Skólavarðan - 2019, Page 30
30 SKÓLAVARÐAN VOR 2019
UMFJÖLLUN / Leikskólinn
S kólavarðan heimsótti Lundarsel á fallegum vetrar-degi í febrúar. Lundarsel er rótgróinn leikskóli, fagnar 40 ára afmæli á þessu ári, og sá fyrsti sem er byggður sem
slíkur á Akureyri.
Björg Sigurvinsdóttir leikskólastjóri og
Ingi Jóhann Friðjónsson, leiðbeinandi með
háskólagráðu í heimspeki og meistaranemi í
leikskólafræðum, tóku á móti blaðamanni í þann
mund sem börnin voru á leið út að leika sér í
snjónum.
Björg segir heimspekina meginstoð í starf-
inu en einnig er unnið markvisst að jafnrétti.
„Heimspekin er undirliggjandi í öllu okkar
starfi. Börn eru spyrjandi og náttúrulega forvitin
og þá er málið að grípa tækifærin og nota kveikj-
ur til að fá samræður í gang. Matartímarnir eru
gjarna nýttir til samræðna því börnin spjalla
og þá er kjörið að spyrja spurninga og leiða
umræðurnar áfram án þess að stýra þeim. Spyrja
spurninga á borð við; geturðu sagt mér meira,
hvað áttu við?“ segir Ingi Jóhann.
Forsögu þess að unnið er með heimspeki í
Lundarseli má rekja til síðustu aldamóta. „Þegar
ég kom til starfa hér árið 2002 þá höfðu þær
Aðalbjörg Steinarsdóttir og Helga María Þórar-
insdóttir nýlega lokið B.Ed ritgerð um barna-
heimspeki í Háskólanum á Akureyri. Í kjölfarið
var ákveðið að vinna tveggja ára þróunarverkefni
með íslenskar barnabókmenntir og þjóðsögur
sem uppsprettu heimspekilegrar samræðu meðal
leikskólabarna. Kennarar Lundarsels útbjuggu
kennsluleiðbeiningar og fleira sem er aðgengilegt
á heimasíðunni okkar,“ segir Björg og bætir við
að starfið hafi þróast mikið í gegnum árin; í fyrstu
hafi einkum verið unnið með elstu börnunum en
nú njóti allur hópurinn góðs af.
„Við vinnum með heimspekina í öllu okkar
starfi en við erum með skipulagða heimspekitíma
fyrir fjögurra ára hálfsmánaðarlega og fimm
ára og eldri einu sinni í viku. Þá skiptum við
börnunum upp í hópa, fimm til tólf börn í einu,
Þar sem glaðir spekingar
leika og læra saman
Heimspeki skipar stóran sess í starfi leikskólans Lundarsels á Akureyri. Börnin læra að greina hugmyndir
sínar, koma auga á áður óþekkt tengsl og verða færari í að mynda sér sjálfstæða skoðun.
Börn eru spyrjandi
og náttúru lega
forvitin og þá er
málið að grípa
tækifærin og nota
kveikjur til að fá
samræður í gang.
Börnin í Lundarseli fá síðdegishressinguna. Matartímarnir eru gjarna notaðir til samræðna um hitt og þetta sem börnunum dettur í hug.