Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2011, Blaðsíða 8
hafsteinn
Þórólfsson
Hann söng sig inn í hjörtun þegar hann frum-
flutti „Ég er eins og ég er“ á hátíð Hinsegin
daga sumarið 2003 og síðan hefur lagið ómað
í flutningi hans á flestum okkar hátíðum og
orðið einkennislag Hinsegin daga. Hafsteinn
nam söng í Söngskóla Reykjavíkur og lauk
síðan ma-prófi í söng við guildhall School of
music & drama í london vorið 2005.
nú í vor lauk hann Ba-námi í tónsmíðum við
listaháskóla Íslands. Hafsteinn er ekki bara
hæfileikaríkur söngvari heldur líka athyglis-
vert tónskáld. kórverk hans „komdu nú klár“
var flutt á myrkum músíkdögum 2009 og
Schola cantorum flutti verk hans „Prope est
dominus“ á tónleikum í Hallgrímskirkju 2010
og einnig í kölnardómkirkju. Á þessu ári mun
Hafsteinn senda frá sér sína fyrstu plötu með
lögum langafa síns, oddgeirs kristjánssonar
í Vestmannaeyjum. Við bjóðum Hafstein
Þórólfsson velkominn á svið á opnunarhátíð
Hinsegin daga í Háskólabíói 4. ágúst.
MuLtitaLented PeRfoRMeR
Hafsteinn Þórólfsson made gay history in
Iceland when he premiered a translated ver-
sion of the queer classic I Am What I Am at
the 2003 Reykjavík Gay Pride. His version of
the song has since become Reykjavík Gay
Pride’s signature anthem. Also a gifted
composer, Hafsteinn has written several
pieces for choir and orchestra that have
been performed internationally. This year,
Hafsteinn will release his first full album,
containing the songs of his great-grandfather,
Oddgeir Kristjánsson. We welcome Hafsteinn
to the Opening Ceremony in Háskólabíó
Cinema, Thursday, 4 August.
8