvort við
getum ekki blandað okkar
hefðum saman við annarra
eins og fólk gerir til að við-
halda því besta úr jólahefð-
unum. Við þurfum að hugsa
um framtíðina og hvernig
við getum höndlað hana
sjálf, hvernig við getum
haft áhrif á hana og skapað
hana. Það er erfitt, hljómar
kannski ögn yfirlætislega
en er samt staðreynd. Ef
við gerum það ekki sjálf,
getum við ekki ætlast til að
aðrir sjái um það eða það
gerist af sjálfu sér. Með
samstöðu og samstarfi get-
um við áorkað rniklu.
Eg vil óska íbúum Isa-
fjarðarbæjar, svo og ná-
grönnunt okkar og öðrunt,
gleðilegra jóla og gæfuríks
komandi árs, með þökk
fyrir góð samskipti á árinu
sem er að Iíða.
Halldór Halldórsson,
bœjarstjóri.
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jóla- og nýárshátíð og þökkum árið scm er að líða.
LÖQGILTm ENDURSKOÐENDUR VESTFJÖRÐUM EHF.
A&atefneii 24 • 406kafirái • Msfmrgata 37*4t$ Bolungaivlk • K&mitala 700•'72-0239
Reiknistofa
Vestfjarða ehf
Söluskrifstofa
Samvinnuferða - Landsýnar
Hafnarstrœti 7 - Isafirði
lAH—t -TpAP
pAFl
Aðalstrœti 16- Isafirði
m.
ísaljarðar
apótBh
Pollgötu 4 - ísafirði
-'/OÓ /j’/y//
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999
21