Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Síða 17

Skólavarðan - 2019, Síða 17
VOR 2019 SKÓLAVARÐAN 17 Tækni / UMFJÖLLUN Þörf á fleiri smáforritum á íslensku Þegar blaðamaður Skólavörðunnar fékk að fylgjast með kennslustund hjá Fjólu var verið að nota smáforritið Orðagull sem er ætlað til málörvunar. Staðreynd er að flest smáforrit eru á ensku. Er það áhyggjuefni? „Það er afar sorglegt hve stjórnvöld veita litlu fjármagni til að þýða eða framleiða smáforrit á íslensku fyrir allra yngstu börnin hérlendis. Nýlega sagði Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, frá því í viðtali á RÚV að 58% barna væru byrjuð að nota tölvur og snjalltæki tveggja ára og yngri og að átta prósent þeirra byrjuðu að nota snjalltæki og tölvur fyrir eins árs aldur. Það segir sig sjálft að börnin eru mun meira en áður í ensku málumhverfi. Þetta verður að laga því við finnum það í leikskólanum að börnin hafa mun meiri færni í fínhreyfingum og aukna vitsmunalega færni, en íslenskur málþroski þeirra er ekki sá sami og áður. Þau þekkja t.d. litina, bókstafina og tölustafina á ensku. Þau vita alveg ótrú- legustu hluti sem þau hafa séð og lært á YouTube, vitneskja sem kannski kemur þeim ekki alveg að sama gagni og góð færni í íslensku,“ segir Fjóla og bætir við að hún dáist að þeim talmeinafræðingum sem leggi það á sig að búa til smáforrit á eigin kostnað – smáforrit sem hafi svo sannarlega komið að góðum notum í leikskólanum. „Ég hef upplifað það margoft í kennslu hversu mikið gagn þessi smáforrit gera. Þau eru mörg börnin sem hafa lært að bera fram rétt málhljóð með Lærum og leikum með hljóðin svo dæmi sé tekið.“ Mikilvægt að efla starfsþróun Tækniþróun er ör og sífellt koma fram nýjungar sem kennarar þurfa að tileinka sér. Fjóla er spurð hvaða augum hún líti þennan þátt starfsins. „Það er afar mikilvægt að menntayfirvöld og sveitar- félög viðurkenni þörf leikskólakennara til starfsþróunar. Það er staðreynd að innleiðing á spjaldtölvum og öðrum tæknibúnaði til kennslu verður engin ef leikskólafólk, og þá er ég að tala um allt starfsfólk, fær ekki tækifæri til þess að læra á tæknina og hvernig hægt sé að nýta hana í kennslu ungra barna. Leikskólarnir geta gefið ungum börnum tækifæri til að fást við hvetjandi og örvandi viðfangsefni.“ Fjóla segir engan vafa leika á því að tæknin geti ýtt undir sköpunarkraft barna, forvitni, tjáningu og fróðleiksfýsn. „Við getum með uppbyggilegri og mark- vissri tækninotkun búið börnin okkar undir nám og þátttöku í tæknivæddu samfélagi.“ Spjaldtölvur og upplýsingatækni hafa að mati Fjólu ekki verið nægjanlega vel nýtt í leikskólum hérlendis. Eins og áður var vikið að þá er ástæðan einkum sú að þekkingu og reynslu skortir meðal starfsfólks leikskólanna. Fjóla segir starfsfólk leikskólanna kalla eftir auknum stuðningi og ráðgjöf í þessum efnum. „Mig dreymir um að menntayfir- völd hér á landi fari svipaða leið og var farin í Noregi, en þar í landi á að setja 200 milljónir norskra króna í starfs- þróun leikskólastarfsfólks með það að markmiði að koma norskum leikskólum inn í framtíðina. Norðmenn stefna að því að allir sem vinna í leikskólum hafi hæfileika og getu til að kenna börnum að takast á við tækni framtíðarinnar. Ég myndi vilja sjá sömu þróun hér á landi,“ segir Fjóla Þorvaldsdóttir, sérkennari og sérfræðingur í upplýsingatækni. Fjóla heldur úti vefnum Fikt, sem er námsvefur um upplýsingatækni fyrir kennara í leikskól- um og á yngsta stigi grunnskóla. Slóðin er fikt.kopavogur.is. Börnin á Álfaheiði leysa verkefni í smáforritinu Orðagulli snemma morguns. Ein- beiting skín úr hverju andliti meðan þau fylgja fyrirmælum sem berast úr spjald- tölvunum.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.